SKÝRSLAN: Jafntefli í fallbaráttuslagnum á Ísafirði
Hvað réði úrslitum?
Vindurinn setti sinn svip á leikinn í dag og bæði lið spiluðu illa á seinasta þriðjungi vallarins. Bæði lið vildu alls ekki tapa þessum leik sem aðeins frammistöðuna fannst mér.
Bestu leikmenn
1. Orri Sveinn Segatta
Fannst Orri standa sig vel varnarlega í leiknum og hann var með ágætis sendingar fram á við
2. Silas Songani
Silas var sprækastur í liði Vestra í dag og átti fína spretti inn á milli.
Atvikið
Lokaflautið sem batt enda á þennan afskaplega leiðinlega fótboltaleik.
Hvað þýða úrslitin?
Stig er betra en ekkert stig í þessum fallbaráttuslag þannig ég efast um að liðin muni gráta sig í svefn í kvöld. Hins vegar hefði það verið gríðarlega mikilvægt fyrir bæði liðin ef þau hefðu náð sigri hér í dag.
Vondur dagur
Bara heilt yfir lélegur fótboltaleikur í alla staði. Vindurinn spilaði klárlega inn í gæðaleysið í leiknum og bæði lið vildu klárlega ekki tapa leiknum. Úr varð gæðalítill leikur þar sem fátt var um alvöru færi.
Dómarinn - 8
Reyndi lítið sem ekkert á dómarateymið hérna í dag.




