Leik lokið!
Algjör yfirspilun.
Þvílíkur kraftur í Eyjamönnum sem vinna hér mjög mikilvægan leik í toppbaráttunni. Þeir hreinlega áttu leikinn og Grindvíkingar bitu lítið frá sér, enda fengum við enga uppgjöf og markaregn frá Eyjamönnum.
90. mín
Vel varið hjá Hjörvari Daða sem hefur lítið þurft að taka á honum stóra sínum. Grindvíkingar eiga skot inn í teig sem hann ver í horn og ekkert kom úr horninu.
86. mín
InnArnór Sölvi Harðarson
ÚtBjarki Björn Gunnarsson
Skorar og fer svo útaf, svona á að gera þetta.
85. mín
Veisla!
Bjarki Björn Gunnarsson
Skýtur í leikmann Grindavíkur, boltinn skoppar aðeins upp og fer svo í netið.85. mín
12. hornspyrnana... Þarf ekki að spyrja... ekkert að frétta.
79. mín
InnJón Arnar Barðdal
ÚtSverrir Páll Hjaltested
79. mín
InnVíðir Þorvarðarson
ÚtHermann Þór Ragnarsson
79. mín
InnLárus Orri Ólafsson
ÚtIon Perelló Machi
77. mín
Grindavík á aukaspyrnu hægra megin fyrir utan teiginn. Skotið fór í vegginn og Grindvíkingar vilja hendi en dómarinn lætur leikinn halda áfram.
75. mín
Frábær sending frá Sverri Pál á Oliver sem hefði átt að gera betur og skjóta fyrr en hann tók sinn tíma og þetta var stoppað.
71. mín
Fallega klárað
Oliver Heiðarsson
Þeir eru ekkki hættir. Oliver fær boltann á ferð og chippar yfir Aron Dag í markinu.67. mín
InnFelix Örn Friðriksson
ÚtVicente Rafael Valor Martínez
67. mín
InnViggó Valgeirsson
ÚtVicente Rafael Valor Martínez
67. mín
Grindavík átti skot að marki Eyjamanna en það fór hátt yfir markið.
66. mín
InnLárus Orri Ólafsson
ÚtDaniel Arnaud Ndi
66. mín
InnKristófer Konráðsson
ÚtMatevz Turkus
65. mín
Tæpt varð það en vel gert Aron Dagur, fast skot að marki þar sem boltinn poppar upp úr höndunum á Aroni Degi en hann nær að gríp hann í annarri tilraun.
61. mín
Vel varið hjá Aroni Degi eftir snarpa sókn ÍBV. Þeir fá þó hornspyrnu sem þeir ná ekki að nýta sem og hinar 10.
59. mín
10. hornspyrna ÍBV, ekkert varð úr henni.
55. mín
Hornspyrna hjá ÍBV, tekin stutt og að lokum fjarar hún út og þeir fá aðra hornspyrnu í kjölfarið. Sú hornspyrna endar á þriðju hornspyrnunni í röð og þá eiga Eyjamenn skalla framhjá.
53. mín
Eftir að Vincent hafði dansað með boltann inn í teig sendir hann á Oliver fyrir utan sem skýtur en fer framhjá.
46. mín
InnDennis Nieblas Moreno
ÚtSölvi Snær Ásgeirsson
46. mín
InnNuno Jorge Nobre Barbosa Malheiro
ÚtDagur Ingi Hammer Gunnarsson
46. mín
Glæsileg varsla frá Aroni Degi í horn.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Grindavík leikur núna í átt að dalnum og á móti vindi, þetta verður erfitt fyrir þá.
45. mín
Hálfleikur
Svona er fótboltinn skemmtilegur, fjögur mörk frá Eyjamönnum sem sýna það í einu og öllu að þeir ætla sér upp.
Ég efast um að þeir missi niður 4 mörk í seinni hálfleik en ég er spennt að sjá hvað seinni hálfleikur hefur upp á að bjóða.
Ég efast um að þeir missi niður 4 mörk í seinni hálfleik en ég er spennt að sjá hvað seinni hálfleikur hefur upp á að bjóða.
45. mín
Þeir eru að gera út um leikinn
Bjarki Björn Gunnarsson
Fyrirgjöf frá Oliver á hægri kantinum sem ratar á Bjarka Björn sem kemur boltanum í netið.40. mín
Markaregn
Vicente Rafael Valor Martínez
Hann snéri sér rétt fyrir innan vítateiginn og lætur vaða alveg upp við stöng, vinstra megin. Ekki hægt að verja þennan.37. mín
Oliver með ágætis snúning við markteginn, skýtur en boltinn fer rétt framhjá.
34. mín
Gult spjald
Matevz Turkus
Fór klaufalega í Tómas Bent32. mín
Stutt og hnitmiðað.
Hermann Þór Ragnarsson
Oliver fær boltann á hlaupum upp hægri kantinn, hann tekur tvær snertingar og sendir síðan á Hermann Þór sem er kominn á fjæarstöngina og rennir boltanum í netið.27. mín
DAUÐAFÆRI
Grindavík spilar sig inn í teig með þríhyrningsspil, boltinn endar svo hjá Josip sem á skot fyrir opnu marki en þrumar hátt yfir.
24. mín
Bjarki Björn í hættulegu færi en nær ekki að skora.
21. mín
Mikilvægt mark komið í leikinn fyrir Eyjamenn.
MARK
Hermann Þór Ragnarsson
Hann skaut þrumuskoti í slá og út en boltinn skaust aftur í hann og í markið. Skoraði með líkamanum sínum, mögulega hælnum. Sá það ekki nógu vel.Mikilvægt mark komið í leikinn fyrir Eyjamenn.
17. mín
VARSLA
Þvílík varsla. Oliver er við markteiginn og er með mann á móti sér en nær að koma skoti á markið þar sem Aron Dagur á frábæra vörslu og ver í horn.
15. mín
ÍBV fær hornspyrnu en rennur fljótlega út í sandin eftir fyrirgjöfina.
14. mín
Bæði liðin hafa verið að spila töluvert þéttan bolta og lítið um færi. Vonandi fer leikurinn að opnast meira upp svo við fáum meiri spennu í leikinn.
13. mín
Gult spjald
Bjarki Björn Gunnarsson
Stoppar skyndisókn Grindvíkinga.12. mín
Fyrsta skotið á markið, sending frá Degi inn á Einar Karl sem á skot sem markvörður ÍBV ver.
7. mín
Hornspyrna sem ÍBV fær. Spyrna á næsrstöng sem er hreinsuð langt í burtu af Grindavík.
4. mín
Bæði liðin hafa verið að þreyfa fyrir sér en án þess að skapa mikla hættu.
1. mín
Leikur hafinn
LEIKURINN HAFINN
Eyjamenn byrja með boltann og leika í átt að dalnum eða í vestur.
Fyrir leik
Spámaðurinn
Karl Friðleifur Gunnarsson leikmaður Víkings er spámaður umferðarinnar.
Hann býst við heimasigri í dag.
ÍBV 3 - 0 Grindavík
Sverrir Hjalt með flugeldasýningu og setur þrennu takk fyrir.
Hann býst við heimasigri í dag.
ÍBV 3 - 0 Grindavík
Sverrir Hjalt með flugeldasýningu og setur þrennu takk fyrir.
Fyrir leik
Dómarateymið
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmir leikinn í dag og hann er með þá Gylfa Má Sigurðsson og Kristján Má Ólafs sér til aðstoðar á línunum. Árbæingurinn Viðar Helgason er svo eftirlitsmaður KSÍ.




Fyrir leik
Grindavík vann fyrri leik liðannna
Fyrri leikur liðanna fór fram í Safamýrinni, heimavelli Grindavíkur, 26. júní síðastliðinn. Þá vann Grindavík 3 - 1 sigur. Dennis Nieblas og Dagur Ingi Hammer Gunnarsson komu þeim í 2-0 áður en Vicente Valor minnkaði muninn. Kwame Quee gerði svo út um leikinn í lokin.
Fyrir leik
Staðan í deildinni
Leikurinn í dag er næst síðasta umferð Lengjudeildar karla. Efsta liðið í deildinni fer beint upp en liðin í sætum 2. - 5. fara í umspil um hitt lausa sætið í efstu deild. Tvo leiki heima og að heiman og að lokum úrslitaleik á Laugardalsvelli. Tvö neðstu falla beint.
Fyrir leikinn er ÍBV á toppnum en Grindavík siglir lignan sjó, komast ekki í efri hlutann og geta ekki fallið.
1. ÍBV - 35 stig
-------------------
2. Keflavík - 35
3. Fjölnir - 34
4. Afturelding - 33
5. Njarðvík - 32
--------------------
6. ÍR - 32
7. Þróttur - 27
8. Grindavík - 25
9. Leiknir - 24
10. Þór - 20
-------------------
11. Grótta - 16
12. Dalvík/Reynir - 13
Fyrir leikinn er ÍBV á toppnum en Grindavík siglir lignan sjó, komast ekki í efri hlutann og geta ekki fallið.
1. ÍBV - 35 stig
-------------------
2. Keflavík - 35
3. Fjölnir - 34
4. Afturelding - 33
5. Njarðvík - 32
--------------------
6. ÍR - 32
7. Þróttur - 27
8. Grindavík - 25
9. Leiknir - 24
10. Þór - 20
-------------------
11. Grótta - 16
12. Dalvík/Reynir - 13
Fyrir leik
Leikdagur í eyjum
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.
Hér tekur ÍBV á mót Grindavík í Lengjudeild karla. Leikurinn hefst klukkan 14:00.
Hér tekur ÍBV á mót Grindavík í Lengjudeild karla. Leikurinn hefst klukkan 14:00.




