SKÝRSLAN: Kaldasta liðið tók heitasta liðið
Hvað réði úrslitum?
Fjölnismenn voru heilt yfir betra liðið í dag. Sköpuðu sér nóg af færum og voru öflugir varnarlega. Hefðu getað unnið þennan leik með meiri mun ef þeir hefðu klárað færin sín betur.
Bestu leikmenn
1. Dagur Ingi Axelsson (Fjölnir)
Skoraði mark og fiskaði vítið. Var virkilega öflugur í dag.
2. Halldór Snær Georgsson (Fjölnir)
Afturelding var ekkert að láta neitt rosalega mikið reyna á hann. Hann hinsvegar kom með tvær mjög góðar vörslur í seinni hálfleik þar sem Afturelding hefði getað komist aftur inn í leikinn.
Atvikið
Vítaspyrnan sem Fjölnir fær á 43. mínútu leiksins. Nú er ég búinn að skoða þenann dóm mjög vandlega og það verður að segjast eins og er að þetta er virkilega ódýrt. Dagur Ingi er að hlaupa með Aroni Elí inn í teig. Aron er einfaldlega svona 20-30 sentimetrum hærri en Dagur, þannig mér sýnist Dagur bara detta vegna þess. Aron gerir voða lítið þarna, og ég ætla bara að segja að þetta hafi verið rangur dómur.
Hvað þýða úrslitin?
Fjölnismenn fara upp í 2. sætið og eiga enn möguleika á að vinna deildina í síðasta leik mótsins. Afturelding heldur sér í umspils sæti en það munar ekki miklu. Þeir eru í 5. sæti með 33 stig, Njarðvík er stigi á eftir þeim í 6. sæti.
Vondur dagur
Sóknarlína Aftureldingar var algjörlega bitlaus í þessum leik. Elmar Kári átti nokkur fín móment en annar var bara ekkert að frétta þegar Mosfellingar komust á síðasta þriðjunginn.
Dómarinn - 6
Eitt stórt atvik sem dregur Twana og hans teymi niður (sjá atvikið hér til hliðar). Annars var þetta virkilega vel dæmdur leikur, mig langaði að gefa hærri einkunn en þetta. Það er bara ekki hægt þegar svona atvik hefur svona stór áhrif á leikinn.



