SKÝRSLAN: Grótta fallnir úr lengjudeildinni
Hvað réði úrslitum?
ÍR voru heilt yfir bara betri allan tíman þó Grótta hafi ógnað á köflum fannst mér þetta aldrei í hættu fyrr en það voru svona 10 mínútur eftir þá var ÍR bara að hleypa Gróttu almennilega inn í þetta en ÍR náðu að sigla sigrinum heim með svakalegri game winning save frá Villa þarna á 90+4.
Bestu leikmenn
1. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson, ÍR
Var ekkert sérstaklega mikið að gera hjá honum allan leikinn en bara hann í uppbótartímanum bjargaði þessum 3 stigum fyrir ÍR og ætla gefa honum mann leiksins TAKK!
2. Kristján Atli Marteinsson, ÍR
Kristján Atli var hörku duglegur á miðjunni hjá ÍR og var frábær í fyrri hálfleik þar sem hann átti bara hreinlega miðsvæðið! Bragi fær líka shout alltaf stórhættulegur þegar hann fer á ferðina.
Atvikið
Held það hafi verið Tómas Orri sem var bara kominn í gegn á 90+4 en Vilhelm Þráinn Sigurjónsson étur hann bara þetta var svakaleg varsla líka bara á 94.mín segi bara takk fyrir mig.
Hvað þýða úrslitin?
ÍR eru komnir upp í það fjórða með 35 stig og sitja eins og er í playoff sæti.
Með þessu tapi er Grótta því miður fallið úr lengjudeildinni, þannig liðin tvö eru kominn sem spila í 2.deild á næsta ári það er Grótta og Dalvík/Reynir.
Vondur dagur
Fannst varnarleikur Gróttumanna í föstum leikatriðum líta ekkert svakalega vel út þar sem ég held að Mcausland hafi náð að flikka boltanum svona 10 sinnum í leiknum þó það sé nú líklegast helvíti erfitt að dekka hann var þetta alltaf stór hættulegt og var uppskriftin á marki númer 2.
Dómarinn - 7
Fannst nú Pétur hafa bara góða stjórn á þessi var ekkert risa atvik eða einhvað þannig fínasti dagur á skrifstofunni.


