Besta-deild karla
Vestri

15'
0
1
1

Besta-deild karla
Víkingur R.

10'
1
0
0

Besta-deild karla
KA

LL
1
0
0

Besta-deild karla
Valur

LL
3
0
0

Lengjudeild karla
Grindavík

LL
3
4
4

Lengjudeild karla
Völsungur

LL
2
1
1

Besta-deild kvenna
Þór/KA

LL
1
0
0


Völsungur
2
1
Fjölnir

Elfar Árni Aðalsteinsson
'37
, víti
1-0

1-1
Daníel Ingvar Ingvarsson
'83
Bjarni Þór Hafstein
'90

Elfar Árni Aðalsteinsson
'90
2-1
24.05.2025 - 16:00
PCC völlurinn Húsavík
Lengjudeild karla
Dómari: Bergvin Fannar Gunnarsson
PCC völlurinn Húsavík
Lengjudeild karla
Dómari: Bergvin Fannar Gunnarsson
Byrjunarlið:
1. Ívar Arnbro Þórhallsson (m)
4. Elvar Baldvinsson
5. Arnar Pálmi Kristjánsson (f)
6. Inigo Albizuri Arruti
9. Elfar Árni Aðalsteinsson



10. Bjarki Baldvinsson
('73)

11. Rafnar Máni Gunnarsson
14. Xabier Cardenas Anorga

16. Jakob Héðinn Róbertsson
21. Ismael Salmi Yagoub
('89)


39. Gunnar Kjartan Torfason
('80)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
88. Einar Ísfjörð Sigurpálsson (m)
7. Steinþór Freyr Þorsteinsson
('89)

8. Ólafur Jóhann Steingrímsson
12. Gestur Aron Sörensson
17. Aron Bjarki Kristjánsson
23. Elmar Örn Guðmundsson
('73)

30. Davíð Örn Aðalsteinsson
('80)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson (Þ)
Bergur Jónmundsson
Ármann Örn Gunnlaugsson
Jónas Halldór Friðriksson
Ásgeir Kristjánsson
Davíð Leó Lund
Gul spjöld:
Xabier Cardenas Anorga ('40)
Elfar Árni Aðalsteinsson ('45)
Ismael Salmi Yagoub ('77)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Völsungur 2-1 Fjölnir
Völsungar klára þetta á hádramatískan hátt. Þessi sigur var engu að síður algerlega verðskuldaður.
90. mín
MARK!

Elfar Árni Aðalsteinsson (Völsungur)
90+5 VÖLSUNGAR ERU AÐ KLÁRA ÞETTA!
Steinþór Freyr á frábæra fyrir gjöf af vinstri kanti beint á pönnuna á Elfari Árna sem stangar hann inn.
89. mín

Inn:Steinþór Freyr Þorsteinsson (Völsungur)
Út:Ismael Salmi Yagoub (Völsungur)
Stálmúsin mætir í leit að sigrinum.
86. mín
Völsungar sækja og sækja og eftir hornspyrnu vilja þeir fá víti þegar Jakob Héðinn virtist rifinn niður í teignum en ekkert dæmt.
83. mín
MARK!

Daníel Ingvar Ingvarsson (Fjölnir)
FJÖLNIR JAFNA
Fjölnismenn fá hornspyrnu sem endar í netinu. Hef ekki hugmynd um hver kom boltanum yfir línuna en sýndist það vera Daníel.
75. mín
Aftur eru Völsungar nálægt því að bæta við. Rafnar Máni fær tvö færi á sömu mínútunni. Fyrst skallar hann yfir og neglir svo í hliðarnetið. Ótrúlegt að Völsungur séu bara einu marki yfir.
72. mín
DAUÐAFÆRI
Jakob Héðinn sleppur einn í gegn en Snorri í marki Fjölnis ver frábærlega!
69. mín
Fjölnismenn eru farnir að færa sig uppá skaftið og farnir að setja aðeins pressu á Völsunga. Sem að á móti hefur opnað þá aðeins til baka og eru Völsungur ennþá líklegri að bæta við en Fjölnir að jafna.
61. mín
STÖNGIN ENN OG AFTUR
Rafnar Máni neglir að marki fyrir utan teig og boltinn fer af varnarmanni og í stöngina. Völsungar fá horn sem endar með skoti Elvars Baldvinssonar en Snorri í marki Fjölnis ver vel.
59. mín

Inn:Hilmar Elís Hilmarsson (Fjölnir)
Út:Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson (Fjölnir)
Vilhjálmur fer meiddur af velli.
51. mín
FÆRI
Arnar Pálmi fyrirliði Völsungs á frábæra fyrirgjöf sem Jakob Héðinn setur í hliðarnetið.
49. mín
Völsungar byrja seinni hálfleikinn af sama krafti og halda áfram að setja pressu á Fjölnismenn.
45. mín
Hálfleikur
Völsungar eru marki yfir í hálfleik en eru sennilega ósáttir að vera ekki fleiri mörkum yfir.
45. mín
Hvernig slapp Reynir þarna? Reynir tæklar Elfar Árna mjög illa á miðjum vellinum og sleppur einhvern veginn við spjald. Þetta var jafnvel nær því að vera rautt en gult.
45. mín
Gult spjald: Elfar Árni Aðalsteinsson (Völsungur)

Elfar fær gult fyrir pirringsbrot á miðjum vellinum.
40. mín
Gult spjald: Xabier Cardenas Anorga (Völsungur)

Brýtur harkalega af sér út við hliðarlínu.
37. mín
Mark úr víti!

Elfar Árni Aðalsteinsson (Völsungur)
Völsungar komnir yfir!
Elfar Árni tekur vítið sjálfur og neglir boltanum í vinkilinn.

Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
26. mín
STÖNGIN
Arnar Pálmi tekur aukaspyrnuna og setur hann í utanverða stöngina. Svo nálægt því að koma Völsungi yfir!
25. mín
Gult spjald: Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson (Fjölnir)

Völsungar fá aukaspyrnu á hættulegum stað.
22. mín
Nú eru það Völsungar sem sækja og endar sóknin með að Arnar Pálmi fyrirliði lætur vaða fyrir utan teig en yfir svífur boltinn.
20. mín
Fjölnir sækja og Kristófer Dagur á þrumuskot fyrir utan teig sem Ívar í marki Völsungs ver vel.
14. mín
Fjölnismenn eru að vakna til lífsins og fá tvær hornspyrnur í röð án þess þó að ná að skapa sér færi.
10. mín
Aðalsteinn brjálaður
Aðalsteinn Jóhann þjálfari Völsungs er brjálaður við dómarana og hellir sér yfir línuvörðinn.
8. mín
Hvernig var þetta ekki víti? Völsungar með frábæra sókn og Rafnar Máni er kominn einn gegn markmanni og virðist vera nelgdur niður en dómarinn dæmir hornspyrnu sem ekkert kemur uppúr. Virtist vera klárt víti frá mér séð.
4. mín
STÖNGIN
Völsungar byrja vel og eftir fínt samspil kemur góð fyrirgjöf inní teig sem Elfar Árni skallar í stöngina.
Fyrir leik
Aðstæður
Frábærar aðstæður á Húsavík í dag. Ótrúlegt en satt er ekki sól og blíða en það er logn og um 8 gráðu hiti. Það ringdi fyrri part dags þannig að grasið er rennandi blautt sem að vonandi eykur skemmtanagildi leiksins.
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár
Aðalsteinn gerir tvær breytingar á liði Völsungs, Inigo Albizuri og Bjarki Baldvinsson koma inn fyrir Steinþór Frey Þorsteinsson og Davíð Örn Aðalsteinsson.
Gunnar Már þjálfari Fjölnis stillir upp óbreyttu liði frá jafnteflinu við Fylki í síðasta leik.
Gunnar Már þjálfari Fjölnis stillir upp óbreyttu liði frá jafnteflinu við Fylki í síðasta leik.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn - gleymdist að ýta á enter
Byrjunarliðin eru komin inn og datt Fjölnisliðið strax inn á heimasíðu KSÍ klukkutíma fyrir leik. Það var hins vegar rúmlega tíu mínútna bið á liði Völsungs og það sem við heyrum er að stjórnarmaður hafi gleymt að ýta á enter og þvi hafi upplýsingarnar ekki skilað sér strax.
Fyrir leik
Fyrsti heimaleikur Völsungs - spilað á grasi
Leikurinn í dag er fyrsti heimaleikur Völsungs í deildinni. Verið er að skipta um gervigras á aðalvellinum og verður því spilað á neðri vellinum í dag - grasvellinum.
Fyrir leik
Gengi liðanna og staðan í deildinni
Eftir leikina þrjá er Völsungur með þrjú stig og Fjölnir tvö stig. Völsungur vann í síðustu umferð dramatískan endurkomusigur á Selfossi - annað árið í röð. Fjölnir gerði jafntefli við Fylki í síðustu umfeð þar sem Fylkir jafnaði á 80. mínútu
Fjölnir hefur skorað fimm mörk í leikjunum þremur og fengið á sig sjö. Völsungur hefur skorað þrjú mörk og fengið á sig sjö.
Fjölnir hefur skorað fimm mörk í leikjunum þremur og fengið á sig sjö. Völsungur hefur skorað þrjú mörk og fengið á sig sjö.
Fyrir leik
Dómarateymið
Bergvin Fannar Gunnarsson er með flautuna í dag og honum til aðstoðar eru þeir Jovan Subic og Arnór Bjarki Hjaltalín. Magnús Sigurður Sigurólason er eftirlitsmaður KSÍ.
Jovan Subic er AD1

Jovan Subic er AD1
Fyrir leik
Hrafnkell Freyr spáir...
Sparkspekingurinn Hrafnkell Freyr Ágústsson rýndi í kristalskúluna fyrir umferðina. Hann spáir heimasigri.
Völsungur 2 - 1 Fjölnir
Völlararnir fylgja eftir góðum sigri í síðustu umferð. Elfar Árni með tvennu og Reynir Haralds gerir mark Fjölnis af 40 metrum, beint í vinkilinn.
Völsungur 2 - 1 Fjölnir
Völlararnir fylgja eftir góðum sigri í síðustu umferð. Elfar Árni með tvennu og Reynir Haralds gerir mark Fjölnis af 40 metrum, beint í vinkilinn.
Fyrir leik
Góðan daginn lesendur góðir og veriði velkomnir í beina textalýsingu frá leik Völsungs og Fjölnis í fjórðu umferð Lengjudeildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 16:00 og fer fram á PCC vellinum á Húsavík.
Einn annar leikur fer fram í Lengjudeildinni í dag en Grindavík tekur á móti Þór á sama tíma.
Einn annar leikur fer fram í Lengjudeildinni í dag en Grindavík tekur á móti Þór á sama tíma.

Byrjunarlið:
13. Snorri Þór Stefánsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson (f)
3. Reynir Haraldsson
6. Árni Elvar Árnason
('81)

7. Óskar Dagur Jónasson
('73)

9. Árni Steinn Sigursteinsson
10. Máni Austmann Hilmarsson
14. Daníel Ingvar Ingvarsson

17. Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson
('59)


45. Rafael Máni Þrastarson
88. Kristófer Dagur Arnarsson
- Meðalaldur 24 ár
Varamenn:
25. Sigurjón Daði Harðarson (m)
4. Þengill Orrason
('81)

11. Bjarni Þór Hafstein
('73)


15. Fjölnir Sigurjónsson
16. Mikael Breki Jörgensson
18. Þorkell Kári Jóhannsson
23. Hilmar Elís Hilmarsson
('59)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Gunnar Már Guðmundsson (Þ)
Gunnar Sigurðsson
Einar Hermannsson
Kári Arnórsson
Ásgeir Frank Ásgeirsson
Sesselja Sigurðardóttir
Gul spjöld:
Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson ('25)
Rauð spjöld:
Bjarni Þór Hafstein ('90)