
Breiðablik
3
1
Víkingur R.

Tobias Thomsen
'17
1-0
Viktor Örn Margeirsson
'32
2-0
Tobias Thomsen
'52
3-0
3-1
Matthías Vilhjálmsson
'88
01.06.2025 - 19:15
Kópavogsvöllur
Besta-deild karla
Aðstæður: Fullkomnar fyrir knattspyrnuiðkunar
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 2042
Maður leiksins: Viktor Örn Margeirsson
Kópavogsvöllur
Besta-deild karla
Aðstæður: Fullkomnar fyrir knattspyrnuiðkunar
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 2042
Maður leiksins: Viktor Örn Margeirsson
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson
10. Kristinn Steindórsson
('87)

11. Aron Bjarnason

13. Anton Logi Lúðvíksson

15. Ágúst Orri Þorsteinsson
('82)

17. Valgeir Valgeirsson
21. Viktor Örn Margeirsson


30. Andri Rafn Yeoman
77. Tobias Thomsen
('93)
- Meðalaldur 29 ár




Varamenn:
12. Brynjar Atli Bragason (m)
2. Daniel Obbekjær
('87)

9. Óli Valur Ómarsson
23. Kristófer Ingi Kristinsson
('82)

24. Viktor Elmar Gautason
29. Gabríel Snær Hallsson
('93)

39. Breki Freyr Ágústsson
- Meðalaldur 22 ár
Liðsstjórn:
Halldór Árnason (Þ)
Arnór Sveinn Aðalsteinsson
Særún Jónsdóttir
Ásgeir Helgi Orrason
Haraldur Björnsson
Eiður Benedikt Eiríksson
Helgi Jónas Guðfinnsson
Brynjar Dagur Sighvatsson
Gul spjöld:
Anton Logi Lúðvíksson ('14)
Aron Bjarnason ('43)
Viktor Örn Margeirsson ('71)
Tobias Thomsen ('85)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Breiðablik sigrar toppslaginn!
Þetta var einhvernveginn aldrei í hættu hjá Blikum í dag.
Ég þakka fyrir samfylgdina í dag og minni á skýrsluna og viðtölin sem detta inn á eftir.
Takk fyrir mig og lifið heil.
Ég þakka fyrir samfylgdina í dag og minni á skýrsluna og viðtölin sem detta inn á eftir.
Takk fyrir mig og lifið heil.
94. mín
Gult spjald: Ingvar Jónsson (Víkingur R.)

Blikar tryllast!
Ingvar fer langt út á völl og straujar Viktor Karl niður sem er nánast sloppinn einn í gegn og fær gult. Blikar vilja annan lit á spjaldið sem ég skil vel.
88. mín
MARK!

Matthías Vilhjálmsson (Víkingur R.)
HELLO HELLO HERE WE GO!
Ég sá ekki hvað gerðist þarna en allt í einu eru Víkingar búnir að vinna boltann inni í teig Blika og Matti Villa er einn á einn gegn Antoni og skorar framhjá honum.
Ekki gæti þetta breytt einhverju hjá Blikum? Erum við með leik hérna?
Ekki gæti þetta breytt einhverju hjá Blikum? Erum við með leik hérna?
87. mín
Frábær varsla hjá Antoni
Karl Friðleifur kemur með bolta inn á teiginn sem fer á Viktor Örlyg. Hann skallar á markið en Anton Ari ver stórkostlega. Anton búinn að vera frábær í dag.
82. mín

Inn:Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik)
Út:Ágúst Orri Þorsteinsson (Breiðablik)
Fyrsta skipting Blika í dag
76. mín
Sigur Blika er ekki í hættu
Ég sé ekki Víkinga snúa þessu við. Það er eitthvað stórmerkilegt sem þarf að gerast.
75. mín
Skemmtileg tilraun
Höskuldur tekur spyrnuna og boltinn fer inn á teiginn á Tobias Thomsen sem reynir bakfallsspyrnu en boltinn fer hátt yfir.
74. mín

Inn:Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.)
Út:Stígur Diljan Þórðarson (Víkingur R.)
73. mín
Gylfi Sig tekur spyrnuna stutt á Daníel Hafsteins sem kemur boltanum á Gunnar Vatnhamar. Hann skallar fyrir markið en þar ná Blikar að bægja hættunni frá. Sóknarpressa Víkinga heldur áfram en Blikar ná svo endanlega að koma boltanum frá.
71. mín
Gult spjald: Viktor Örn Margeirsson (Breiðablik)

Stoppar hraða skyndisókn og fær réttilega gult spjald.
68. mín
Tarik í banni
Tarik Ibrahimagic var að fá sitt fjórða gula spjald sem þýðir að hann missir af næsta deildarleik Víkinga sem er heimaleikur á móti KR þann 16. júní.

66. mín
Gult spjald: Stígur Diljan Þórðarson (Víkingur R.)

Er í skallabaráttu við Viktor Örn og brýtur á honum. Viktor heldur utan um höfuðið og þarf aðhlynningu. Vonandi er í lagi með Viktor.
65. mín
Blikar í góðu færi
Viktor Karl með fyrirgjöf á fjærsvæðið þar sem Ágúst Orri tekur við honum og er aleinn á auðum sjó. Hann reynir skotið á markið en Ingvar gerir vel og handsamar boltann.
64. mín
Gult spjald: Tarik Ibrahimagic (Víkingur R.)

Brot út á miðjum velli sem verðskuldar spjald.
63. mín
Maður leiksins?
Hilmar Jökull að stýra stemningunni í stúkunni með glæsibrag. Fær 10/10 í einkunn frá mér so far.

57. mín
Anton Ari öruggur í kvöld
Ingvar kemur með langan bolta upp allan völlinn á Erling Agnars. Boltinn skoppar yfir Anton Loga og Erlingur nær að leika á hann og komast í góða skotstöðu. Skotið var fínt en mjög laust og Anton grípur boltann.
Anton Ari búinn að vera mjög öruggur í rammanum í dag.
Anton Ari búinn að vera mjög öruggur í rammanum í dag.

52. mín
MARK!

Tobias Thomsen (Breiðablik)
Stoðsending: Ágúst Orri Þorsteinsson
Stoðsending: Ágúst Orri Þorsteinsson
Er Breiðablik að ganga frá þessu?
Það kemur langur bolti fram á Tobias sem setur höndina í bakið á Gunnar Vatnhamar sem dettur niður. Ágúst Orri fær svo boltann og hann kemur boltanum aftur á Tobias sem klárar framhjá Antoni.
Sölvi vildi fá brot á Tobias í aðdragandanum og er allt annað en sáttur. Þessi frammistaða Víkinga er með ólíkindum.
Sölvi vildi fá brot á Tobias í aðdragandanum og er allt annað en sáttur. Þessi frammistaða Víkinga er með ólíkindum.
51. mín
Davíð Smári mættur í stúkuna
Davíð Smári, þjálfari Vestra, er einnig mættur í stúkuna. Vestri tapaði fyrir KR í dag en Davíð Smári og formaður Vestra voru brjálaðir út í dómara leiksins eftir leikinn.
50. mín
Dauðafæri!
Aron Bjarna fær boltann inni á teignum en setur boltann rétt framhjá. Þarna átti hann að gera mun betur.
48. mín
Ágúst Orri tekur skotið fyrir utan teig sem Anton ver en er tekinn niður þegar hann er í skotinu og fær ekkert fyrir sinn snúð. Blikar allt annað en sáttir. Sama gerist síðan skömmu síðar hinum meginn á vellinum og Víkingar ósáttir í kjölfarið.
46. mín
Stúkuvaktin
Willum Þór Þórsson nýkjörinn forseti ÍSÍ er að sjálfsögðu mættur í stúkuna ásamt fleiri góðum mönnum. Sævar Atli, sem var tekinn inn í landsliðshópinn í dag er sömuleiðis í stúkunni. Karólína Lea er mætt í vippið og fleiri góðir menn.

46. mín
Seinni hafinn!
Það eru gestirnir úr Fossvoginum sem koma okkur aftur í gang!
Þeir þurfa að skipta um gír ef við ætlum að fá einhvern leik hérna í kvöld.
Áhugaverðar 45 mínútur framundan!
Þeir þurfa að skipta um gír ef við ætlum að fá einhvern leik hérna í kvöld.
Áhugaverðar 45 mínútur framundan!
45. mín
Hálfleikur
Þá er Ívar búinn að flauta til hálfleiks og það eru Blikar sem fara sáttari til búningsklefa á meðan Víkingar þurfa að gera betur í þeim seinni ef þeir ætla að taka eitthvað úr þessum leik.
44. mín
Einhver flautar til hálfleiks í stúkunni
Einhver aðili með flautu upp í stúku ákvað að flauta leikinn af og það voru margir sem keyptu þetta. Þetta var líka mjög vel gert hjá þessum aðila, mjög langt, hátt og gott flaut.
43. mín
Gult spjald: Aron Bjarnason (Breiðablik)

Fer allt of seint í tæklingu á Róberti Orra sýnist mér og fær verðskuldað gult spjald.
37. mín
Helgi í færi
Davíð Atla með fyrirgjöf sem fer beint á Helga Guðjóns. Hann skallar boltann rétt framhjá, þarna á hann að gera betur að mínu mati. Víkingar aðeins að vakna en þeir þurfa samt að gera betur, skipta um gír.

Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín
MARK!

Viktor Örn Margeirsson (Breiðablik)
Stoðsending: Tobias Thomsen
Stoðsending: Tobias Thomsen
Blikar tvöfalda forystuna!
Viktor Karl kemur með stórkostlegan bolta inn á teiginn þar sem Tobias Thomsen er mættur. Hann skallar boltann fyrir markið á Viktor Örn sem klárar framhjá Ingvari í markinu.
Blikar að byrja frábærlega en Víkingar verða að stíga upp ef þeir ætla ekki að tapa þessum leik.
Blikar að byrja frábærlega en Víkingar verða að stíga upp ef þeir ætla ekki að tapa þessum leik.



29. mín
Höskuldur tekur spyrnuna sem er skölluð frá. Hann fær tvær tilraunir í viðbót en Víkingar verjast þessum fyrirgjöfum vel.
26. mín
Víkingar ekki að tengja vel
Mikið af misheppnuðum einföldum sendingum að fara forgörðum hjá Víkingum. Það er eins og þeir séu ekki alveg nógu vel tengdir í kvöld.
21. mín
Munaði litlu
Höskuldur rúllar boltanum til Kidda Steindórs inni á teignum sem reynir að krulla boltanum í samskeytin fjær en boltinn fer rétt framhjá.
19. mín
Viktor Örn!
Skyndilega er Valdimar Þór sloppinn einn í gegn og er við það að taka skotið á markið þegar Viktor Örn tekur rosalegan sprett til baka og kemur í veg fyrir skotið.
Öll stúkan fagnar þessu eins og marki!
Öll stúkan fagnar þessu eins og marki!
17. mín
MARK!

Tobias Thomsen (Breiðablik)
Stoðsending: Viktor Karl Einarsson
Stoðsending: Viktor Karl Einarsson
Sá hatar ekki að skora!
Viktor Karl fær boltann fyrir utan vítateig Víkinga og kemur boltanum á Tobias sem gerir vel inni á teignum. Hann klárar frábærlega framhjá Ingvari og kemur Blikum yfir!
Það er búið að brjóta ísinn!
Það er búið að brjóta ísinn!



17. mín
Það kemur góður bolti inn á teiginn sem Tobias skallar fyrir markið á Viktor Karl en Ingvar er snöggur út og lokar vel á miðjumanninn.
14. mín
Gult spjald: Anton Logi Lúðvíksson (Breiðablik)

Hann var allaveganna ekki lengi að komast í svörtu bókina hjá Ívari.
11. mín
Anton Logi að leysa miðvörðinn
Áhugavert að sjá Anton Loga leysa miðvörðinn af fyrir Blika. Verður gaman að sjá hvernig hann og Viktor ná að spila saman.

8. mín
Fyrsta alvöru færi leiksins!
Gylfi kemur með bolta inn á teiginn sem fer af varnarmanni og dettur svo fyrir Helga Guðjóns inn á teignum sem tekur skotið í fyrsta. Anton nær að stoppa skotið á nærstönginni með löppunum.
3. mín
Spyrnan er tekin stutt og Víkingar hreinsa. Blikar halda áfram í boltann en Ívar dæmir síðan aukaspyrnu á Blika inn í teig Víkinga.
1. mín
Steiktasta byrjun á leik sem ég hef séð
Tobias Thomsen byrjar leikinn með því að dúndra boltanum aftur fyrir mark Víkinga og í markspyrnu.
Bara beint úr miðju. Einhver steiktasta byrjun á leik sem ég hef séð, veit ekki alveg hvað planið var með þessu.
Bara beint úr miðju. Einhver steiktasta byrjun á leik sem ég hef séð, veit ekki alveg hvað planið var með þessu.
1. mín
Leikur hafinn
Veislan er byrjuð!
Það eru heimammenn sem hefja stórleik umferðarinnar hér í kvöld á Kópavogsvellinum.
Góða skemmtun segi ég!
Góða skemmtun segi ég!
Fyrir leik
Ekroth veikur
Sölvi Geir Ottesen greindi frá því í viðtali við Stöð 2 Sport fyrir leikinn að ástæðan fyrir því að Oliver Ekroth er ekki með í dag er að hann er veikur. Róbert Orri fær tækifærið í hans stað.
01.06.2025 19:18
Ekroth veikur - „Flott eldskírn fyrir Robba“
Fyrir leik
Það er Epic Early Win alert!!! Við erum að sjá skemmtilega nýjung í þessum stórleik hér í kvöld en það er Epic Early win á bæði Breiðablik og Víking Í boði hjá Epic. Breiðablik er í boði á stuðlinum 2,50 og Víkingar á stuðlinum 2.30. Epic Early win virkar þannig að ef liðið sem þú velur kemst einu marki yfir, einhverntíman í leiknum, þá fá menn það greitt út, óháð því hvernig leikurinn endar. Myndi ekki láta mér bregða þó að bæði lið muni leiða leikinn á einhverjum tímapunkti í leiknum.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin í hús!
Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, gerir fimm breytingar á byrjunarliði Blika eftir 4-1 tap gegn ÍA í seinustu umferð. Höskuldur Gunnlaugsson, Aron Bjarnason, Ágúst Orri Þorsteinsson, Andri Rafn Yeoman og Anton Logi Lúðvíksson koma inn í liðið fyrir þá Ásgeir Helga Orrason, Arnór Gauta Jónsson, Kristófer Inga Kristinsson, Viktor Elmar Gautason og Óla Val Ómarsson.
Alls eru einnig gerðar fimm breytingar á Víkingsliðinu eftir 1-0 sigur á Vestra í vikunni. Helgi Guðjónsson, Erlingur Agnarsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Stígur Diljan Þórðarson og Róbert Orri Þorkelsson koma inn í liðið en þeir Oliver Ekroth, Viktor Örlygur Andrason, Nikolaj Hansen, Matthías Vilhjálmsson og Ali Basem Almosawe detta úr liðinu.
Alls eru einnig gerðar fimm breytingar á Víkingsliðinu eftir 1-0 sigur á Vestra í vikunni. Helgi Guðjónsson, Erlingur Agnarsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Stígur Diljan Þórðarson og Róbert Orri Þorkelsson koma inn í liðið en þeir Oliver Ekroth, Viktor Örlygur Andrason, Nikolaj Hansen, Matthías Vilhjálmsson og Ali Basem Almosawe detta úr liðinu.
Fyrir leik
Spáin góða
Við fengum Íslands- og bikarmeistarann Einar Jónsson, þjálfara karlaliðs Fram í handbolta, til þess að spá í umferðina. Svona spáir hann stórleiknum:
Breiðablik 2 - 3 Víkingur (19:15 í dag)
Heimurinn er ekki tilbúinn í þennan. Þessi mun hafa allt. Ég er á því að Víkingar séu að fara hlaupa með þessa deild. Þetta verður leikurinn hans Gylfa Sig, setur 1 og leggur upp 2. Helgi skorar alltaf í þessum og Danni Hafsteins. Kristófer Ingi og Krulli Gull fyrir Blika.
Ef Helgi Mikael dæmir, þá er þetta 10 spjalda leikur. Þarna mun tíminn stoppa en aðeins um stund.
Kristján Óli lætur svo Dóra Árna heyra það allhressilega eftir leik! Þetta er leikurinn sem Dóri Árna hættir að járna.
Breiðablik 2 - 3 Víkingur (19:15 í dag)
Heimurinn er ekki tilbúinn í þennan. Þessi mun hafa allt. Ég er á því að Víkingar séu að fara hlaupa með þessa deild. Þetta verður leikurinn hans Gylfa Sig, setur 1 og leggur upp 2. Helgi skorar alltaf í þessum og Danni Hafsteins. Kristófer Ingi og Krulli Gull fyrir Blika.
Ef Helgi Mikael dæmir, þá er þetta 10 spjalda leikur. Þarna mun tíminn stoppa en aðeins um stund.
Kristján Óli lætur svo Dóra Árna heyra það allhressilega eftir leik! Þetta er leikurinn sem Dóri Árna hættir að járna.
Fyrir leik
Þriðja liðið
Ívar Orri Kristjánsson fær það skemmtilega verkefni að dæma þennan leik. Þetta er auðvitað ekki fyrsta sinn sem hann dæmir þennan leik á þessum velli. Honum til aðstoðar verða þeir Birkir Sigurðarson og Egill Guðvarður Guðlaugsson. Eftirlitsmaður KSÍ er Kristinn Jakobsson og 4. dómarinn er Jóhann Ingi Jónsson.
Fyrir leik
Víkingar tróna á toppnum
Víkingar hafa kannski ekki litið jafn sannfærandi út og þeir hafa gert seinustu ár en þeir eru samt sem áður á toppi deildarinnar með fjögurra stiga forskot á Vestra og Breiðablik. Víkingar mættu Vestra á Ísafirði í seinustu umferð og tóku sterkan 1-0 útisigur gegn langbesta varnarliði deildarinnar.
Það verður áhugavert að sjá Víkingana koma út í þennan leik. Ef þeir vinna stækka þeir biliði í Breiðablik í 7 stig. Þetta er auðvitað fyrsta tímabilið sem Sölvi Geir stýrir liðinu.
Það verður áhugavert að sjá Víkingana koma út í þennan leik. Ef þeir vinna stækka þeir biliði í Breiðablik í 7 stig. Þetta er auðvitað fyrsta tímabilið sem Sölvi Geir stýrir liðinu.

Fyrir leik
Bras á Blikum
Blikar hafa verið að hiksta nýverið en þeir töpuðu seinast í vikunni gegn ÍA á heimavelli þar sem liðið spilaði alls ekki vel saman. Í leiknum þar á undan töpuðu Blikar 2-0 fyrir FH í Krikanum. Eftir þessi úrslit eru þeir grænklæddu í 3. sæti, fjórum stigum á eftir toppliði Víkings og með -1 í markatölu.
Dóri hefur verið mikið í sviðsljósinu eftir leikina í viðtölunum þar sem hann hefur meðal annars gagnrýnt móta fyrirkomulagið.
Dóri hefur verið mikið í sviðsljósinu eftir leikina í viðtölunum þar sem hann hefur meðal annars gagnrýnt móta fyrirkomulagið.

Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)

6. Gunnar Vatnhamar
7. Erlingur Agnarsson
('64)

9. Helgi Guðjónsson
11. Daníel Hafsteinsson
15. Róbert Orri Þorkelsson
20. Tarik Ibrahimagic
('74)


24. Davíð Örn Atlason (f)
('64)

25. Valdimar Þór Ingimundarson
('83)

32. Gylfi Þór Sigurðsson
77. Stígur Diljan Þórðarson
('74)
- Meðalaldur 28 ár


Varamenn:
80. Pálmi Rafn Arinbjörnsson (m)
8. Viktor Örlygur Andrason
('74)

12. Ali Basem Almosawe
('64)

17. Atli Þór Jónasson
19. Þorri Ingólfsson
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
('64)

23. Nikolaj Hansen
('83)

27. Matthías Vilhjálmsson
('74)


33. Haraldur Ágúst Brynjarsson
- Meðalaldur 25 ár
Liðsstjórn:
Aron Baldvin Þórðarson (Þ)
Sölvi Ottesen (Þ)
Kári Sveinsson
Viktor Bjarki Arnarsson
Þórir Ingvarsson
Hajrudin Cardaklija
Rúnar Pálmarsson
Gul spjöld:
Tarik Ibrahimagic ('64)
Stígur Diljan Þórðarson ('66)
Ingvar Jónsson ('94)
Rauð spjöld: