SKÝRSLAN: ÍR áfram taplausir á toppi deildarinnar
Hvað réði úrslitum?
Keflavík byrjaði af krafti en náði ekki að brjóta á bak aftur sterkan varnarmúr ÍR. Gestirnir frá Breiðholti unnu sig vel inn í leikinn og áttu skyndisóknir sem lofuðu góðu. Heilt yfir þá er sennilega jafntefli sanngjörn niðurstaða þó svo báðum liðum fannst þau eflaust hafa getað stolið öllum stigunum.
Bestu leikmenn
1. Sigurður Karl Gunnarsson
Frábær í öftustu línu ÍR í dag. Fékk gult spjald á fyrstu mínútu en það sló hann ekki útaf laginu og hann spilaði eins og engill það sem eftir lifði.
2. Óðinn Bjarkason
Var stöðugt að valda vandræðum og koma sér í flottar stöður. Hefði átt skilið mark í kvöld.
Atvikið
Keflavík fékk hornspyrnu í seinni hálfleik sem var hálf ótrulegt að hafi ekki endað inni þegar ÍR bjargaði vel þar meðal annars á línu.
Hvað þýða úrslitin?
ÍR halda toppsætinu með 19 stig, tveimur stigum á undan næstu liðum á eftir. Keflavík eru í 7.sætinu með 12 stig.
Vondur dagur
Nacho Heras fær að líta sitt annað rauða spjald í sumar. Átti flottan leik fram að því en missir af næstu tveim í leikbanni. Innkoma Marin Mudrazija var svo heldur ekkert sérstök.
Dómarinn - 7
Mér fannst teymið bara komast þokkalega vel frá þessu. Fannst helstu ákvarðanir vera réttar svo þetta er bara solid sjöa.



