SKÝRSLAN: Iðnaðarsigur Víkinga á Akureyri
Hvað réði úrslitum?
Víkingar sýndu gæði á síðasta þriðjungi vallarins. Það náðu KA menn ekki að gera. Frábær aukaspyrna Gylfa á kollinn á Nikolaj og svo glæsileg afgreiðsla hjá títtnefndum Gylfa gerðu útslagið fyrir gestina úr Fossvoginum.
Bestu leikmenn
1. Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur R.)
Átti skínandi góðan leik í dag. Lagði upp á Nikolaj Hansen og skoraði svo sjálfur flott mark. Öruggur í öllum sínum aðgerðum úti á velli og svo eru föstu leikatriðin bara eitthvað grín með þessa löpp.
2. Oliver Ekroth og Gunnar Vatnhamar (Víkingur R.)
Get ekki valið á milli. Skölluðu örugglega sirka 5000 bolta í burtu frá marki gestanna og voru magnaðir í hjarta varnarinnar.
Atvikið
Skalli Nikolaj Hansen var sannkölluð gæði. Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, vildi meina að um brot hefði verið að ræða í aðdraganda marksins - en skallinn var engu að síður frábær hjá Dananum stæðilega.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingar auka forskot sitt á toppi Bestu-deildarinnar og eru nú með 26 stig, fjórum stigum meira en Íslandsmeistarar Breiðabliks. Þeir mæta Aftureldingu á heimavelli í næstu umferð. KA liðið er í næst neðsta sæti með 12 stig og framundan er heimaleikur gegn Völsurum.
Vondur dagur
KA menn geta ekki keypt sér mark í augnablikinu. Komu sér þónokkuð oft í vænlegar stöður, en gekk gjörsamlega bölvanlega að láta reyna á Ingvar Jónsson í marki Víkings. Eitthvað þarf að gerast svo að stíflan bresti.
Dómarinn - 8
Lét leikinn flæða ágætlega og það voru nokkur augnablik þar sem að leikurinn hefði getað fuðrað upp í smá vitleysu, en Gunnar tók vel á því og leysti það farsællega.




