SKÝRSLAN: Aðrar reglur í Lengjudeildinni
Hvað réði úrslitum?
jæja, sú frábæra klisja, Þórsarar nýttu sína sénsa betur en gestirnir. Þórsarar voru heilt yfir aðeins ofan á fannst mér en það var enginn gríðarlegur munur stærstan hluta leiksins. Selfyssingar fengu færi til að skora en tókst ekki að nýta þau.
Bestu leikmenn
1. Yann Emmanuel Affi
Öruggur í hjarta varnarinnar hjá Þór, las leikinn vel og var vel innstilltur, góðar staðsetningar.
2. Ragnar Óli Ragnarsson
Skoraði og hélt hreinu, mjög góður leikur hjá Ragnari. Aron Ingi Magnússon fær líka að vera nefndur í þessu boxi og Jón Vignir Pétursson var besti maður Selfyssinga.
Atvikið
Dauðafærið sem Selfoss fékk í 1-0, Sesar tiltölulega nýkominn inn á og náði ekki að setja boltann á markið. Þór skoraði svo fljótlega eftir það annað markið sitt.
Hvað þýða úrslitin?
Þórsarar vinna sinn fyrsta sigur eftir fjögurra leikja törn án sigurs. Selfoss er áfram á botni deildarinnar, en það er ekki langt í næstu lið.
Vondur dagur
Robert Blakala fær þetta fyrir sína tilburði í öðru marki Þórsara, færði þeim það á silfurfati með því að mislesa hornspyrnuna frá Aroni og Ragnar þurfti bara að koma boltanum á markið. Sóknarmenn Selfyssinga eru ekki alveg fríaðir af ábyrgð, Sesar og Ívan Breki eiga að gera betur með sín færi.
Dómarinn - 4
Verðum að gera þá kröfu að einn besti dómari landsins, Ívar Orri, kunni reglurnar þegar hann mætir í Lengjudeildina þar sem leikir fara stundum fram innanhúss. Núgildandi regla er þannig að ef boltinn fer í loftið þá fær hitt liðið boltann á þeim stað. Ívar var að vinna með gömlu regluna, að láta liðin skila boltanum til baka. Fékk kennslu með þetta í hálfleik og fylgdi nýju reglunni í seinni. Falleinkunn fyrir þetta, því miður.



