Juventus berst við Napoli um Sancho - Slot hefur áhuga á Guehi - Man Utd horfir til Ítalíu
Lengjudeild karla
Grindavík
LL 2
4
Völsungur
Besta-deild kvenna
Þór/KA
LL 4
1
Víkingur R.
Besta-deild kvenna
FH
LL 1
2
Valur
Besta-deild kvenna
Stjarnan
LL 0
3
Breiðablik
Grindavík
2
4
Völsungur
0-1 Jakob Héðinn Róbertsson '26
0-2 Jakob Héðinn Róbertsson '39
1-2 Elvar Baldvinsson '68 , sjálfsmark
1-3 Gestur Aron Sörensson '70
Ingi Þór Sigurðsson '91 2-3
2-4 Jakob Héðinn Róbertsson '92
21.06.2025  -  16:00
Stakkavíkurvöllur
Lengjudeild karla
Dómari: Elías Ingi Árnason
Byrjunarlið:
1. Matias Niemela (m)
2. Árni Salvar Heimisson
5. Sölvi Snær Ásgeirsson
6. Viktor Guðberg Hauksson (f) ('71)
7. Ármann Ingi Finnbogason
10. Ingi Þór Sigurðsson
11. Breki Þór Hermannsson
14. Haraldur Björgvin Eysteinsson
16. Dennis Nieblas
21. Kristófer Máni Pálsson
23. Sindri Þór Guðmundsson
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Arnar Eyfjörð Jóhannsson (m)
17. Andri Karl Júlíusson Hammer
19. Arnar Smári Arnarsson
20. Mikael Máni Þorfinnsson ('71)
22. Lárus Orri Ólafsson
25. Friðrik Franz Guðmundsson
26. Eysteinn Rúnarsson
- Meðalaldur 18 ár

Liðsstjórn:
Haraldur Árni Hróðmarsson (Þ)
Marko Valdimar Stefánsson
Sreten Karimanovic
Helgi Leó Leifsson
Jón Aðalgeir Ólafsson
Karim Ayyoub Hernández

Gul spjöld:
Haraldur Björgvin Eysteinsson ('85)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þannig fór um sjóferð þá! Elli flautar þá þennan leik af og það eru gestirnir úr Húsavík sem fara með stigin þrjú heim.

Frábær leikur hjá Völsungi og geggjuð byrjun á mótinu hjá þeim grænklæddu.

Ég þakka samfylgdina og minni á viðtöl og skýrslu sem koma inn á síðuna í dag.
94. mín
Inn:Tryggvi Grani Jóhannsson (Völsungur) Út:Jakob Héðinn Róbertsson (Völsungur)
Heiðursskipting
92. mín MARK!
Jakob Héðinn Róbertsson (Völsungur)
Ég trúi þessu ekki - Þrenna! Völlarar skora aftur beint eftir mark Grindvíkinga og núna leið ennþá minna á milli marka. Jakob fær boltann inni á teignum og tekur skotið sem endar í netinu.

Þvílíkur dagur hjá Jakobi sem er að skora sitt þriðja mark. Ef þú heitir Jakob þá skorar þú í Völsungi!
91. mín MARK!
Ingi Þór Sigurðsson (Grindavík)
Heyrðu við erum komin með leik! Breki Þór kemur með góðan bolta inn fyrir á Inga Þór sem er kominn einn á einn gegn Ívari. Ívar rennur til og Ingi nýtur sér það með því að lyfta boltanum yfir hann og minnkar muninn.
91. mín
+4 mínútur í uppbót
90. mín
Inn:Tómas Bjarni Baldursson (Völsungur) Út:Gestur Aron Sörensson (Völsungur)
88. mín
Ingi Þór tekur spyrnuna inn á teiginn sem fer á Sindra en hann skallar boltann aftur fyrir í markspyrnu.
87. mín
Grindavík í dauðafæri! Ingi Þór fær boltann inni á teignum frá Breka. Ingi gerir fáranlega vel og fer framhjá nokkrum varnarmönnum áður en hann tekur skotið sem Ívar ver frábærlega í horn.
85. mín Gult spjald: Haraldur Björgvin Eysteinsson (Grindavík)
Fer hátt með sólann og fer í bókina hjá Ella.
83. mín
Jakob Héðinn í fínu færi inn á teignum sem Matias ver.

Sýnist Grindvíkingar bara vera búnir. Orðnir þreyttir og lítil orka á tanknum eftir.
81. mín Gult spjald: Davíð Örn Aðalsteinsson (Völsungur)
Rétt spjald. Fyrir gamalt brot á Mikael Mána út á velli.
77. mín
Inn:Aron Bjarki Kristjánsson (Völsungur) Út:Elmar Örn Guðmundsson (Völsungur)
76. mín
Ismael með skot af löngu færi sem fer beint á Matias í markinu sem handsamar boltann.
71. mín
Inn:Mikael Máni Þorfinnsson (Grindavík) Út:Viktor Guðberg Hauksson (Grindavík)
70. mín MARK!
Gestur Aron Sörensson (Völsungur)
Stoðsending: Xabier Cardenas Anorga
Þeir svara! Xabier kemur boltanum á Gest Aron fyrir utan vítateiginn sem klárar frábærlega vel framhjá Matias í markinu.

Aftur er þetta samt of auðvelt fyrir gestina. Fyrirliðinn Viktor Guðberg leit ekki vel út í aðdragandanum.
68. mín SJÁLFSMARK!
Elvar Baldvinsson (Völsungur)
Heimamenn minnka muninn! Ingi Þór kemur með fyrirgjöf inn á teiginn úr aukaspyrnu sem fer í Elvar Baldvins og framhjá Ívari í markinu.

Grindvíkingar eru komnir aftur í þetta!
66. mín
Ármann Ingi tekur hornspyrnu inn á teiginn sem fer á Breka Þór en skallinn hans fer beint á Ívar í markinu.
59. mín
Grindvíkingar halda í boltann meira þessa stundina en almennt lítið um færi í leiknum seinustu mínútur.
53. mín
Grindavík að fá horn! Grindvíkingar gera vel og sækja hornspyrnu.
49. mín Gult spjald: Bjarki Baldvinsson (Völsungur)
Gott gult spjald hjá Bjarka. Stoppar Sindra sem er að byrja hættulega skyndisókn.
48. mín
Gestirnir að gera vel! Jakob Héðinn gerir glæsilega á boltanum og keyrir upp völlinn. Hann nær skoti á markið inn á teignum sem Matias ver í horn. Þetta er allt saman mjög auðvelt fyrir gestina í dag.
46. mín
Seinni hafinn! Grindvíkingar koma okkur í gang á ný.
45. mín
Hálfleikur
Völlarar leiða í hálfleik 2-0 eftir góðan fyrri hálfleik. Grindvíkingar hafa fengið færi til að skora en ekki nýtt þau. Spurning hvað við fáum í seinni hálfleiknum.

Tökum okkur korterspásu og mætum aftur að vörmu spori.
41. mín
DAUÐAFÆRI! Ármann Ingi gerir stórglæsilega fyrir utan vítateig gestanna og kemur boltanum í gegnum varnarlínu þeirra á Sindra Þór. Sindri er kominn einn á einn gegn Ívar en setur ekki boltann á markið.

Dauðafæri sem Sindri hefði átt að gera betur í. Það hefði getað verið gífurlega mikilvægt að ná inn marki á þessum tímapunkti.
39. mín MARK!
Jakob Héðinn Róbertsson (Völsungur)
Stoðsending: Ismael Salmi Yagoub
Jakob að skora aftur! Ismael kemur með glæsilega sendingu inn á Jakob sem er kominn í góða stöðu. Hann tekur skotið sem endar í netinu.

Frábær byrjun á leiknum hjá gestunum úr Húsavík!
34. mín
Völlarar í góðu færi aftur Elvar Baldvins kemur með góðan bolta inn á teiginn sem fer beint á Ismael. Hann skallar boltann rétt framhjá.

Völsungur getur hæglega verið komið í 2-0 með þessum færum.
33. mín
Völsungur aftur í færi Aftur er klaufagangur í vörn Grindvíkinga og Xabier er núna kominn í góða stöðu inni á teig Grindvíkinga. Hann reynir skotið sem fer í varnarmann og aftur fyrir.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín
Ungir bekkir í dag Meðalaldur varamannabekkjanna hjá báðum liðum í dag er 18 ára. Ungir bekkir.

Meðalaldur byrjunarliðs Grindvíkinga er 23 ára en 24 ára hjá Völsungi.
26. mín MARK!
Jakob Héðinn Róbertsson (Völsungur)
Stoðsending: Xabier Cardenas Anorga
Vöslungur leiðir í Grindavík! Árni Salvar í allskonar veseni á boltanum út við hliðarlínu og tapar boltanum í baráttunni við Xabier sem keyrir af stað. Hann rúllar svo boltanum í gegn á Jakob Héðinn sem klárar listilega vel framhjá Matias í marki Grindvíkinga og kemur gestunum yfir.

Völsungur komnir með 13 stig eins og staðan er núna og eru í 5. sætinu!
25. mín
Áfram ógna Grindvíkingar Sending inn á teig Grindvíkinga sem endar hjá Inga Þór. Hann reynir skotið sem fer rétt framhjá. Völlarar vilja rangstöðu þarna.

Fínn kafli hjá Grindvíkingum sem eru að ógna.
24. mín
Ármann Ingi gerir glæsilega fyrir utan vítateiginn og reynir skotið á markið sem fer í stöngina og út.

Frábærlega gert hjá Ármanni þarna!
22. mín
Stúkuvaktin Húsvíkingurinn Baldur Sigurðsson er mættur í stúkuna í Grindavík í nákvæmlega þessari úlpu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

20. mín
Völlarar í góðu færi Langur bolti fram á Gest Aron sem er kominn í frábæra stöðu. Völlarar keyra upp 2 á tvo en Gestur fer sjálfur og fer í skotið sem er gripið nokkuð þægilega af Matias í marki Grindvíkinga.

Gott færi sem Völlarar hefðu átt að nýta betur.
17. mín
Ingi Þór tekur spyrnuna inn á fjærsvæðið þar sem Dennis Nieblas er mættur og stangar boltann á markið en beint á Ívar í markinu.
16. mín
Grindavík á horn!
13. mín
Langur bolti upp völlinn á Gest Aron sem er allt í einu kominn einn í gegn eftir misskilning í vörn Grindvíkinga. Matias í marki Grindavíkur gerir hins vegar vel og kemur út í boltann og hreinsar út í innkast.
7. mín
Rigning og feilsendingar Það er mjög blautt í Grindavík í dag og það er eins og menn kunni ekki að spila í þessari bleytu þessar upphafsmínútur. Mikið af feilsendingum og menn almennt að ná að halda lítið í boltann.
1. mín
Leikur hafinn
Þá er þetta komið í gang og það eru gestirnir úr Húsavík sem koma okkur í gang í dag.
Fyrir leik
Leikurinn í beinni à Livey


 

Mate Dalmay
Fyrir leik
Grindavík Grindavík er í flottum málum og situr liðið um miðja deild. Liðið er í 6.sæti deildarinnar með ellefu stig. Grindavík gerði 1-1 jafntefli við Fylki í síðustu umferð. Ármann Ingi Finnbogason skoraði mark Grindavíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Anton Freyr Jónsson
Fyrir leik
Völsungur Völsungur hefur byrjað mótið bara ansi vel en margir höfðu áhhyggjur að liðið færi án sigurs í gegnum tímabilið í ár. Völsungur hefur leikið átta leiki og unnið þrjá af þeim. Völsungur fékk Keflavík í heimsókn í síðustu umferð og gerðu liðin 1-1 jafntefli. Jakob Héðinn Róbertsson skoraði mark Völsunga.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Anton Freyr Jónsson
Fyrir leik
Dómrarinn Elías Ingi Árnason sér um að allt fari vel fram á Stakkavíkurvellinum í dag. Honum til aðstoðar verða þeir Ronnarong Wongmahadthai og Óliver Thanh Tung Vú

Eftirlitsmaður KSÍ verður Egill Már Markússon.



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Anton Freyr Jónsson
Fyrir leik
Velkomin í Grindavík! Heil og sæl ágætu lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Grindavíkur og Völsungs í 9. umferð Lengjudeildar karla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Ívar Arnbro Þórhallsson (m)
4. Elvar Baldvinsson
5. Arnar Pálmi Kristjánsson (f)
10. Bjarki Baldvinsson
11. Rafnar Máni Gunnarsson
12. Gestur Aron Sörensson ('90)
14. Xabier Cardenas Anorga
16. Jakob Héðinn Róbertsson ('94)
21. Ismael Salmi Yagoub
23. Elmar Örn Guðmundsson ('77)
30. Davíð Örn Aðalsteinsson
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
88. Einar Ísfjörð Sigurpálsson (m)
3. Davíð Leó Lund
15. Tómas Bjarni Baldursson ('90)
17. Aron Bjarki Kristjánsson ('77)
19. Tryggvi Grani Jóhannsson ('94)
22. Andri V. Bergmann Steingrímsson
28. Höskuldur Ægir Jónsson
- Meðalaldur 18 ár

Liðsstjórn:
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson (Þ)
Róbert Ragnar Skarphéðinsson
Aron Bjarki Jósepsson
Diljá Guðmundardóttir

Gul spjöld:
Bjarki Baldvinsson ('49)
Davíð Örn Aðalsteinsson ('81)

Rauð spjöld: