
Juventus hefur áhuga á Jadon Sancho, Liverpool er ekki að plana það að leggja fram tilboð í Alexander Isak og Andre Onana gæti verið á leið til Mónakó, en þetta og margt fleira er í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Ítalska félagið Juventus er áhugasamt um að fá Jadon Sancho (25), leikmann Manchester United í sumar. Napoli hefur einnig áhuga á Sancho sem eyddi síðasta ári á láni hjá Chelsea. (Sky Sports)
Liverpool er ekki að undirbúa tilboð í Alexander Isak (25), framherja Newcastle United, þrátt fyrir mikla virkni á markaðnum síðustu vikur. (Telegraph)
Arne Slot, stjóri Liverpool, hefur áhuga á því að fá Marc Guehi (25), miðvörð Crystal Palace og enska landsliðsins. (Talksport)
Guehi mun aðeins færa sig yfir til Liverpool ef hann fær fullvissu um að hann verði byrjunarliðsmaður. (Sky Sports)
Andre Onana (29), markvörður Manchester United og kamerúnska landsliðsins, er á lista hjá Mónakó sem er að skoða það að legja fram tilboð í leikmanninn. (Sky Sports)
Ef Onana yfirgefur Man Utd mun félagið fara á eftir Marco Carnesecchi (24) sem er á mála hjá Atalanta. (GianlucaDiMarzio)
Manchester City er opið fyrir því að leyfa Ilkay Gündogan (34) að fara frá félaginu í sumar en tyrkneska stórliðið Galatasaray er að skoða það að fá hann. (Guardian)
Evrópumeistarar Paris Saint-Germain hafa lagt fram annað tilboð í úkraínska varnarmanninn Illia Zabarnyi (22) sem er á mála hjá Bournemouth, en tilboðið nemur um 55 milljónum punda. Bournemouth vill fá í kringum 70 milljónir. (Sky Sports)
Tottenham hefur spurst fyrir um Antoine Semenyo (25), framherja Bournemouth, en félögin eru ekki á leið í viðræður eins og málin standa í dag. (Athletic)
Fulham er að skoða það að fá Joao Palhinha (29) aftur til baka frá Bayern München aðeins ári eftir að hann yfirgaf enska félagið fyrir 48 milljónir punda. (Mail)
Nýliðar Sunderland leiðir kapphlaupið um Vladyslav Vanat (23), framherja Dynamo Kiev í Úkraínu. Dynamo vill fá í kringum 21 milljón fyrir leikmanninn. (Express)
Evan Ferguson (20), framherji Brighton, gæti verið á leið til PSV Eindhoven í Hollandi eftir að hafa eytt síðasta tímabili á láni hjá West Ham frá Brighton. (Football Insider)
Lucas Digne (31), leikmaður Aston Villa og franska landsliðsins, er í viðræðum við Atlético Madríd á Spáni. Félagið ætlar að leggja fram 8 milljóna punda tilboð í leikmanninn. (Football Insider)
Mónakó gæti fengið samkeppni frá Al Ittihad í Sádi-Arabíu um franska miðjumanninn Paul Pogba (32), sem ætlar sér að snúa aftur í boltann eftir að hafa tekið út bann fyrir að brjóta lyfjareglur. (Foot Mercato)
Athugasemdir