Juventus berst við Napoli um Sancho - Slot hefur áhuga á Guehi - Man Utd horfir til Ítalíu
Lengjudeild karla
Grindavík
LL 2
4
Völsungur
Besta-deild kvenna
Þór/KA
LL 4
1
Víkingur R.
Þór/KA
4
1
Víkingur R.
Agnes Birta Stefánsdóttir '28 1-0
1-1 Dagný Rún Pétursdóttir '42
Amalía Árnadóttir '46 2-1
Sonja Björg Sigurðardóttir '62 3-1
Sandra María Jessen '67 4-1
21.06.2025  -  17:00
Boginn
Besta-deild kvenna
Aðstæður: Þurrt og hlýtt
Dómari: Jovan Subic
Áhorfendur: 100
Byrjunarlið:
20. Jessica Grace Berlin (m)
7. Amalía Árnadóttir
8. Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir
9. Karen María Sigurgeirsdóttir ('86)
10. Sandra María Jessen (f)
13. Sonja Björg Sigurðardóttir ('79)
14. Margrét Árnadóttir
18. Bríet Jóhannsdóttir ('85)
19. Agnes Birta Stefánsdóttir ('66)
22. Hulda Ósk Jónsdóttir ('85)
24. Hulda Björg Hannesdóttir
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
1. Bríet Kolbrún Hinriksdóttir (m)
4. Ellie Rose Moreno ('79)
5. Steingerður Snorradóttir ('85)
6. Hildur Anna Birgisdóttir ('86)
11. Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir ('85)
15. Eva S. Dolina-Sokolowska
21. Ísey Ragnarsdóttir
23. Bríet Fjóla Bjarnadóttir
27. Henríetta Ágústsdóttir ('66)
- Meðalaldur 18 ár

Liðsstjórn:
Jóhann Kristinn Gunnarsson (Þ)
Harpa Jóhannsdóttir
Hannes Bjarni Hannesson
Angela Mary Helgadóttir
Sigurbjörn Bjarnason
Aron Birkir Stefánsson
Jóhann Hilmar Hreiðarsson
Eva Rut Ásþórsdóttir

Gul spjöld:
Agnes Birta Stefánsdóttir ('22)
Sonja Björg Sigurðardóttir ('39)
Margrét Árnadóttir ('61)
Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir ('93)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þór/KA vinnur annan 4-1 sigur á Víkingi þetta tímabilið. Aldrei spurning eftir að Amalía skoraði alveg í byrjun fyrri hálfleiks.
93. mín Gult spjald: Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir (Þór/KA)
Fimmta gula spjald leiksins.
92. mín
Júlía vinnur aukaspyrnu í baráttu við Huldu Björgu. Fínn staður fyrir Þórdísi til að koma boltanum fyrir.

Fyrirgjöfin er hins vegar skelfileg, alltof innarlega og Jessica handsamar boltann.
91. mín
Linda Líf með skottilraun eftir að hornið var tekið stutt, nær fínu skoti en Jessica ekki í miklum vandræðum og heldur þessum bolta.
91. mín
Þremur mínútum bætt við Víkingur er að fá sitt þriðja horn núna á stuttum tíma.
89. mín
Víkingar mega eiga það að þær hafa ekki gefist upp, reyna eins og þær geta að ná inn sínu öðru marki í dag. Eiga núna hornspyrnu.
88. mín
Sandra vill fá gult spjald á Freyju, bendir á að þetta sé ekki hennar brot. Amalía lét líka í sér heyra og Jovan bað hana um að segja ekki orð í viðbót. Ekkert spjald á loft.
86. mín
Inn:Hildur Anna Birgisdóttir (Þór/KA) Út:Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA)
85. mín
Inn:Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir (Þór/KA) Út:Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
85. mín
Inn:Steingerður Snorradóttir (Þór/KA) Út:Bríet Jóhannsdóttir (Þór/KA)
84. mín
Linda Líf með tilraun hinu megin, hægra megin úr teignum, sem Jessica ver í horn.

Jessica handsamar svo fyrirgjöf Þórdísar.
84. mín
Hulda Björg með skot sem fer í Birtu, var búin að hlaða í fallbyssukúlu en Birta komst fyrir.
83. mín
Sandra reynir að snúa Freyju af sér en nær því ekki. Freyja föst fyrir og setur Söndru í grasið. Aukaspyrna.
83. mín
Inn:Júlía Ruth Thasaphong (Víkingur R.) Út:Ísfold Marý Sigtryggsdóttir (Víkingur R.)
82. mín
Þórdís með tilraun sem fer af Huldu Björgu og svo í Kimberley, fínasta færi og Þórdís óheppin að þessi bolti fór ekki á markið.
80. mín
Boltinn skoppar skemmtilega fyrir Huldu Ósk sem snýr sér og lætur vaða frá vítateigslínunni en skotið fer framhjá.
79. mín
Inn:Ellie Rose Moreno (Þór/KA) Út:Sonja Björg Sigurðardóttir (Þór/KA)
Frábær leikur hjá Sonju Björgu.
77. mín
Sandra María með flotta varnarvinna, vinnur markspyrnu fyrir Þór/KA. Einhver köll frá Víkingum um aukaspyrnu en leit ekki þannig út héðan.
74. mín
Áslaug Dóra kemst í boltann eftir hornspyrnuna. Hulda Björg liggur eftir og fær smá tíma til að jafna sig þar sem Jovan stoppaði leikinn. Stutt stopp, leiurinn aftur af stað 30 sekúndum seinna.
74. mín
Mjög gott færi Frábær stungusending frá Þórdísi inn á Dagnýju sem á tilraun sem Jessica hlýtur að hafa varið fyrst að hornspyrna er niðurstaðan.
71. mín
Bríet með fínasta skot fyrir utan vítateig Víkings en skotið fer yfir. Fínasta tilraun.
70. mín
Hulda Ósk gerir vel úti á hægri vængnum, kemur boltanum fyrir og Sonja Björg kemst í boltann en skalli hennar fer yfir mark Víkings.
70. mín
Inn:Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Víkingur R.) Út:Bergdís Sveinsdóttir (Víkingur R.)
Þórdís fer á vinstri kantinn og Dagný færist í holuna.
67. mín MARK!
Sandra María Jessen (Þór/KA)
Stoðsending: Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir
Kimberley með fyrirgjöf af hægri kantinum, hár bolti sem Sigurborg misreiknar aðeins, boltinn fer alveg á fjærstöngina og Sandra er mætt og kemur boltanum í netið af mjög stuttu færi. Einfalt mark fyrir Söndru í síðasta leiknum fyrir EM.
66. mín
Henríetta á skot eftir horn strax eftir innkomu sína, en skotið fer í varnarmann.
66. mín
Inn:Henríetta Ágústsdóttir (Þór/KA) Út:Agnes Birta Stefánsdóttir (Þór/KA)
Markaskorari af velli, flottur leikur hjá Agnesi sem er á gulu spjaldi.
65. mín
Víkingur reynir að svara hinu megin en gestirnir eru dæmdir brotlegir í baráttu um lausan bolta inn á vítateig heimakvenna.
62. mín MARK!
Sonja Björg Sigurðardóttir (Þór/KA)
Harðfylgi Áslaug Dóra reynir að hreinsa en boltinn fer í Sonju Björgu og fellur vel fyrir Söndru Maríu.

Sandra María með skot vinstra megin úr teignum sem Sigurborg ver en Sonja Björg er fyrst á frákastið og kemur boltanum í netið. Sonja hefur unnið fyrir þessu marki með frammistöðu sinni.

3-1 fyrir Þór/KA!
61. mín Gult spjald: Margrét Árnadóttir (Þór/KA)
Brot á miðjum velli, engin mótmæli þannig lagað frá Margréti.
60. mín
Laus bolti fyrir utan vítateig Víkings sem Margrét þrumar í með vinstri en hún hallaði sér líka aftur á bak og boltinn vel yfir mark Víkings. Það er samt oftast gott að enda sóknir með skoti.
59. mín
Karen María með tilraun í varnarmann inn á vítateig Víkings. Þór/KA fær horn.
59. mín
Amalía með skot fyrir utan D-bogann sem fer hátt yfir markið, hallaði sér aftur á bak og þá var niðurstaðan augljós áður en boltinn fór af stað. Mjög vel gert hjá Karen Maríu í aðdragandanum, vann tvo leikmenn með flottri hreyfingu.
56. mín
Sandra María reynir skot rétt fyrir utan teig, nær góðum krafti en miðið aðeins skakkt og boltinn flýgur vel yfir mark gestanna. Um að gera að reyna samt.
52. mín
Dagný kemst í boltann við vítateig Þórs/KA, laus bolti, hún á flottan snúning og reynir að krulla boltann í fjærhornið en nær því ekki, skotið framhjá.
50. mín
Jovan dæmir brot á Þór/KA inn á vítateig Víkings, í kjölfarið er svo skalli sem Sigurborg ræður ekki við en það var hvort sem er búið að flauta.

Agnes Birta átti skallann, veit ekki á hvað var dæmt.
49. mín
Áslaug Dóra og Sigurborg ekki að tala saman og Áslaug sendir boltann framhjá markmanni sínum og aftur fyrir. Klaufalegt. Norðankonur fá gefins horn.
46. mín MARK!
Amalía Árnadóttir (Þór/KA)
Strax mark! Hulda Ósk með frábæra fyrirgjöf af hægri kantinum, finnur Söndru Maríu sem á skot í slána og það er svo Amalía sem er fyrst í frákastið og kemur boltanum í netið af stuttu færi með skalla.

Heimakonur ekki lengi að þessu í seinni hálfleik, tók 30 sekúndur!
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað Þór/KA byrjar seinni, engar mannabreytingar.
45. mín
Hálfleikur
Allt jafnt í hálfleik. Víkingar sáttari við stöðuna myndi ég halda.
45. mín
Dauðafæri 45+2

Algjör dauðafæri í lok fyrri hálfleiks. Karen María setur boltann á fjærstöngina og þar lúrir Agnes Birta ein á auðum sjó en skallar boltann framhjá!
45. mín Gult spjald: Birta Birgisdóttir (Víkingur R.)
45+1

Hulda Ósk vinnur aukaspyrnu við vítateig Víkings.
45. mín
45+1

Bergdis í góðri stöðu og lætur vaða við vítateigslínuna, skotið beint á Jessicu sem nær ekki að handsama boltann í fyrstu tilraun en nær að henda sér á lausa boltann og klára vörsluna.
45. mín
Einni mínútu bætt við fyrri hálfleikinn
42. mín MARK!
Dagný Rún Pétursdóttir (Víkingur R.)
Stoðsending: Linda Líf Boama
Linda Líf með góðan bolta af hægri kantinum sem fer alveg yfir til vinstri og þar er Dagný Rún í góðu færi.

Jessica í marki Þórs/KA ætlaði sér að fara út í þennan bolta en misreiknar hann, Dagný á skot sem fer framhjá Jessicu og það var annað hvort Hulda Björg eða Agnes sem reyndi að bjarga marki með því að renna sér á boltann en náði ekki að bjarga á línunni.

Ekki alveg verðskuldað jöfnunarmark verð ég að segja, en hrós á sendinguna hjá Lindu.
40. mín
100 áhorfendur í Boganum Halli Ingólfs með nýjustu tölur.
39. mín Gult spjald: Sonja Björg Sigurðardóttir (Þór/KA)
Þór/KA vildi fá víti þegar Karen María féll við í teignum eftir návígi við Áslaugu Dóru, erfitt að sjá þetta héðan. Skömmu seinna dæmd aukaspyrna fyrir utan vítateig Víkings og Sonja fær gult spjald.
38. mín
Karen María með skot yfir eftir sendingu frá Amalíu.

Mjög góð sókn þar sem Sonja Björg náði að halda sókninni á lífi eftir fyrirgjöf frá Söndru Maríu. Öll sóknarlína Þórs/KA með í þessri sókn sem hefði hæglega getað endað með marki.
36. mín
Linda Líf finnur Freyju í gegn, Þór/KA vill fá rangstöðu en ekkert flagg á loft. Jessica er vel á verði, veður út á móti og nær að stöðva þessa sókn með því að handsama lausan bolta utarlega í vítateignum.
34. mín
Dauðafæri Langur bolti í átt að vítateig Víkings frá Huldu Björgu, Sonja Björg er þar með alla sína hæð og vinnur skallaboltann, flikkar honum inn fyrir og þar er Karen María í mjög góðu færi en hún nær ekki að koma boltanum á rammann, skotið framhjá fjærstönginni.

Sonja Björg er mikið vopn sem Þór/KAhefur náð að nýta nokkuð vel í þessum leik, öflugur framherji.
32. mín
Sandra í góðri stöðu eftir langa sendingu frá Margréti inn fyrir vörn Víkings. Bergþóra Sól gerir mjög vel að komast í boltann og kemur boltanum aftur fyrir.

Ekkert kom svo úr hornspyrnu heimakvenna, laus tilraun framhjá, ef tilraun skal kalla.
30. mín
Birta reynir skot af stuttu færi eftir að Jessica nær ekki að handsama fyrirgjöf Bergdísar. Skot Birtu fer í varnarmúr inn á markteig heimakvenna og þær ná svo að hreinsa í burtu.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Víkingur á hornspyrnu, reyna að svara strax. Fyrst eitthvað samtal á milli Jovan og leikmanna.
28. mín MARK!
Agnes Birta Stefánsdóttir (Þór/KA)
Fyrsta markið! Laus bolti inn á vítateig Víkings eftir hornspyrnu Karenar sem Agnes Birta er grimmust í og setur boltann með ristinni upp í þaknetið.

Agnes fyrst í boltann eftir að hafa sjálf átt skalla sem fór í Áslaugu Dóru.

Þriðja mark Agnesar í hennar 69. leik í efstu deild, og hennar fyrsta á þessu tímabili.
27. mín
Hulda Ósk vinnur hornspyrnu fyrir heimakonur.
25. mín
Sonja Björg með skot fyrir utan teig sem Sigurborg er ekki í vandræðum með, alls ekki galið skot samt.
23. mín
Margrét skallar fyrirgjöf Bergdísar í burtu og Þór/KA keyrir upp.

Hulda Ósk er í einn á einn st0ðu inn á vítateig Víkings, reynir fyrirgjöf og vinnur hornspyrnu. Vel hlaupið til baka hjá Víkingum.
22. mín Gult spjald: Agnes Birta Stefánsdóttir (Þór/KA)
Brýtur á Freyju hægra megin við eigin vítateig og uppsker gult spjald. Agnes Birta að vinna þarna með að bæði bolti og leikmaður mega ekki fara framhjá henni.
21. mín
Bergdís í góðri stöðu inn á teignum eftir fyrirgjöf Freyju en hún nær ekki að taka almennilega við boltanum og Kimberley nær að hreinsa.
20. mín
Margrét með hörkuskot fyrir utan teig en það fer í varnarmann, hitti boltann vel en kom honum þó ekki framhjá miðverði Víkings.
18. mín
Góð sókn Heimakonur vilja hendi-víti eftir misheppnað skot Karenar Maríu sem fer í varnarmann.

Sýndist þetta ekki vera neitt, en sóknin í aðdragandanum var frábær. Virkilega vel spilað hjá heimakonum, fáar snertingar á boltann, fastar sendingar og boltinn færðist hratt upp völinn.
14. mín
Dauðafæri Sandra María með sendingu inn fyrir vörn Víkings, þar kemst Sonja í boltann og reynir að lyfta boltanum og setja hann til hliðar við Sigurborgu en afgreiðslan ekki alveg nógu góð og Sigurborg nær að koma hönd á boltann og Þór/KA fær sitt fyrsta horn.
13. mín
Sigurborg í marki Víkings vel á verði þarna. Sandra María er snögg að taka aukaspyrnu, tekur langa spyrnu fram og finnur Karen Maríu sem flikkar boltann inn fyrir og Sonja er nálægt því að komast í dauðafæri en Sigurborg er vel verði.
11. mín
Ísfold Marý með skot sem fer af varnarmanni og skrúfast aftur fyrir. Víkingur fær aðra hornspyrnu.
10. mín
Linda Líf í góðri stöðu, ætlar sér framhjá Agnesi en varnarmaðurinn les hreyfingu Lindu og kemur boltanum aftur fyrir og í hornspyrnu.
8. mín
Gott færi hinu megin núna Amalía með mjög góða fyrirgjöf inn á vítateig Víkings. Hún finnur Söndru Maríu og Sandra á skalla úr góðu færi en nær ekki að halda boltanum niðri og fer hann yfir mark gestanna.

Systurnar Amalía og Margrét spila saman á miðjunni hjá Þór/KA og hefur Amalía verið duglegri við það að blanda sér í sóknina til þessa í leiknum.
7. mín
Þriðja rangstaðan dæmd á Þór/KA í byrjun leiks. Línan hjá Víkingi að halda vel.
6. mín
Gott færi Freyja aftur í færi, núna meira fyrir miðju í vítateig Víkings en skotið fer yfir. Þetta var mjög gott færi, Víkingur að finna holur á vörn Þórs/KA í byrjun leiks.
5. mín
Freyja á fyrstu tilraun leiksins, fínn bolti inn fyrir vörn Þórs/KA, sýndist hann vera frá Bergdísi, Freyja reynir skot en það fer beint á Jessicu sem heldur boltanum. Heimakonur kalla eftir rangstöðu en ekkert flagg á loft.
4. mín
Víkingur Sigurborg Katla
Emma - Gígja - Áslagu - Birta
Bergþóra - Ísfold
Dagný - Bergdís - Linda Líf
Freyja
2. mín
Þór/KA Jessica
Kimberley - Hulda Björg - Agnes - Bríet
Margrét - Amalía
Karen María
Hulda Ósk - Sonja - Sandra
1. mín
Leikur hafinn
Víkingur byrjar með boltann
Fyrir leik
Agnes Birta heiðruð Varnarmaðurinn Agnes Birta Stefánsdóttir spilaði á dögunum sinn 100. leik fyrir Þór/KA og fær hér treyju merkta 100.

Hún spilaði sinn fyrsta leik fyrir Þór/KA á Laugardalsvelli 2015 gegn Val.
Fyrir leik
Liðið í fjórða sæti á heimavelli gegn Víkingum sem sitja í 9.sæti. Þór/KA vann fyrri leik liðana sannfærandi í upphafi móts 1-4 og því er sigur norðanstúlkna líklegur. 1.83 á sigur Þórs/KA hjá Epic ratar eflaust í laugardagsseðilinn hjá einhverjum.
Fyrir leik
Breytingar á liðunum - Henríetta snýr aftur John Andrews, þjálfari Víkings, gerir eina breytingu frá 0-4 sigrinum á FHL í síðust umferð. Birta Birgisdóttir kemur inn fyrir Ernu Guðrúnu Magnúsdóttur sem tekur sér sæti á bekknum. Í liði Víkings er Ísfold Marý sem kom frá Þór/KA í vetur. Ásta Sylvía Jóhannsdóttir er varamarkmaður Víkings en hún er fædd árið 2010.

Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þórs/KA, gerir tvær breytingar á sínu liði frá 0-2 tapinu gegn Breiðabliki. Ellie Rose tekur sér sæti á bekknum en Angela Mary Helgadóttir er ekki með í dag. Inn koma Hulda Ósk Jónsdóttir og Sonja Björg Sigurðardóttir. Henríetta Ágústsdóttir kemur inn í hópinn hjá Þór/KA en hún spilaði síðast 17. maí gegn Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Henríetta er á láni hjá Þór/KA frá Stjörnunni
Fyrir leik
Uppgjörsþáttur fyrri umferðar Deildarkeppnin er hálfnuð, spilaðar eru átján umferðir og svo verður deildinni skipt upp í tvo hluta; efstu sex og neðstu fjögur, og liðin í sitthvorum hluta spila einfalda umferð í lok tímabls. Tíundu umferðinni lýkur í kvöld og eftir þennan leik fer deildin í EM frí.

Þeir Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur gerðu upp fyrstu níu umferðirnar og ræddu um EM í uppgjörsþætti í þessari viku. Þáttinn má nálgast á öllum hlaðvarpsveitum og hér að neðan.
Fyrir leik
Þriðja liðið Dómari: Jovan Subic
Aðstoðardómarar: Ásgeir Viktorsson og Sveinn Þórður Þórðarson
Fjórði dómari: Sveinn Arnarsson
Eftirlitsmaður KSÍ: Vilhelm Adolfsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jovan Subic
Fyrir leik
Orri Rafn spáir heimasigri Orri Rafn Sigurðarson, fyrrum fréttamaður Fótbolta.net, spáir í leikina sem eru framundan en hann fylgist vel með kvennaboltanum á Íslandi sem og annars staðar.

Þór/KA 2 - 1 Víkingur R.
Það er auðvitað alvöru þvæla að heimaleikir Þór/KA séu ennþà spilaðir í Boganum. Þarf að henda í appelsínugult á mitt fólk þar fyrir það. Það er alvöru alvöru pressa á John Andrews. Sögusagnir um að Víkingar séu byrjaðir að ræða við aðra þjálfara hjálpar ekki. Þær ná ekki að fylgja á eftir sigrinum gegn FHL en Linda Líf Boama mun samt koma þeim yfir eftir fyrirgjöf frá Emmu Steinsen. Fyrirliði Akureyrar leyfi ég mér að segja, Sandra Jessen mun hinsvegar taka leikinn yfir og setja tvö fyrir Norðan-konur sem að komast aftur á sigurbraut eftir tvo tapleiki í röð. Vill líka nota tækifærið og óska Selmu Dögg til hamingju með að vera að fara eignast sitt þriðja barn. (Og Sölva).

Fyrir leik
4. sætið og 9. sætið Þór/KA er í fjórða sæti deildarinnar með 15 stig en Víkingur er í 9. sæti með sjö stig.

Fyrir leiki dagsins er Víkingur tveimur stigum á eftir Val í sætinu fyrir ofan og Þór/KA sjö stigum á eftir FH og Breiðabliki.

Fyrri leikur liðanna í sumar, í 1. umferðinni, endaði með 1-4 sigri Þórs/KA á Víkingsvelli.

Þór/KA hefur tapað þremur leikjum í röð, tveimur deildarleikjum og einum bikarleik, en Víkingur vann aftur á móti langþráðan sigur í síðustu umferð þegar liðið sótti þrjú stig gegn FHL.
Fyrir leik
Velkomin í Bogann Góðan daginn lesendur góðir og veriði velkomnir í Bogann á Akureyri þar sem Víkingur heimsækir Þór/KA í lokaleik 10. umferðar Bestu deildar kvenna. Leikurinn hefst klukkan 17:00.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Sigurborg K. Sveinbjörnsdóttir (m)
2. Gígja Valgerður Harðardóttir
3. Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir
5. Emma Steinsen Jónsdóttir
7. Dagný Rún Pétursdóttir
8. Birta Birgisdóttir
9. Freyja Stefánsdóttir
13. Linda Líf Boama
20. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir
21. Ísfold Marý Sigtryggsdóttir ('83)
26. Bergdís Sveinsdóttir (f) ('70)
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
30. Ásta Sylvía Jóhannsdóttir (m)
4. Erna Guðrún Magnúsdóttir
11. Júlía Ruth Thasaphong ('83)
16. Jóhanna Elín Halldórsdóttir
18. Kristín Erla Ó Johnson
22. Birgitta Rún Yngvadóttir
27. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('70)
28. Rakel Sigurðardóttir
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
John Henry Andrews (Þ)
Lisbeth Borg
Númi Már Atlason
Ingólfur Orri Gústafsson
Lára Hafliðadóttir
Björn Sigurbjörnsson

Gul spjöld:
Birta Birgisdóttir ('45)

Rauð spjöld: