Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 20. júní 2025 11:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Orri Rafn spáir í 10. umferð Bestu kvenna
Orri Rafn að störfum.
Orri Rafn að störfum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gæði.
Gæði.
Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson
Lætur vita af sér.
Lætur vita af sér.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tíunda umferð Bestu deildar kvenna fer af stað í kvöld. Þetta er síðasta umferðin áður en EM-pásan hefst. Þá fer fókusinn á íslenska landsliðið.

Orri Rafn Sigurðarson, fyrrum fréttamaður Fótbolta.net, spáir í leikina sem eru framundan en hann fylgist vel með kvennaboltanum á Íslandi sem og annars staðar.

FHL 1 - 3 Tindastóll (18:00 í kvöld)
Landsbyggðarslagur eins og þeir gerast bestir! FHL virðast vera nokkrum númerum of litlar fyrir Bestu deildina og ég held að þær muni þurfa að bíða aðeins lengur eftir sínum fyrstu stigum. Keelan mun eiga alvöru leik í markinu en það dugir ekki til. Anna Hurley mun skora fyrir FHL en þær Makala Woods og María Dögg klára þetta fyrir Tindastól.

Fram 1 - 1 Þróttur R. (18:00 í kvöld)
Gæti orðið erfiður dagur fyrir Þróttara. Fram verið að spila vel og Óskar Smári er að elda alvöru gæði og liðsheild í Urriðarholtinu.
Þróttur má ekki tapa þessum leik en þær hefði varla getað fengið óþæginlegra verkefni en að mæta Fram á útivelli í því formi sem þær bláklæddu eru í. Ég ætla gerast svo djarfur að segja að þessi leikur endar með jafntefli. 1-1 eða 2-2. Murielle skorar 100% og mer sýnist ég sjá Þórdísi Elvu koma fljúgandi inn á teig og skorar með skalla. Óli Kri vinnur samt þæginlega í hvor þjálfarinn mun klæða sig betur á hliðarlínunni.

FH 2 - 0 Valur (14:00 á morgun)
Það er allt í blóma hjá FH en á sama tíma er sterkur fnykur af slæmu móral innan sem utan vallar og erfiðleikum á Hlíðarenda. Ída Marín er mætt og hefur heldur betur frískað upp á þetta FH lið sem voru andskoti góðar fyrir. Litlu gæðin sem hún hefur. Við fáum rautt spjald í þessum leik það verður mikill hasar og hiti en Hafnfirðingar taka heim 3 stig með 2-0 sigri og það verður neyðarfundur á Hlíðarenda um helgina.

Stjarnan 0 - 3 Breiðablik (14:00 á morgun)
Risa sigur hjá garðbæingum í seinasta leik gegn Þrótti. Auður Scheving og Anna María hentu í létta Alisson og Van Dijk frammistöður þar (Já ég held með Liverpool). Þær munu hinsvegar ekki getað stoppað Big Nik og grænklæddu stöllur hans sem eru með besta liðið í deildinni. Agla María hendir í smá EM show, skorar fyrir utan teig með þvælu skoti og Berglind Björg setur 2 og sendir sms á Steina Halldórs til að láta vita að hún sé klár.

Þór/KA 2 - 1 Víkingur R. (17:00 á morgun)
Það er auðvitað alvöru þvæla að heimaleikir Þór/KA séu ennþà spilaðir í Boganum. Þarf að henda í appelsínugult á mitt fólk þar fyrir það. Það er alvöru alvöru pressa á John Andrews. Sögusagnir um að Víkingar séu byrjaðir að ræða við aðra þjálfara hjálpar ekki. Þær ná ekki að fylgja á eftir sigrinum gegn FHL en Linda Líf Boama mun samt koma þeim yfir eftir fyrirgjöf frá Emmu Steinsen. Fyrirliði Akureyrar leyfi ég mér að segja, Sandra Jessen mun hinsvegar taka leikinn yfir og setja tvö fyrir Norðan-konur sem að komast aftur á sigurbraut eftir tvo tapleiki í röð. Vill líka nota tækifærið og óska Selmu Dögg til hamingju með að vera að fara eignast sitt þriðja barn. (Og Sölva).

Fyrri spámenn:
Adda Baldurs (5 réttir)
Magnús Haukur (4 réttir)
Vigdís Lilja (4 réttir)
Mist Rúnarsdóttir (4 réttir)
Guðrún Karitas (3 réttir)
Katla Tryggvadóttir (3 réttir)
Gylfi Tryggvason (3 réttir)
Emelía Óskarsdóttir (3 réttir)
Ásta Eir (2 réttir)

Hér fyrir neðan má sjá stigatöfluna í Bestu deild kvenna eins og hún er akkúrat núna.
Uppbótartíminn - EM hópurinn og þrjú lið jöfn á toppnum
Besta-deild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Breiðablik 9 7 1 1 37 - 7 +30 22
2.    FH 9 7 1 1 22 - 9 +13 22
3.    Þróttur R. 9 7 1 1 20 - 7 +13 22
4.    Þór/KA 9 5 0 4 15 - 15 0 15
5.    Fram 9 5 0 4 13 - 18 -5 15
6.    Stjarnan 9 4 0 5 11 - 19 -8 12
7.    Valur 9 2 3 4 10 - 13 -3 9
8.    Víkingur R. 9 2 1 6 15 - 22 -7 7
9.    Tindastóll 9 2 1 6 11 - 19 -8 7
10.    FHL 9 0 0 9 3 - 28 -25 0
Athugasemdir
banner