Fotbolti.net
Besta deildin
@danielmagg77Daníel Smári Magnússon
Daníel Smári Magnússon
Besta-deild karla
Greifavöllurinn
11° hiti og örlítil gola. Frábærar aðstæður!
KA
KA
0 - 2
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 131' Nikolaj Andreas Hansen0 - 269' Gylfi Þór Sigurðsson
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Leik lokið!
Víkingar taka stigin þrjú á Akureyri!
Allur vindur úr KA liðinu eftir seinna markið og Víkingar sigla þægilegum sigri í hús þegar á hólminn er komið. Viðtöl og umfjöllun koma von bráðar!
93. mín
Gestirnir með boltann hátt uppi á vallarhelmingi KA. Þeir eru að landa þessu nokkuð þægilega.
91. mín
Uppbótartíminn
Fjórar mínútur í uppbót. Hans í ágætis færi, en KA mönnum hafa verið mislagðir fætur inni í teig Víkinga.
KA
91. mín
Gult spjald

Hrannar Björn Steingrímsson

Stoppar skyndisókn.
88. mín
Lítil hætta á endurkomu
Máttlitlar sóknartilraunir KA manna valda gestunum engum hausverk.
Víkingur R.
87. mín
InnSveinn Gísli Þorkelsson
ÚtKarl Friðleifur Gunnarsson
KA
86. mín
InnMikael Breki Þórðarson
ÚtBjarni Aðalsteinsson
KA
84. mín
Gult spjald

Jóan Símun Edmundsson

Reynir að rífa boltann af Gunnari Vatnhamar þegar Víkingar eiga innkast. Athyglisvert.
83. mín
Daníel Hafsteinsson liggur eftir einhver viðskipti við Jóan Símun. Sýndist bæði Jóan og Marcel Römer segja eitthvað miður jákvætt við liggjandi Daníel.
81. mín
Birgir í færi!
Frábær fyrirgjöf frá Ingimar Stöle á fjær þar sem að Birgir Baldvinsson fær frían skalla. Hann stangar fastan skalla rétt yfir markið.
79. mín
Glimrandi samspil hjá KA!
Endar með því að Hallgrímur Mar fær gott skotfæri fyrir utan teig Víkings, en það er blokkað í horn.
Víkingur R.
78. mín
Gult spjald

Gylfi Þór Sigurðsson

Rífur Hallgrím Mar niður. Virtist vera brotið á Daníel Hafsteinssyni rétt á undan.
76. mín
Skalli í slá!
Gylfi með sturlaða hornspyrnu á fjær og þar stangar Færeyingurinn boltann í þverslá og aftur fyrir!
75. mín
Gestirnir fá hornspyrnu.
Víkingur R.
75. mín
InnHelgi Guðjónsson
ÚtValdimar Þór Ingimundarson
KA
74. mín
InnIngimar Torbjörnsson Stöle
ÚtJakob Snær Árnason
KA
74. mín
InnViðar Örn Kjartansson
ÚtÁsgeir Sigurgeirsson
73. mín
KA menn fá hornspyrnu.
Víkingur R.
73. mín
Gult spjald

Daníel Hafsteinsson

Full aðgangsharður í skallaeinvígi við Römer.
Víkingur R.
69. mín
VÍKINGAR TVÖFALDA FORYSTU SÍNA!

Gylfi Þór Sigurðsson (stoðsending: Valdimar Þór Ingimundarson)

Gestirnir taka aukaspyrnu fljótt og Tarik Ibrahimagic kemur boltanum inn í miðjan teig KA á Valdimar. Hann rennir svo boltanum út á Gylfa. Gylfi lætur ekki bjóða sér svona skotfæri tvisvar og neglir boltanum í nærhornið. 2-0!
67. mín
Rétt yfir!
Marcel Römer með fast skot utarlega í teig Víkinga og boltinn flýgur rétt yfir samskeytin fjær!
KA
64. mín
InnJóan Símun Edmundsson
ÚtDagur Ingi Valsson
Víkingur R.
64. mín
InnMatthías Vilhjálmsson
ÚtNikolaj Andreas Hansen
Víkingur R.
64. mín
InnTarik Ibrahimagic
ÚtViktor Örlygur Andrason
62. mín
Ein fullorðins
Oliver Ekroth með hörkutæklingu á Hallgrím Mar úti á vinstri kantinum. Þessi var af gamla skólanum - bolti og maður. Hallgrímur fljótur á fætur, enda grjótharður eins og Ekroth.
62. mín
En svo fer boltinn aftur fyrir og Víkingar geta hafið sókn. Við erum ekki að drukkna í gæðum þessa stundina.
61. mín
Hallgrímur reynir fyrirgjöf, en gestirnir koma boltanum í burtu. KA halda pressunni.
Víkingur R.
60. mín
Gult spjald

Nikolaj Andreas Hansen

Fer hressilega í Hrannar Björn rétt fyrir utan vítateig Víkinga. Skotfæri fyrir Hallgrím Mar.
58. mín
Aftur hætta!
Erlingur kemst aftur fyrir vörn KA úti hægra megin og setur boltann þvert fyrir markið, en þar er einfaldlega enginn mættur. Viðvörunarbjöllur að hringja hjá heimamönnum!
57. mín
Valdimar í dauðafæri!
Karl Friðleifur er með allan hægri kantinn útaf fyrir sig. Hann setur boltann inná teig KA á dauðafrían Valdimar sem að reynir ömurlega hælspyrnu í stað þess að skjóta almennilega á rammann. Stórundarlegt!
56. mín
Róbert Orri Þorkelsson vinnur aukaspyrnu inni á miðjum vallarhelmingi KA. Hallgrímur Mar sá brotlegi. Gylfi Þór með ágætis fyrirgjöf, en boltinn endar aftur fyrir.
54. mín
Aukaspyrna dæmd á KA inni á teig Víkings. Þetta er Groundhog Day.
53. mín
Brot dæmt á Víkinga og KA menn freista þess að skapa eitthvað. Og fá horn! Þetta er endurtekið efni.
52. mín
Ekkert kemur úr horninu og Víkingar hefja sókn. Og fá horn.
51. mín
Hættuleg fyrirgjöf!
Birgir Baldvinsson með glimrandi góða fyrirgjöf af vinstri kantinum og virtist boltinn stefna beint á pönnuna á Ásgeiri Sigurgeirssyni, en sýndist það vera Oliver Ekroth sem að náði gríðarlega mikilvægri snertingu á boltann og KA menn fá horn.
49. mín
Víkingar eru fljótari á flesta bolta þessa stundina, en lítið flæði hefur komist í spil beggja liða í upphafi síðari hálfleiks.
Víkingur R.
46. mín
InnErlingur Agnarsson
ÚtAli Basem Almosawe
46. mín
Komið af stað aftur
Byrjað á ný!
45. mín
Víkingar leiða 1-0 í hálfleik eftir glæsilegt skallamark Nikolaj Hansen. Jafnræði hefur verið með liðunum og KA menn geta í raun nagað sig í handarbökin að vera ekki búnir að láta reyna á Ingvar Jónsson í marki gestanna. Komum að vörmu með seinni hálfleikinn!
45. mín
Dagur Ingi!
+3 Fyrirgjöf Hrannars endar hjá Degi og hann þarf að snúa uppá sig til að stýra boltanum að marki Víkings. Fer af varnarmanni og aftur fyrir.
45. mín
Bjarni Aðalsteinsson í færi!
Fær boltann inni í teig Víkinga, en nær engum krafti í skot sitt og það er blokkað. Þremur mínútum bætt við.
43. mín
Gunnar Vatnhamar í séns!
Eftir þunga pressu gestanna er Gunnar Vatnhamar einhverra hluta vegna fremsti maður hjá þeim og fær boltann inni í teig KA. Hann tekur hinsvegar alltof þunga snertingu og skýtur framhjá markinu einn gegn Tönning.
40. mín
Birgir í ágætis færi!
Tekur boltann niður í teig Víkinga, en hamrar honum hátt yfir markið.
39. mín
Sýndist Ívar Örn skalla framhjá markinu.
38. mín
Dagur Ingi vinnur aukaspyrnu af harðfylgi á vinstri kantinum. Þetta er í fínni fyrirgjafastöðu fyrir Hallgrím Mar.
KA
35. mín
Gult spjald

Ívar Örn Árnason

Fyrir hættuspark á Nikolaj Hansen.
34. mín
HÆTTA!
Alvöru kraðak inni í teig Víkinga! Marcel Römer fær boltann inni í markteignum, reynir skot sem að er blokkað. Hann rennir svo boltanum út á Hrannar Björn sem að á bylmingsskot sem að einnig er blokkað. Dauðafæri fyrir KA menn!
Víkingur R.
31. mín
ALVÖRU GÆÐI!

Nikolaj Andreas Hansen (stoðsending: Gylfi Þór Sigurðsson)

Gylfi tekur aukaspyrnu utarlega í vítateig KA og þar mætir Nikolaj Hansen einn á auðum sjó - alveg eins og upp var teiknað á æfingasvæðinu! Frábær skalli Danans fer í slá og inn. Alvöru gæði!
30. mín
Ívar tekur Almosawe niður rétt fyrir utan vítateig KA hægra megin. Fær aukaspyrnu fyrir Víkinga á frábærum stað!
Víkingur R.
26. mín
KA menn kalla eftir rauðu!

Viktor Örlygur Andrason

Viktor Örlygur veður í gegnum miðja KA vörnina og nær lausu skoti að marki. Eftir að hann skýtur lendir hann ofan á ökklanum á Ívari Erni. Fyrirliðinn liggur sárþjáður eftir - en miðað við endursýningar þá er gult spjald rétt niðurstaða.
24. mín
Marcel Römer nælir í aukaspyrnu inná vallarhelmingi Víkinga. KA menn fylla teiginn. Boltinn fer á fjær þar sem að Ívar Örn nær til boltans, en skalli hans nær ekki að ógna af neinu ráði.
22. mín
TÖNNING TÆPUR!
Dútlar alltof lengi á boltanum og Nikolaj Hansen kemst inní hreinsun danska markvarðarins. William Tönning er stálheppinn að boltinn berst aftur til hans og Nikolaj er full aðgangsharður þegar hann reynir að ná boltanum af honum og er dæmdur brotlegur. Þetta var full mikið kæruleysi!
19. mín
Ágætis pressa hjá gestunum
Víkingum hefur tekist vel að þrýsta KA liðinu neðar á völlinn og heimamenn eiga í erfiðleikum með að spila sig útúr pressunni. Langir boltar fram sem að enda bara hjá miðvörðum Víkings.
17. mín
Skallað frá, en Víkingar halda boltanum ofarlega á vallarhelmingi KA.
16. mín
Fyrsta horn Víkinga
Gylfi Þór skeiðar að hornfánanum til að taka spyrnuna. Hornspyrna hans fer af KA manni og aftur fyrir. Taka tvö...
14. mín
Sýndist það vera Hans Viktor sem að reis hæst í teignum, en skalli hans fer langt framhjá markinu.
13. mín
Jakob Snær fær flugbraut upp hægri kantinn, en fyrirgjöf hans ratar ekki á liðsfélaga. KA menn fá þó hornspyrnu.
9. mín
Daníel fær létt baul
Stuðningsfólk KA baula á Daníel Hafsteinsson þegar hann fær boltann. Allt er þetta á léttu nótunum.
8. mín
Ekkert kemur úr horninu, en KA menn halda boltanum.
6. mín
KA menn fá fyrstu hornspyrnu leiksins
Fyrirgjöf Bjarna fer af varnarmanni og aftur fyrir.
6. mín
Hætta!
Viktor Örlygur fer illa með Jakob Snæ á vinstri kantinum og setur boltann á Gylfa inni í teig KA. Gylfi tekur aðeins of margar snertingar á boltanum og Hans Viktor blokkar skot hans.
5. mín
Birgir Baldvinsson á góðan sprett upp völlinn áður en boltinn berst til Bjarna Aðalsteinssonar. Hann tekur snertingu áður en hann reynir langskot sem að fer víðsfjarri marki Víkinga.
3. mín
Gylfi með skot fyrir utan teig KA, en boltinn fer talsvert framhjá markinu.
2. mín
Viktor Örlygur Andrason veður á Hrannar Björn og reynir fyrirgjöf, en hún er hættulítil og fer yfir allan teiginn í innkast.
1. mín
Það eru heimamenn í KA sem að koma leiknum af stað!
0. mín
Víkingar og Blikar eru í sérflokki í deildinni og hafa verið það síðustu 4 ár, 2 i stuðul á Epic á Víking gegn liði i botnsæti er of vel boðið til að sleppa því
0. mín
Heimkoma Daníels
Daníel Hafsteinsson snýr aftur á Greifavöllinn, en KA heimilið hefur verið hans heimasvæði lengst af á ferlinum. Hann skipti yfir í Víking stuttu fyrir síðustu jól, ásamt Sveini Margeiri Haukssyni og hefur farið vel af stað í Víkingstreyjunni - 4 mörk í 11 leikjum. Það verður fróðlegt að sjá hvernig viðtökur Daníel fær frá stúkunni, en hann var gríðarlega drjúgur fyrir KA liðið þegar að það hampaði Mjólkurbikarnum síðastliðið haust.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Daníel í bikarúrslitaleiknum 2024. Þar átti hann glimrandi leik þegar að KA menn urðu í fyrsta sinn bikarmeistarar.
0. mín
0. mín
Dómarinn
Það er Gunnar Oddur Hafliðason sem að dæmir leik dagsins. Honum til aðstoðar eru Guðmundur Ingi Bjarnason og Antoníus Bjarki Halldórsson. Valdimar Pálsson er eftirlitsmaður og varadómari er Elías Ingi Árnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Oddur mundar flautuna.
0. mín
Evrópudrátturinn áhugaverður
Bikarmeistarar KA sitja hjá í 1. umferð Sambandsdeildar Evrópu, en þeirra bíður athyglisvert verkefni í 2. umferðinni - danska liðið Silkeborg IF. Liðið endaði í 7. sæti Superliga, en vann umspilsleik við Randers um Evrópusæti og komst því í Sambandsdeildina. Víkingar mæta til leiks í 1. umferð Sambandsdeildarinnar og etja þar kappi við FC Malisheva frá Kósovó. Liðið hafnaði í 3. sæti í efstu deildinni í Kósovó. Ef Víkingar komast áfram þá bíða þeirra annaðhvort Vllaznia frá Albaníu eða Daugavpils frá Lettlandi.
Mynd: EPA
Víkingar voru grátlega nálægt því að slá út gríska stórliðið Panathinaikos í Sambandsdeildinni á síðasta tímabili.
0. mín
Stígur Diljan frá í átta vikur
Víkingar urðu fyrir blóðtöku þegar ljóst var að vængmaðurinn öflugi Stígur Diljan Þórðarson væri rifbeinsbrotinn og yrði frá keppni í allt að 8 vikur. Stígur hefur tekið þátt í öllum deildarleikjum Víkings til þessa og skorað í þeim eitt mark.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stígur mun missa af allavega sjö deildarleikjum og forkeppni Sambandsdeildar Evrópu.
0. mín
Gulur og blár þá - rauður og svartur í dag
Það var Sveinn Margeir Hauksson, núverandi leikmaður Víkings R., sem að skoraði sigurmark KA þegar að liðin mættust á þessum velli í fyrra. Hann fór að honum loknum í nám til Bandaríkjanna og söðlaði svo um ásamt KA manninum Daníel Hafsteinssyni og skipti yfir í Fossvoginn. ,,Þetta var gaman! Leiðinlegt að vera að fara, en geggjað að enda þetta á þessum nótum,'' sagði Sveinn Margeir eftir leikinn. Hann er þó fjarri góði gamni í dag, þar sem að hann er að glíma við leiðinleg hnémeiðsli.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Sveinn Margeir skoraði sigurmark KA í leik liðanna á Greifavellinum í fyrra.
0. mín
Andað ofan í hálsmál hvert sem litið er
Hvort sem að horft er á KA liðið eða gestina úr Fossvoginum er óhætt að fullyrða að lítið svigrúm sé fyrir töpuð stig. KA mönnum bráðvantar stig í blóðugri botnbaráttu þar sem að liðið lafir stigi fyrir ofan fallsæti og á sama tíma tróna Víkingar á toppi deildarinnar - stigi fyrir ofan ríkjandi Íslandsmeistara Breiðabliks. Það er því ljóst að lítið verður gefið eftir í leik dagsins, en rimmur þessara liða hafa oftar en ekki verið harðar og tíðindamiklar hér á Akureyri.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
0. mín
Góðan daginn!
Hér mun fara fram textalýsing á leik KA og Víkings R. Leikurinn er liður í 12. umferð Bestu-deildar karla og fer fram á Greifavellinum - heimavelli KA.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Úr síðasta leik liðanna á Greifavellinum. Hér eigast Danijel Dejan Djuric, þáverandi leikmaður Víkings R. og núverandi leikmaður Istra 1961, og Jakob Snær Árnason, leikmaður KA.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.