Fotbolti.net
Besta deildin
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Besta-deild karla
N1-völlurinn Hlíðarenda
Valur
Valur
6 - 1
KR
KR
Kristinn Freyr Sigurðsson 6'1 - 01 - 127' Jóhannes Kristinn Bjarnason (víti)Tómas Bent Magnússon 28'2 - 1Orri Sigurður Ómarsson 44'3 - 1Tryggvi Hrafn Haraldsson 70'4 - 1Patrick Pedersen 75'5 - 1Lúkas Logi Heimisson 95'6 - 1
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
Sigurður Hjörtur flautar af áður en KR-ingar ná að taka miðjuna.

Sanngjarn og öruggur sigur Vals sem voru mjög góðir í dag.

Viðtöl og skýrsla á leiðinni.
Valur
95. mín
Lúkas að klára þetta!

Lúkas Logi Heimisson

Valsarar vinna boltann á miðjum vellinum og Lúkas er skyndilega kominn aleinn í gegn á móti Halldóri Snæ og klárar frábærlega framhjá honum.

Hann tók sinn tíma en það dugði.
93. mín
Jakob Franz vinnur boltann af Finni Tómasi ofarlega á vellinum og reynir skotið strax sem Halldór ver nokkuð örugglega.
90. mín
+6 mínútur í uppbótartíma
87. mín
Adam Ægir tekur spyrnuna núna inn á teiginn sem Halldór Snær kýlir frá.
86. mín
Valsmenn fá aðra hornspyrnu!
84. mín
Adam Ægir tekur spyrnuna stutt á Kristinn Frey, fær hann aftur og reynir skotið sem fer langt framhjá.
84. mín
Valur að fá hornspyrnu!
KR
83. mín
InnAtli Hrafn Andrason
ÚtAtli Sigurjónsson
Valur
82. mín
InnAndi Hoti
ÚtTómas Bent Magnússon
82. mín
Inn
ÚtTryggvi Hrafn Haraldsson
Heiðursskipting fyrir besta mann vallarins, sem fær koss á sveittan kollinn frá sáttum Tufa, verðskuldað.
80. mín
Aron Sig tekur spyrnuna sem fer hátt yfir markið.
Valur
79. mín
Gult spjald

Hólmar Örn Eyjólfsson

Brýtur rétt fyrir utan vítateiginn og KR-ingar fá aukaspyrnu á stórhættulegum stað.
Valur
76. mín
InnAdam Ægir Pálsson
ÚtPatrick Pedersen
Valur
76. mín
InnJakob Franz Pálsson
ÚtJónatan Ingi Jónsson
Valur
75. mín
Þeir eru að ganga frá þessu!

Patrick Pedersen (stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson)

Tryggvi gerir frábærlega í að skalla sjálfan sig einan í gegn við miðjuna, keyrir inn á teiginn og borgar Patrick stoðsendinguna áðan til baka og rennir boltanum á hann fyrir opnu marki. Patrick gerir það sem hann hefur gert milljón sinnum í þessari deild. Skorar örugglega. Réttur maður á hárréttum stað.

Rétt áður en markið kom var varamannabekkur Vals sótillur því þeir vildu fá að gera skiptingar á liðinu sínu. Einn af þeim sem átti að koma útaf var Patrick Pedersen og að sjálfsögðu skoraði hann!
Valur
70. mín
Valsarar skora!

Tryggvi Hrafn Haraldsson (stoðsending: Patrick Pedersen)

Patrick kemst einn í gegn og keyrir í átt markinu áður en hann rúllar boltanum fyrir markið á langbesta mann vallarins í dag, Tryggva sem klárar í markið.

Valsarar halda bara áfram!
67. mín
Myndir frá Hafliða Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur
64. mín
InnLúkas Logi Heimisson
ÚtAlbin Skoglund
KR
62. mín
InnAron Þórður Albertsson
ÚtHjalti Sigurðsson
KR
62. mín
InnÁstbjörn Þórðarson
ÚtAlexander Helgi Sigurðarson
KR
62. mín
InnGuðmundur Andri Tryggvason
ÚtMatthias Præst Nielsen
62. mín
Þvílík markvarsla!
Atli Sigurjóns keyrir í átt að teignum og tekur gífurlega fast skot á markið sem Frederik Schram ver stórkostlega í horn!
60. mín
DAUÐAFÆRI!
Gabríel kemur með bolta á fjærsvæðið þar sem Aron Sig er mættur með markið galopið fyrir framan sig en skallar rétt yfir.

Það liggur KR mark í loftinu sem hafa byrjað fyrri hálfleikinn mun betur.
56. mín
Nú er það Aron Sig
Fær boltann við vítateigslínuna og dúndrar í átt að markinu. Skotið fer í utanvert hliðarnetið.

KR-ingar að ógna.
56. mín
Góð sókn KR
KR-ingar keyra upp í skyndisókn. Matthias Præst rennir boltanum til hliðar á Gabríel sem keyrir í átt að teignum. Hann reynir skotið sem fer rétt framhjá.
52. mín
Aron Sig með hörkuskot fyrir utan teiginn sem Frederik gerir vel í að verja og Valsmenn hreinsa svo út í innkast.
Valur
49. mín
Gult spjald

Markus Lund Nakkim

46. mín
Seinni hafinn!
Það eru gestirnir úr Vesturbænum sem koma okkur í gang á ný.
45. mín
Valsmenn leiða 3-1 í hálfleik og það sanngjarnt að mínu mati.

Tökum okkur korterspásu.
45. mín
Valsmenn verjast þessu vel.
45. mín
KR að fá horn!
45. mín
+1 í uppbót
Valur
44. mín
Annað mark úr horni!

Orri Sigurður Ómarsson (stoðsending: Markus Lund Nakkim)

Tryggvi Hrafn tekur enn eina frábæru spyrnuna inn á teiginn sem Markus nær til og reynir að taka boltann niður eða ná skoti á markið. Orri kemst í boltann áður en Markus tapar honum og dúndrar boltanum í þaknetið.

Annað mark Valsmanna úr horni í dag og Tryggvi arkitektinn.
43. mín
Valur að fá hornspyrnu!
40. mín
Leikurinn hefur aðeins róast þessa stundina. Ekki jafn mikill hraði í leiknum og var fyrir um það bil 10 mínútum síðan.
Valur
35. mín
Gult spjald

Kristinn Freyr Sigurðsson

35. mín
Rétt framhjá!
Aron Sig gerir frábærlega á vinstri vængnum og kemur með bolta fyrir markið á Eið Gauta sem skallar boltann rétt framhjá markinu.
33. mín
KR-ingarnir eru að vinna sig hægt og rólega inn í leikinn. Ég sé fyrir mér KR mark fljótlega.
Valur
28. mín
Ekki lengi að snúa þessu við!

Tómas Bent Magnússon (stoðsending: Kristinn Freyr Sigurðsson )

Frábært spil hjá Valsmönnum sem endar í góðu marki. Kristinn Freyr fær hann við endalínuna inni á teig KR-inga og kemur boltanum fyrir markið. Hann finnur Tómas Bent í D-boganum sem klárar frábærlega framhjá Halldóri í fyrsta.

Þvílík byrjun á leiknum!
KR
27. mín
Öruggur á punktinum!

Jóhannes Kristinn Bjarnason

Sendir Frederik Schram í rangt horn og jafnar þetta fyrir KR-inga!
25. mín
KR að fá víti!
Sigurður Egill fer í tæklingu inni í teig og rennur örugglega lengra en hann ætlaði sér, og fer utan í Jóhannes Kristinn sem fer niður og er á leiðinni á punktinn!
21. mín
KR að fá horn!
Aron Sig með flotta takta við vítateigslínuna og reynir skotið sem fer af varnarmanni og aftur fyrir í horn.
15. mín
Tryggvi Hrafn tekur enn eina gæða spyrnuna inn á teiginn sem fer ofan á þverslána. Valsmenn halda þó í boltann og halda sóknarpressunni áfram.
15. mín
Valsmenn sprækir
Mjög góð og hættuleg sókn Vals sem endar með löngum bolta yfir á Tryggva sem er allt í öllu í sóknarleik Vals, hann keyrir á Hjalta og vinnur hornspyrnu fyrir heimamenn.
11. mín
Það er líf og fjör í þessu. Finnst KR-ingar vera að vinna sig inn í þetta. Með eitt hættulegt upphlaup núna sem fer forgörðum eftir að Sigurður Egill komst fyrir sendingu Arons Sig sem var á leiðinni á Atla Sigurjóns með markið fyrir framan sig.
Valur
6. mín
Þetta lá í loftinu!

Kristinn Freyr Sigurðsson (stoðsending: Patrick Pedersen)

Tryggvi með stórkostlega spyrnu inn á teiginn og það er Markus Nakkim sem skallar boltann fyrir markið á Patrick Pedersen sem er á fjærsvæðinu. Hann kemur boltanum fyrir markið á Kristin Frey sem klárar og kemur Valsmönnum yfir.

Valur er búinn að vera betri aðilinn til að byrja með. Fyllilega verðskuldað.
5. mín
Sláin!
Tryggvi Hrafn fær sendingu inn fyrir varnarlínu KR og rennir boltanum fyrir markið á Pedersen. Áður en hann nær til boltans kemst Finnur fyrir sendinguna en hann setur boltann í slána og aftur fyrir.
1. mín
Valsmenn komnir í færi eftir 10 sek!
Patric Pedersen fær boltann rétt fyrir utan vítateig KR og reynir volley á markið sem Halldór ver í horn.
1. mín
Veislan hafin!
Það eru heimamenn sem koma okkur í gang.
Fyrir leik
Styttist
Þá ganga liðin til vallar og gera sig klár í slaginn.
Fyrir leik
El Classico og var fyrri leikur liðana galopinn.
Sóknarleikur verður í fyrirrúmi hjá KRingum eins og vanalega og eitthvað segir mér að Jónatan og Tryggvi Hrafn muni ógna inn fyrir varnarlínu KRinga ítrekað með hraða sínum og krafti og skapa fjölmörg færi.

Gögnin benda á mörk hér í dag og er stuðullinn á að valur skori yfir 2,5 mörk 2,15.

Þá er stuðullinn á yfir 4,5 mörk í leiknum hjá Epic 2,34. Sjáum hvað setur.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi!
Srdjan Tufegdzic, þjálfari Vals, gerir þrjár breytingar á liðinu sínu frá seinasta leik sem tapaðist gegn Stjörnunni 3-2. Tómas Bent Magnússon, Albin Skoglund og Sigurður Egill Lárusson koma inn í liðið fyrir þá Bjarna Mark Antonsson, Lúkas Loga Heimisson og Orra Hrafn Kjartansson. Bjarni Mark er í leikbanni.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR-inga, gerir einungis eina breytingu á sínu liði eftir 3-2 tapið gegn Víkingi Reykjavík í seinustu umferð. Júlíus Mar Júlíusson kemur inn í byrjunarliðið fyrir Ástbjörn Þórðarson.
Fyrir leik
Valsmenn áfram í bikarnum
Valur vann 0-1 útisigur á ÍBV í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á fimmtudag. Það var Hólmar Örn Eyjólfsson sem skoraði eina mark leiksins. Það var einmitt ÍBV sem sló KR út í 16-liða úrslitunum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Spáir sjö marka veislu
Valur tapaði 3-2 gegn Stjörnunni í síðustu umferð og KR tapaði líka 3-2, gegn Víkingi, í síðustu umferð.

Valur er með átján stig eftir ellefu leiki og KR er með þrettán stig. Valur er í fimmta sæti og KR er í tíunda sæti. Með sigri gæti KR farið upp um fjögur sæti. Valur færi með sigri upp um þrjú sæti.

Andrea Rut Bjarnadóttir, leikmaður kvennaliðs Breiðabliks, spáir útisigri í markaveislu.

Valur 3 - 4 KR (mán, 19:15)
Þetta verður skemmtilegur og opin leikur, mikið af mörkum. Ég spái því að KR taki þetta 3-4.
Fyrir leik
Bjarni Mark í banni - Líkleg byrjunarlið
Bjarni Mark Duffield, leikmaður Vals, fékk rauða spjaldið gegn Stjörnunni og tekur því út leikbann í dag.

KR endurheimtir Aron Þórð Albertsson úr leikbanni.
Fyrir leik
Vítaspyrna í uppbótartíma í fyrri leiknum
Fyrri leikur liðanna endaði með 3-3 jafntefli.

Fyrir leik
Þriðja liðið í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Aðstoðardómarar: Patrik Freyr Guðmundsson og Eðvarð Eðvarðsson
Fjórði dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson
Eftirlitsmaður KSÍ: Halldór Breiðfjörð Jóhannsson
Fyrir leik
Sú lang Besta!
Heilir og sælir ágætu lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Vals og KR í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.