Klukkan 19:15 í kvöld flautar Sigurður Hjörtur Þrastarson í flautu sína og þá fer Reykjavíkurslagur Vals og KR af stað á N1 vellinum að Hlíðarenda.
Fimm stig skilja liðin að. Valur situr í fimmta sæti og er með átján stig, markatöluna 24:16. KR er í tíunda sæti, með þrettán stig og markatöluna 30:26. Ef KR vinnur leikinn fer liðið upp í sjötta sætið. Með sigri færi Valur upp í þriðja sætið.
KR endurheimtir Aron Þórð Albertsson úr leikbanni en Valur missir Bjarna Mark Duffield í leikbann. Fótbolti.net hefur sett saman líkleg byrjunarlið fyrir leikinn.
Fimm stig skilja liðin að. Valur situr í fimmta sæti og er með átján stig, markatöluna 24:16. KR er í tíunda sæti, með þrettán stig og markatöluna 30:26. Ef KR vinnur leikinn fer liðið upp í sjötta sætið. Með sigri færi Valur upp í þriðja sætið.
KR endurheimtir Aron Þórð Albertsson úr leikbanni en Valur missir Bjarna Mark Duffield í leikbann. Fótbolti.net hefur sett saman líkleg byrjunarlið fyrir leikinn.
Lestu um leikinn: Valur 0 - 0 KR

Þeir Birkir Heimisson og Aron Jóhannsson hafa glímt við meiðsli. Við spáum því að þrjár breytingar verði á liðinu frá 0-1 sigrinum í Eyjum í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Við spáum því að Túfa leiti til Sigurðar Egils Lárussonar í fjarveru Bjarna og Birkis. Sigurður Egill hefur leyst stöðu vinstri bakvarðar síðustu ár og er líklegur í það í kvöld. Annar möguleiki væri sá að Jakob Franz Pálsson fengi kallið, kæmi inn í hægri bakvörðinn og Orri Sigurður Ómarsson myndi þá færa sig út til vinstri.
Orri Hrafn Kjartansson gerir tilkall á miðsvæðið en við spáum því að Kristinn Freyr Sigurðsson, Lúkas Logi Heimisson og Tómas Bent Magnússon bindi saman miðju liðsins og fyrir framan þá verða að öllum líkindum Jónatan Ingi Jónsson, Tryggvi Hrafn Haraldsson og Patrick Pedersen.

Við spáum tveimur breytingum á liði KR frá leiknum gegn Víkingi, spáum því að Júlíus Mar Júlíusson komi inn í byrjunarlið KR frá síðasta leik, Júlíus hefur verið að jafna sig á meiðslum síðustu vikur. Við spáum því að Hjalti Sigurðsson færi sig í hægri bakvörðinn þar sem hann lék fyrir öll meiðslin í hjarta varnarinnar.
Aron Þórður kemur úr leikbanni og spáum við því að hann komi beint inn í liðið. Það er spurning hvort Alexander Helgi Sigurðarson taki sér sæti á bekknum eða spili með Aroni Þórði á miðjunni. Við spáum því að markaskorararnir Matthias Præst og Jóhannes Kristinn verði með Aroni Þórði.
Aron Sigurðarson og Eiður Gauti Sæbjörnsson verða að öllum líkindum á sínum stað í liðinu og við spáum því að Atli Sigurjónsson verði úti hægra megin, en þeir Ástbjörn Þórðarson, Guðmundur Andri Tryggvason og Atli Hrafn Andrason gera allir tilkall.
Skýrslan úr fyrri leik þessara liða í vor:
Besta-deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Víkingur R. | 12 | 8 | 2 | 2 | 24 - 13 | +11 | 26 |
2. Breiðablik | 11 | 7 | 1 | 3 | 19 - 16 | +3 | 22 |
3. Stjarnan | 12 | 6 | 2 | 4 | 23 - 20 | +3 | 20 |
4. Vestri | 12 | 6 | 1 | 5 | 13 - 9 | +4 | 19 |
5. Valur | 11 | 5 | 3 | 3 | 24 - 16 | +8 | 18 |
6. Fram | 11 | 5 | 0 | 6 | 18 - 17 | +1 | 15 |
7. FH | 12 | 4 | 2 | 6 | 17 - 16 | +1 | 14 |
8. Afturelding | 11 | 4 | 2 | 5 | 12 - 14 | -2 | 14 |
9. ÍBV | 11 | 4 | 2 | 5 | 12 - 17 | -5 | 14 |
10. KR | 11 | 3 | 4 | 4 | 30 - 26 | +4 | 13 |
11. KA | 12 | 3 | 3 | 6 | 10 - 20 | -10 | 12 |
12. ÍA | 12 | 3 | 0 | 9 | 13 - 31 | -18 | 9 |
Athugasemdir