Fotbolti.net
23.06.25 - 18:20
Sölvi Haraldsson

Byrjunarlið Vals og KR: Júlíus Mar byrjar - Þrjár breytingar hjá Val

Júlíus Mar byrjar í dag.

Júlíus Mar byrjar í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eftir rúman klukkutíma hefst leikur Vals og KR í Bestu deildinni en rétt í þessu voru byrjunarliðin að detta í hús.
Lestu um leikinn: Valur 6 - 1 KR
Srdjan Tufegdzic, þjálfari Vals, gerir þrjár breytingar á liðinu sínu frá seinasta leik sem tapaðist gegn Stjörnunni 3-2. Tómas Bent Magnússon, Albin Skoglund og Sigurður Egill Lárusson koma inn í liðið fyrir þá Bjarna Mark Antonsson, Lúkas Loga Heimisson og Orra Hrafn Kjartansson. Bjarni Mark er í leikbanni.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR-inga, gerir einungis eina breytingu á sínu liði eftir 3-2 tapið gegn Víkingi Reykjavík í seinustu umferð. Júlíus Mar Júlíusson kemur inn í byrjunarliðið fyrir Ástbjörn Þórðarson.

Byrjunarlið Valur

Frederik August Albrecht Schram, Tómas Bent Magnússon, Markus Lund Nakkim, Jónatan Ingi Jónsson, Patrick Pedersen, Kristinn Freyr Sigurðsson, Sigurður Egill Lárusson, Tryggvi Hrafn Haraldsson (fyrirliði), Albin Skoglund, Hólmar Örn Eyjólfsson (fyrirliði), Orri Sigurður Ómarsson

Byrjunarlið KR

Halldór Snær Georgsson, Júlíus Mar Júlíusson, Jóhannes Kristinn Bjarnason, Alexander Helgi Sigurðarson, Finnur Tómas Pálmason, Eiður Gauti Sæbjörnsson, Aron Sigurðarson (fyrirliði), Matthias Præst Nielsen, Gabríel Hrannar Eyjólfsson, Atli Sigurjónsson, Hjalti Sigurðsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.