SKÝRSLAN: KFG voru frábærir á Samsungvellinum
Hvað réði úrslitum?
KFG byrjuðu leikinn gríðarlega sterkt og komust yfir snemma leiks og héldu áfram eftir það og fengu hættulegri færi í fyrri hálfleik til að bæta við. Heimamenn komu gríðarlega vel gíraðir inn í síðari hálfleikinn og komust í 3-0. Þá tóku Ægismenn örlítið við sér og náðu að minnka muninn undir lokin en nær komust Ægismenn ekki og KFG vann leikinn á endanum sanngjart.
Bestu leikmenn
1. Adrían Baarregaard Valencia (KFG)
Frábær í kvöld og ógnaði mjög mikið hægea megin hjá heimamönnum. Skoraði tvö frábær mörk og hefði geta skorað fleiri.
2. Jón Arnar Barðdal (KFG)
Virkilega öflugur sem fremsti maður hjá KFG í kvöld og var að búa til færi fyrir liðsfélagana sína.
Atvikið
Endurtekin vítaspyrna - Í upphadfi síðari hálfleiks fengu KFG vítaspyrnu sem Djordje Biberdzic tók en Andri Þór varði frá honum en það þurfti að endurtaka hana þar sem Andri Þór var farinn af línunni en einhverjir vildu meina ekki. Risa atvik ef um rangan dóm hafi verið að ræða.
Hvað þýða úrslitin?
KFG verður í pottinum þegar dregið verður í átta liða úrslitin í hádeginu á morgun. Bikarævintýri Ægismanna er úti.
Vondur dagur
Jordan Adeyemo sem hefur verið frábær í annari deildinni í sumar var nánast ósýnilegur á vellinum í Garðabænum í kvöld.
Dómarinn - 7
Guðmundur Páll og hans menn voru flottir í kvöld.



