Fotbolti.net
@fotboltinetHafþór Örn Laursen
Hafþór Örn Laursen
Fótbolti.net bikarinn
Domusnovavöllurinn
Vindur og skýjað, korter í rigningu
Árbær
Árbær
3 - 4
Kormákur/Hvöt
Kormákur/Hvöt
Brynjar Óli Axelsson 6'1 - 01 - 17' Abdelhadi Khalok El Bouzarrari1 - 224' Jón Gísli Stefánsson1 - 345' Sigurður Pétur StefánssonGunnþór Leó Gíslason 63'2 - 3Kristján Daði Runólfsson 90'3 - 33 - 490' Kristinn Bjarni Andrason (víti)
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson

SKÝRSLAN: Blönduósingasigur í Breiðholtinu

Hvað réði úrslitum?

Þetta var jafnt í lokin. Erfitt fyrir Hvatarmenn eftir að Sergio nældi í sér í rauða spjaldið og Árbæingar refsa með tveimur mörkum. Hvöt fær svo vítaspyrnu seint í uppbótartíma seinni hálfleiks og slútta því

Bestu leikmenn

1. Jón Gísli

Frábær leikur hjá Jóni. Hljóp eins og brjálæðingur, nær stoðsendingu og marki og er verðskuldað maður leiksins.

2. Sigurður Pétur

Siggi var mjög góður og stóð sig vel eftir að Sergio fær rauða spjaldið.

Atvikið

Vítaspyrnan í blálokin á 90+guð-má-vita. Markmaður Árbæjar Ibrahima Jallow stekkur upp og kýlir Sigurð Aadnegaard í andlitið sem liggur eftir niðri. Ibrahima slapp við skrekkinn og fékk aðeins gult spjald.

Hvað þýða úrslitin?

Kormákur/Hvöt eru hér með komnir í 8-liða úrslit Fótbolta.net bikarsins sem dregið verður í á morgun kl 12.

Vondur dagur

Dómarinn var arfaslakur. Ási náði ekki miklum tökum á leiknum. Það er gefið Goran olnbogaskot í andlitið, ekkert spjald á það. Það er hlupið Dominguez niður, enginn vilji að ná boltanum þar og ekkert spjald. Síðan í lokiin fær Jallow gult fyrir það að kýla fyrrnefndan Sigurð Aadnegaard. Verður að teljast slakur leikur, en erfiður leikur þrátt fyrir það
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.