Leik lokið!
Jafntefli í baráttunni um Bauhaus!
93. mín
InnSigurpáll Melberg Pálsson
ÚtAron Jónsson
93. mín
Haraldur tekur spyrnuna inn á teiginn þar sem Gummi Magg er dæmdur brotlegur.
93. mín
Fram að fá hornspyrnu!
Seinasti sénsinn?
90. mín
+3 mínútur í uppbótartíma
88. mín
DAUÐAFÆRI!
Tryggvi kemur með boltann inn á teiginn eftir gott samspil með Má Ægissyni. Freyr nær að stela boltanum og er aleinn á auðum sjó inni á teignum kominn einn gegn Jökli. Skotið fer hinsvegar út í skóg. Þarna var hann með meiri tíma en hann hélt geri ég ráð fyrir.
87. mín
Gult spjald
Þórður Gunnar Hafþórsson
Fer oft seint í Þorra og fær réttilega gult.86. mín
InnGuðmundur Magnússon
ÚtRóbert Hauksson
86. mín
InnTryggvi Snær Geirsson
ÚtFrederico Bello Saraiva
86. mín
InnÞórður Gunnar Hafþórsson
ÚtElmar Kári Enesson Cogic
85. mín
DAUÐAFÆRI!
Langt innkast inn á teiginn sem Axel Óskar skallar á fjærstöngina þar sem Aron Jóh er. Boltinn fór yfir Viktor í markinu og Aron með markið fyrir framan sig en skallar í Framara og aftur fyrir.
80. mín
Gult spjald
Haraldur Einar Ásgrímsson
Óþarfa brot hjá Halla.78. mín
Áfram sækja Framarar
Kennie Chopart með skot sem fer rétt framhjá. Framarar miklu líklegri þessa stundina.
76. mín
InnGeorg Bjarnason
ÚtGunnar Bergmann Sigmarsson
75. mín
Rétt yfir!
Elmar Kári vinnur boltann ofarlega á vellinum og keyrir upp í skyndisókn. Hann tekur skotið rétt yfir markið við vítateigslínuna.
73. mín
Allt jafnt og þetta kveikir bara í Frömurum. Þetta verða áhugaverðar lokamínútur!
Framarar jafna!
Róbert Hauksson (stoðsending: Frederico Bello Saraiva)
Frábærlega gert hjá Frömurum. Fred fær boltann við endalínuna og kemur honum út í teiginn á Róbert Hauks sem tekur eina snertingu og klárar svo framhjá Jökli.Allt jafnt og þetta kveikir bara í Frömurum. Þetta verða áhugaverðar lokamínútur!
72. mín
Haraldur tekur spyrnuna inn á teiginn en Mosfellingar skalla frá.
71. mín
Framarar að fá hornspyrnu!
69. mín
Hárrétt
Elmar Kári Enesson Cogic
Elmar fer niður í teignum eftir að hafa farið framhjá tveimur Frömurum og það er réttilega dæmd dýfa að mínu mati.65. mín
Kennie Chopart með heiðarlega tilraun fyrir utan teiginn sem sleikir þverslána og fer rétt yfir.
62. mín
Afturelding að fá hornspyrnu
60. mín
Gult spjald
Gunnar Bergmann Sigmarsson
59. mín
Sláin!
Aron Elí með fyrirgjöf á Aron Jóh sem skallar á markið en Viktor ver í slána og Framarar hreinsa.
56. mín
Frábærlega gert hjá Hrannari!
Mosfellingar komnir yfir!
Aron Jóhannsson (stoðsending: Benjamin Stokke)
Hrannar Snær gerir stórkostlega úti vinstra meginn og kemur boltanum fyrir á Stokke. Hann tíar boltann upp fyri Aron sem klárar glæsilega framhjá Viktori og kemur Mosfellingum yfir.Frábærlega gert hjá Hrannari!
54. mín
Fram að fá hornspyrna
48. mín
Fred tekur spyrnuna inn á teiginn. Byström reyndi hjólhestarspyrnu en hann er dæmdur brotlegur.
48. mín
Framarar að fá hornspyrnu
46. mín
Seinni hafinn!
Afturelding byrjar þennan seinni hálfleik.
45. mín
InnFreyr Sigurðsson
ÚtKyle Douglas Mc Lagan
45. mín
InnJakob Byström
ÚtVuk Oskar Dimitrijevic
45. mín
Hálfleikur
Drepleiðinlegur fyrri hálfleikur
Þá er þessum tíðindalitla fyrri hálfleik lokið.
Tökum okkur korterspásu og mætum svo til baka að vörmu spori með seinni hálfleikinn.
Tökum okkur korterspásu og mætum svo til baka að vörmu spori með seinni hálfleikinn.
45. mín
+3 mínútur í uppbót
43. mín
Gult spjald
Aron Jóhannsson
Hárrétt spjald, stoppar skyndisókn sem var að byrja hjá Aftureldingu.42. mín
DAUÐAFÆRI!
Elmar Kári keyrir með boltann upp völlinn og Afturelding er komið þrír á tvo. Hann rúllar boltanum í gegn á Aron Jóh sem er einn á móti Viktori. Aron reynir að klobba Viktor en hann lokar og ver frábærlega.
39. mín
Steindautt
Það er lítið sem ekkert að frétta úr þessum leik. Mosfellingar halda meira í boltann þessa stundina, en eins og ég segi að þá er lítið sem ekkert að frétta.
32. mín
Framrar hreinsa spyrnu Elmars Kára út í innkast.
32. mín
Afturelding að fá hornspyrnu
Gunnar með skot við vítateigslínuna sem fer í varnarmann og aftur fyrir.
30. mín
Jökull heppinn aftur
Jökull sendir boltann frá sér á hættulegum stað, Tibbling keyrir af stað og reynir skot fyrir utan teiginn sem Jökull ver.
25. mín
Leikurinn hefur aðeins róast, mér finnst Framarar líklegri þó eins og er.
18. mín
Elmar Kári tekur spyrnuna inn á teiginn en Framarar verjast þessu vel.
17. mín
Afturelding að fá hornspyrnu!
13. mín
Jökull stálheppinn
Þorri Stefán gerir mjög vel á boltanum og kemur honum upp á Róbert Hauks. Róbert tekur hann framhjá Jökli í markinu en hann missir boltann of langt frá sér og boltinn fer aftur fyrir í markspyrnu.
Þarna var Jökull stálheppinn í marki Aftureldingar.
Þarna var Jökull stálheppinn í marki Aftureldingar.
8. mín
Elmar Kári tekur spyrnuna inn á teiginn sem Viktor Freyr blakar í burtu.
7. mín
Afturelding að fá hornspyrnu!
7. mín
Leikurinn fer afar rólega af stað, Framarar byrja ívið betur að mínu mati en erfitt að segja þessar upphafsmínútur.
5. mín
Svona sé ég þetta
Afturelding (4-3-3)
Jökull
Gunnar - Aron - Axel - Aron
Oliver - Bjartur
Hrannar - Aron - Elmar
Stokke
Fram (5-3-2)
Viktor
Kennie - Kyle - Sigurjón - Þorri - Haraldur
Már - Fred - Tibbling
Róbert - Vuk
Jökull
Gunnar - Aron - Axel - Aron
Oliver - Bjartur
Hrannar - Aron - Elmar
Stokke
Fram (5-3-2)
Viktor
Kennie - Kyle - Sigurjón - Þorri - Haraldur
Már - Fred - Tibbling
Róbert - Vuk
1. mín
Leikur hafinn
Það eru gestirnir úr Úlfarsárdalnum sem sparka þessu í gang hér í kvöld.
Góða skemmtun.
Góða skemmtun.
Fyrir leik
Í þriðja sinn sem liðin mætast í sumar - Fram með sigra í báðum leikjunum
Fram vann 3-0 sigur í deildarleik þessara liða í Úlfarsárdalnum í lok apríl. Kennie Chopart, Kyle McLagan og Vuk Oskar Dimitrijevic með mörkin í þeim leik. Í júní vann síðan Fram 1-0 sigur gegn Aftureldingu í 8-liða úrslitum bikarsins í júní en Freyr Sigurðsson skoraði sigurmarkið.
Fyrir leik
Styttist
Þá ganga liðin til vallar og gera sig klár í slaginn.
Fyrir leik
Markasúpa í kvöldmatinn?
Það viðrar vel í Mosó á þessu fína fimmtudagskvöldi og kjör aðstæður fyrir markaveislu. Að því sögðu er það bæði lið skora og yfir 2.5 mörk á stuðlinum 1.80 á Epic. Fyrir þá sem eru brattir þá er stuðullinn 4,00 á að bæði lið skora 2 mörk eða meira skemmtilegt.
Í leikmannaveðmálum má draga fram stuðulinn 4,00 á að Haraldur Einar fái spjald.
Í leikmannaveðmálum má draga fram stuðulinn 4,00 á að Haraldur Einar fái spjald.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi!
Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, gerir eina breytingu á sínu liði eftir jafnteflið við Breiðablik á dögunum. Enes Þór Enesson Cogic kemur úr liðinu fyrir Oliver Sigurjónsson.
Framarar gera tvær breytingar á byrjunarliði sínu eftir tapið í vítaspyrnukeppni við Vestra í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í seinasta leik. Þorri Stefán Þorbjörnsson og Már Ægisson koma inn í liðið fyrir Frey Sigurðsson og Israel Garcia Moreno.
Framarar gera tvær breytingar á byrjunarliði sínu eftir tapið í vítaspyrnukeppni við Vestra í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í seinasta leik. Þorri Stefán Þorbjörnsson og Már Ægisson koma inn í liðið fyrir Frey Sigurðsson og Israel Garcia Moreno.
Fyrir leik
Tveir Gunnarar í þriðja liðinu
Gunnar Oddur Hafliðason dæmir þennan leik í kvöld en honum til aðstoðar verða þeir Ragnar Þór Bender og Bryngeir Valdimarsson. Fjórði dómari leiksins er Gunnar Freyr Róbertsson og eftirlitsmaður KSÍ er hann Ingi Jónsson.


Fyrir leik
Framarar duttu úr bikarnum
Framarar duttu úr bikarnum eftir vítaspyrnukeppni á Ísafiðri við Vestra í undanúrslitunum. Í deildinni sitja þeir í 4. sætinu með 22 stig, 5 stigum á eftir Breiðabliki sem er í 5. sætinu. Í seinasta deildarleik Framara unnu þeir Skagamenn 1-0 á útivelli og eru með þrjá sigra og eitt jafntefli í seinustu fjórum leikjum.


Fyrir leik
Mosfellingar geta hoppað upp í efri hlutann
Með sigri í kvöld getur Afturelding komið sér upp í efri hluta deildarinnar. Þeir eru sem stendur í 8. sæti með 18 stig. Þeir gerðu í seinasta leik 2-2 jafntefli við Blika eftir að hafa lent 2-0 undir.


Fyrir leik
Sú lang Besta!
Heilir og sælir ágætu lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Aftureldingar og Fram í Bestu deildinni.








Þangað til næst, takk fyrir mig.