Fotbolti.net
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þór
Þór
Lengjudeild karla
Boginn
2 - 0
Grindavík
Grindavík
Rafael Alexandre Romao Victor 57'1 - 0Haraldur Björgvin Eysteinsson (sjm) 78'2 - 0
Dómari: Twana Khalid Ahmed

SKÝRSLAN: Það er stutt á milli í fótbolta

Hvað réði úrslitum?

Þórsarar voru með yfirhöndina og áttu þennan sigur skilið. Grindavík tókst ekki að nýta sér góða skyndisóknarmöguleika.

Bestu leikmenn

1. Yann Emmanuel Affi

Virkilega traustur í öftustu línu. Kom seint til landsins og var í basli í fyrstu leikjunum en hefur verið frábær undanfarið.

2. Aron Birkir Stefánsson

Sama má segja um Aron Birki. Hann var mjög traustur í rammanum, verið sterkur heilt yfir í sumar. Ibrahima Balde á einnig skilið að fá hrós fyrir frammistöðu sína.

Atvikið

Það er stutt á milli í fótbolta. Adam Árni Róbertsson fékk dauðafæri til að jafna metin þegar hann átti skalla sem Aron Birkir blakaði yfir. Aðeins tveimur mínútum síðar skoruðu Þórsrarar annað markið.

Hvað þýða úrslitin?

Þór stökk upp í 3. sætið um stund en endar daginn í 4. sæti með 27 stig og er bara í bullandi baráttu við toppinn. Grindavík hefur verið í brasi að undanförnu, þriðja tapið í röð og sjö töp í síðustu átta leikjum. Liðið er í 8. sæti með 14 stig, aðeins fjórum stigum fyrir ofan fallsæti.

Vondur dagur

Heilt yfir góður varnarleikur hjá Grindavík en sóknarleikurinn ekki nægilega góður. Fengu nokkur góð tækifæri til að gera eitthvað í skyndisóknum en náðu ekki að nýta sér það.

Dómarinn - 7

Flott frammistaða hjá teyminu í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.