SKÝRSLAN: Þróttur áfram á siglingu - Fylkir nálgast fallbaráttu
Hvað réði úrslitum?
Pressan hjá Þrótti réði úrslitum bókstaflega í þessum leik. Bæði mörk Þróttara komu eftir hápressu þar sem Fylkir tapaði honum á vondum stað og fengu mark í andlitið.
Bestu leikmenn
1. Hrafn Tómasson
Krummi, eins og liðsfélagar hans kalla hann, er að slá í gegn í Þróttarliðinu og er sannarlega mikil viðbót fyrir liðið í þessum glugga. Hann er ótrúlega öruggur í spilinu, veit nákvæmlega hvar hann á að vera á vellinum og hvað kemur næst. Það er hrein unun að horfa á hann spila. Hann átti einnig stóran þátt í fyrra markinu þegar hann þrýstir Tuma til að gera mistök. Óskar Hrafn var á vellinum í dag – spurningin er hvað hann er að hugsa núna þegar Jóhannes Kristinn Bjarnason er farinn. Þeir eru alls ekki ólíkir leikmenn, að minnsta kosti að mínu mati
2. Kári Kristjánsson
Nýkominn heim frá Danmörku og hefur vinstri fóturinn verið sjóðandi heitur að hans eigin sögn, og tölfræðin styður það líka. Hann skoraði fyrsta markið í leiknum með glæsilegri afgreiðslu með vinstri fætinum. Hann var sífellt ógnandi í leiknum og stóð sig frábærlega í kvöld. Villi Kaldal átti líka heiðarlega tilraun til að vera útnefndur og set ég hann sem númer 3 í dag, ef það er í lagi.
Atvikið
Þetta verður að vera sigurmarkið. Kom eftir markspyrnu af öllu, Fyrsta sendingin frá Óla fer á ískaldan Nikulás Val (sem hafði verið inná í aðeins þrjár mínútur), sem finnur fyrir pressunni og reynir að senda til baka. Það fór hins vegar þannig að sendingin fer beint á Villa Kaldal, sem þakkar fyrir sig og skorar. Þetta reyndist vera sigurmarkið
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur heldur áfram á góðri siglingu og fer upp í 3. sæti, þar sem liðið verður í það minnsta út þessa umferð. Fylkismenn gætu hins vegar dottið niður í fallsæti ef Fjölni tekst að vinna Völsung á morgun. Þrátt fyrir að hafa skipað nýjan þjálfara eru úrslitin enn óbreytt um stundarsakir. Það er alveg með ólíkindum að lið sem flestir spáðu sigri í Lengjudeildinni sé nú að lenda í fallbaráttu
Vondur dagur
Þennan dag fá þeir Tumi Fannar Gunnarsson og Eyþór Aron Wöhler 50/50. Ekki bara trúa mér fyrir því heldur skoðið fyrstu skiptingar Fylkis í leiknum á 62. mínútur þar sem þeir eru báðir teknir út af.
Tumi Fannar fann sig aldrei almennilega á miðjunni og var klárlega undir í baráttunni við Hrafn Tómasson, sem pressaði hann vel í fyrsta markinu sem Kári kláraði af miklu öryggi. Eyþór Aron sást hins vegar lítið í leiknum; ég man ekki eftir neinu sem hann gerði hér í kvöld. Sóknarfærin komu fyrst og fremst frá miðvörðum liðsins, þeim Orra og Ásgeiri, sem skoraði
Dómarinn - 7
Vel dæmdur leikur hjá Hreini og hans teymi. Helsta athugasemdin mín er sú að hann þorði ekki að reka Emil út af, þrátt fyrir að hann hafi brotið af sér tvisvar eftir að hafa fengið gult. Emil hagaði sér eins og engill í síðari, en svo fékk Ragnar Bragi rautt í uppbótartíma. Ég spyr mig hvort að Emil hafi eitthvað spilað þar inn í? Af þeim tveimur var Emil líklega sá sem gerði meira til að verðskulda rautt en Ragnar, en þetta er auðvitað matsatriði



