Fotbolti.net
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
Valur
Valur
Mjólkurbikar kvenna
N1-völlurinn Hlíðarenda
2 - 3
FH
FH
Elín Metta Jensen 2'1 - 01 - 14' Elísa Lana Sigurjónsdóttir1 - 229' Maya Lauren HansenElísa Viðarsdóttir 81'2 - 22 - 3119' Margrét Brynja Kristinsdóttir
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Dramatískar lokamínútur á Hlíðarenda

Hvað réði úrslitum?

FH vildi þetta bara aðeins meira og kláruðu leikinn á lokamínútum leiksins þegar Thelma Karen var með fyrirgjöf úr efstu hillu og Margrét Brynja gat ekki annað en skorað og tryggt FH í úrslitaleik Mjólkurbikarsins

Bestu leikmenn

1. Maya Lauren Hansen

Erfitt val í kvöld en Maya Lauren Hansen var allt í öllu sóknarlega hjá FH í kvöld, einfaldlega frábær leikmaður

2. Arna Eiríksdóttir

Mjög margar sem gera hér tilkall en Arna Eiríksdóttir fyrirliði FH er eins og herforingi í vörn FH og gerði útrúlega vel í að stjórna sínu liði. Aðrar sem klárlega gera tilkall eru Thelmurnar og Elísa Lana. Hjá Val var Fanndís sprækust

Atvikið

Gæti sett öll mörkin í þessum leik sem atvikið... En Dramatískt sigurmark FH á lokamínútum framlengingarinnar hlýtur þennan titil, held að allir hafi verið byrjaðir að spá í hvaða leikmenn færu á punktinn í vító.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða einfaldlega að FH eru komnar í úrslit í Mjólkurbikarnum en Valur situr eftir með sárt ennið.

Vondur dagur

Skrítið að setja þetta á leikmann í vinningsliðinu en Macy Elizabeth Enneking nýi markmaður FH gerir tvö mjög klaufaleg mistök í báðum mörku Vals í kvöld.

Dómarinn - 8

Vel dæmt hjá dómarateyminu í kvöld, ekkert út á það að setja
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.