SKÝRSLAN: Euro Vikes einfaldlega miklu betra lið en Vllaznia frá Albaníu
Hvað réði úrslitum?
Gæðin réðu úrslitum hér í kvöld.
Nú skal ég viðurkenna að ég er ekki alveg hlutlaus – sem Íslendingur (þó ég sé hálfur Ítali) – en jafnvel amma mín, sem horfir aldrei á fótbolta, hefði getað séð að Víkingur Reykjavík er einfaldlega mun betra lið en Vllaznia frá Albaníu.
Bestu leikmenn
1. Valdimar Þór Ingimundarson
Annar leikurinn í röð sem Valdimar er maður leiksins. Alveg eins og á móti Fram þá lagði hann upp mark á silfurfati en í þetta skipti fyrir Niko Hansen. Hann lagði líka upp það sem hefði átt að vera mark á Atla Þór Jónsson en sá skaut í slánna. Það eru einfaldlega öðruvísi gæði í fótunum á Valdimari.
Hlaupaformið hans er einnig með ólíkindum – hann var ennþá að ógna, skapa færi og valda usla langt inn í seinni víðbótartíma.
2. Gylfi Þór Sigurðsson
Sýndi gamla takta hér í kvöld og átti tvær stoðsendingar og fiskaði Esar Tafili út af með sitt annað gula spjald. Sendingarnar voru margar og glæsilegar, og leikskilningurinn – eins og svo oft áður – á allt öðru stigi en hjá flestum öðrum á vellinum.
Hann hljóp mikið, vann vel til baka og gerði í raun allt sem þú vilt sjá frá þínum leikstjórnanda.
Atvikið
Þegar gestirnir í Vllaznia jöfnuðu úr vítaspyrnu á 85. mínútu og fögnuðu eins og þeir hefðu unnið heimsmeistaramótið. En Adam var ekki lengi í paradís – það tók Víkingi aðeins eina mínútu að svara með marki.
Eftir það leið manni alltaf eins og Víkingur væri að fara klára þetta.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingur Reykjavík er komið í þriðju umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar – og þar bíður þeirra risastórt verkefni.
Danska stórliðið Brøndby, sem á sér langa og glæsilega sögu í Evrópukeppnum, er næsti andstæðingur Víkinga.
Fyrir Vllaznia frá Albaníu er þetta hins vegar búið spil.
Vondur dagur
Ensar Tafili, leikmaður Vllaznia, átti ekki góðan dag í kvöld.
Að koma inn á 62. mínútu og láta reka sig af velli með tveimur gulum spjöldum telst vart til afreka – nema þá í neikvæðum skilningi.
Það sem gerir þetta enn athyglisverðara er að dómari leiksins var sérstaklega þolinmóður; hann tók sér tíma í að ræða við leikmenn og gaf þeim oft tækifæri áður en hann dró upp spjald.
Í því samhengi verður þetta að teljast árangur út af fyrir sig.
Dómarinn - 5
Það má setja stórt spurningarmerki við öll þessi tiltöl sem leikmenn Vllaznia fengu í fyrri hálfleik – í stað þess að fá spjöld.
Sérstaklega þegar menn sparka boltanum viljandi í burtu eftir að aukaspyrna hefur verið dæmd – það er skólabókadæmi um gult spjald.
Þó er líklegt að dómarinn hafi dæmt rétt í báðum vítaspyrnum sem Vllaznia fékk.
Frammistaðan batnaði örlítið í seinni hálfleik, og þá fór dómarinn líka að grípa harðar til aðgerða – spjöldin fóru að lyftast.



