Fotbolti.net
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
KA
KA
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Greifavöllurinn
2 - 3
Silkeborg
Silkeborg
Hallgrímur Mar Steingrímsson (víti) 34'1 - 01 - 154' Tonni Adamsen1 - 262' Tonni AdamsenViðar Örn Kjartansson 85'2 - 22 - 3114' Tonni Adamsen
Dómari: Peiman Simani (Finnland)
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Hetjulegri verður baráttan ekki

Hvað réði úrslitum?

KA-menn eins og gefur að skilja voru varnarsinnaðir, upplegg sem hentar þeim vel. Eftir því sem leið á leikinn uxu KA-menn og voru að mínu mati sterkara liðið í framlengingunni. Silkeborg sköpuðu sér ekkert voðalega mikið, en Tonni litli Adamsen var því miður á skotskónum í dag. KA-menn geta þó verið stoltir að hafa tekið danskt úrvalsdeildarlið alla leið í framlengingu á Greifavellinum.

Bestu leikmenn

1. Hallgrímur Mar Steingrímsson

Hallgrímur dansaði með boltann jafn mikið og ef ekki meira, þrátt fyrir að leika gegn dönsku úrvalsdeildarliði. Gæðin sem hann býr yfir eru mögnuð.

2. Ásgeir Sigurgeirsson

Kom sterkur inn af bekknum, frábær stoðsending í seinna marki KA og var grátlega nálægt því að jafna metin í stöðunni 2-3.

Atvikið

Viðar Örn Kjartansson valdi heldur betur tímasetninguna á fyrsta marki sumarsins, jafnaði í stöðuna 2-2.

Hvað þýða úrslitin?

KA eru úr leik í Evrópu í ár.

Vondur dagur

Ekki ætla ég henda einhverjum KA-manni undir rútuna eftir þennan leik, allir frábærir. Skellur fyrir Viðar Örn að þurfa að fara af velli eftir að hafa komið inn sem varnarmaður. Nicolai Larsen, markvörður Silkeborg braut af sér þegar KA fékk vítaspyrnu. Í seinna marki KA hefði ég gert kröfu á að hann myndi ná boltanum, spurning hvort að ég sé of kröfuharður en það er annað mál.

Dómarinn - 6

Sá finnski á flautunni byrjaði brösulega, sýndist vítið sem KA fékk á sig vera hendi fyrir utan teig. Svo voru nokkrir furðulegir dómar, en hann vann sem betur fer á.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.