0. mín
Það held ég.
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá Grindavík þar sem Leiknismenn eru í heimsókn í toppslag. Leikurinn er í sjöundu umferð 1. deildarinnar.
Dómari í dag er fremsti dómari landsins, Kristinn Jakobsson.
Grindavík er í efsta sæti með 15 stig en Leiknir er með 12 stig svo búast má við hörkuleik.
Stefán Þór Pálsson, lánsmaður frá Breiðabliki, er markahæsti leikmaður Grindavíkur með sex mörk. Hann er jafnframt markahæsti leikmaður deildarinnar. Markahæstur hjá Leikni er Hilmar Árni Halldórsson með þrjú mörk en Hilmar hefur faruð á kostum á tímabilinu.
1. mín
Leikurinn er hafinn
5. mín
Vigfús Arnar Jósepsson er fjarri góðu gamni hjá Leikni vegna meiðsla. Grindavíkingar byrja þennan leik betur.
6. mín
MAAAARK!
Matthías Örn Friðriksson
Grindvíkingar komnir yfir. Hornspyrna frá Scott Ramsey sem hitti á kollinn á Matthíasi Erni Friðrikssyni sem skallað í slá og inn.12. mín
Jóhann Helgason með skot naumlega framhjá af löngu færi. Grindavík hefur átt upphafskafla leiksins með húð og hári.
18. mín
Leiknir hefur ekki náð að skapa sér færi. Heimamenn með tökin.
23. mín
Grindvíkingar líklegri til að bæta við en Leiknir að jafna. Varnarlína Leiknis í basli, sérstaklega Egill Atlason sem hefur verið langt frá sínu besta.
28. mín
Gult spjald
Ólafur Hrannar Kristjánsson
28. mín
Gult spjald
Alexander Magnússon
31. mín
Leiknir hefur náð að koma sér betur inn í leikinn og það er jafnræði úti á vellinum. Enn ekkert færi komið samt frá gestunum.
37. mín
Þvílík sókn hjá Grindavík! Varnarmenn Leiknis eru væntanlega ringlaðir eftir þetta. Jósef Kristinn lék menn sundur og saman, boltinn endaði á Scott Ramsey sem var í hörkufæri en Eyjólfur varði skot hans vel.
44. mín
Leiknir átti aukaspyrnu á ákjósanlegum stað. Hilmar Árni reyndi skot á markið en skotið slappt og yfir fór boltinn.
45. mín
Hálfleikur - Grindavík með forystuna. Byrjaði leikinn mikið mun betur og komst yfir eftir hornspyrnu. Hornspyrnur liðsins stórhættulegar. Leiknismenn hafa náð að vinna sig inn í leikinn en ekki skapað sér almennilegt færi enn sem komið er.
45. mín
Leiknismenn eru mættir út á völlinn. Hálfleiksræðan hjá Jankovic hefur verið lengri en hjá Freysa og Davíð Snorra.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn - Leiknismenn sækja í átt að Bláa lóninu.
55. mín
Seinni hálfleikur fer rosalega rólega af stað og engin færi komin.
58. mín
Leiknir hefur fengið nokkrar hornspyrnur en þær eru hver annarri lélegri. Oftast á fyrsta varnarmann.
61. mín
Leiknismenn talsvert grimmari þessa stundina. Ólafur Hrannar fékk hörkuskotfæri en hitti boltann einfaldlega ekki.
66. mín
InnAlex Freyr Hilmarsson
ÚtJuraj Grizelj
68. mín
Leiknismenn mun betri núna en vantar herslumuninn uppá til að skapa sér góð færi.
70. mín
MAAAARK!
Juraj Grizelj
Glæsilega gert hjá Grizelj, hirti boltann af Helga Óttarri Hafsteinssyni og fór framhjá fleiri Leiknismönnum áður en hann tók fallegt hnitmiðað skot í hornið.71. mín
InnSævar Freyr Alexandersson
ÚtÓlafur Hrannar Kristjánsson
74. mín
MAAAARK!
Alex Freyr Hilmarsson
Vörnin hjá Leikni alls ekki sannfærandi í þessum leik. Eftir mikið harðfylgi nær varamaðurinn Alex Freyr Hilmarsson að koma boltanum í netið.75. mín
InnPétur Örn Svansson
ÚtBrynjar Hlöðversson
75. mín
InnMagnús Björgvinsson
ÚtStefán Þór Pálsson
77. mín
MAAAARK!
Hilmar Árni Halldórsson
Óskar Pétursson hefur haft lítið að gera og hefur ekki verið með fulla einbeitingu. Hilmar Árni með skot sem virtist lítil hætta af en Óskar gerði mistök og inn fór boltinn.79. mín
MAAAARK!
Sævar Freyr Alexandersson
Hvað er í gangi?! Það er skyndilega komin þvílík spenna í þetta. Varamennirnir bjuggu til þetta mark. Pétur Örn Svansson með sendingu og Sævar Freyr skallaði knöttinn inn.80. mín
InnStefán Birgir Jóhannesson
ÚtAron Fuego Daníelsson
81. mín
InnÓli Baldur Bjarnason
ÚtScott Ramsay
86. mín
Styttist í leikslok. Er nóg eftir á tanki Leiknismanna til að jafna?
92. mín
Tíminn að hlaupa frá Leiknismönnum.
93. mín
Gult spjald
Helgi Óttarr Hafsteinsson
Virtist fyrir ansi litlar sakir.Leik lokið!
Stórskemmtilegur leikur hér í Grindavík í dag.



