0. mín
Það er flottur leikur í beinni textalýsingu klukkan 14:00. Víkingur og Leiknir eigast við í 1. deildinni.
Liðin mættust í fyrstu umferð bikarkeppninnar í ár og þá unnu Víkingar sannfærandi 2-0 sigur.
Leikurinn í dag er í sjöundu umferð deildarinnar. Haukar eru í þriðja sæti með 13 stig en Víkingur nartar í hælana með 11 stig.
Hvernig spáir Tómas Meyer á Stöð 2 Sport:
Víkingar vija sýna sig og sanna og eru komnir áfram í bikarnum og ef þeir ætla að blanda sér af alvöru í toppbaráttuna þá verða þeir að landa sigri gegn Haukum. Mín tilfinning er að strákarnir hans Óla Þórðar verða í stuði, klári þetta dæmi og það örugglega 4-1.
0. mín
Liðinn eru hér að labba inná völlinn. Leikurinn fer senn að hefjast.
0. mín
Mínútuþögn fyrir Ólaf Rafnsson sem lést langt fyrir aldur fram, í Sviss í vikunni. Bæði lið spila með sorgarbönd. Samúðarkveðjur á fjöldskyldu Ólafs og vini.
1. mín
Leikurinn er hafinn! Góða skemmtun.
3. mín
Dofri Snorrason er búinn að krúnuraka sig og skartar glæsilegum skalla hér í dag.
5. mín
Frábær sending hjá Sigurði Agli beint á kollinn á markamaskínunni Hirti Hjartar, en Hjörtur skallar boltann rétt framhjá.
6. mín
Haukar hér stálheppnir. Dofri fer illa með Hilmar Trausta og Hilmar Trausti neyðist til að brjóta. Jóhann, aðstoðardómari, dæmir aukaspyrnu - en Halldór Breiðfjörð var að fara dæma víti. Víkingar voru ekki sáttir, en fengu aukaspyrnu sem ekkert kom úr.
12. mín
Dofri Snorrason með fínt skot eftir samspil við Hirti, en skot Dofra framhjá.
19. mín
MAAAARK!
Aron Elís Þrándarson (f)
GAURINN HÆTTIR EKKI AÐ SKORA! Eftir hornspyrnu frá gullfætinum, Sigurði Agli Lárussyni, fór boltinn í slá eftir skalla Arons, en hann var fyrstur að átta sig og pikkaði honum í netið.23. mín
Aðalfærin koma eftir hornspyrnur hér í dag! Ásgeir Þór með hornspyrnu, en Kristján Ómar þrumar boltanum framhjá. Flestir Haukarar hefðu líklega verið til í að það væri eitthver annar en Kristján Ómar þarna.
27. mín
Hörkuskot hjá Dofra, en boltinn í hliðarnetið!
28. mín
InnBrynjar Benediktsson
ÚtHilmar Geir Eiðsson
Skipting. Brynjar Ben kemur inná fyrir Hilmar Geir, líklega vegna meiðsla!
29. mín
Frábær sending hjá Guðmundi Sævarssyni, en skallinn frá varamanninum Brynjari, rétt yfir markið!
32. mín
Gult spjald
Hilmar Trausti Arnarsson
Dofri var að sleppa í gegn, en var ekki með boltann og línuvörðurinn mat það svo að Hilmar hafi brotið á honum. Ekki viss um að þetta hafi verið rétt, en ég er ekki með arnaraugu, því miður.33. mín
Taskovic með fínt skot, en Sigmar er vandanum vaxinn í markinu.
34. mín
Gult spjald
Hafþór Þrastarson
Fyrir tæklingu.37. mín
Ásgeir Þór með skot, en hátt yfir markið. Haukarnir að hressast.
42. mín
Ásgeir Örn Hallgrímsson, landsliðsmaður í handbolta, er mættur hérna klæddur sem David James. Verið er að steggja Ásgeir og vinur hans úr landsliðinu, Björgvin Páll, festir þetta allt á kameru.
45. mín
Hálfleikur! Sjáumst í þeim síðari.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn.
53. mín
Gult spjald
Guðmundur Sævarsson
Fyrir að stoppa skyndisókn. Óli Þórðar gaf honum skýr skilaboð og Halldór Breiðfjörð gerði lítið annað en að hlusta.55. mín
Gult spjald
Dofri Snorrason
Fyrir brot á Hilmari Trausta.56. mín
InnGunnlaugur F. Guðmundsson
ÚtKristján Ómar Björnsson
Kristján Ómar tók sprett áðan og fékk aftan í læri.
57. mín
Kale varði frábærlega úr dauðafæri, en þar var Hilmar Rafn sem fékk færið.
60. mín
Gult spjald
Kristinn Jens Bjartmarsson
64. mín
Ótrúlegt. Aron Elís með hörkuskot sem Hafþór varði bara innan teigs, en Halldór Breiðfjörð tókst á eitthvern óskiljanlegan hátt að dæma bara aukaspyrnu. Ótrúleg dómgæsla því ég held að allir á vellinum nema dómaratríóið hafi séð að þetta var inní teig.
65. mín
Sigurður Egill með skot úr aukaspyrnunni, en Sigmar vel á verði í markinu.
66. mín
MAAAARK!
Sigurður Egill Lárusson
MARK!! Eftir klafs í teignum, fékk Sigurður Egill boltann, skaut að marki, var ekki fast, en boltinn inni! 2-0 og nú er þetta orðið erfitt fyrir hauka.67. mín
InnHjalti Már Hauksson
ÚtHalldór Smári Sigurðsson
Hjólareiðamaðurinn Hjalti er kominn inná!
72. mín
Rautt spjald
Marko Pavlov
ÞAÐ ER EKKERT ANNAÐ! Tveir fætur á lofti og Halldór kýs að fara þessa leið. Menn missammála í stúkunni og Björn Einarsson lætur Einar Guðmundsson eftirlitsmann í stúkunni vita að þetta var aldrei rautt spjald.74. mín
InnBjörgvin Stefánsson
ÚtÚlfar Hrafn Pálsson
74. mín
InnPape Mamadou Faye
ÚtHjörtur Júlíus Hjartarson
78. mín
Fín fyrirgjöf frá vinstri en skalli Andra Steins beint á markið.
83. mín
MAAAARK!
Brynjar Benediktsson
Góð fyrirgjöf, Brynjar réttur maður á réttum stað og klárar færið í stöng og inn. Allt opið!86. mín
Frábært skot hjá Brynjari Ben, en boltinn hárfínt framhjá! Fáum við jöfnunarmark?
87. mín
InnGunnar Helgi Steindórsson
ÚtSigurður Egill Lárusson
Markaskorari og stoðsending. Siggi virkilega góður í dag.
89. mín
Gult spjald
Hjalti Már Hauksson
90. mín
MAAAARK!
Brynjar Benediktsson
ÞETTA KALLAR MAÐUR ENDURKOMU! Frábær undirbúningur hjá Ásgeiri, Brynjar fékk boltann, skaut í varnarmann og þaðan fór boltinn í netið. Óvíst hvort markið verði skráð á Brynjar.Leik lokið!
Frábær endurkoma, en Víkingar geta verið hundsvekktir. Ólafur Þórðarson var brjálaður eftir leikinn og hljóp að Halldóri Breiðfjörð dómara leiksins og lét hann heyra það.


