Fotbolti.net
Einar Matthías Kristjánsson
Einar Matthías Kristjánsson
1. deildin
Selfossvöllur
Selfoss
Selfoss
2 - 2
Þróttur R.
Þróttur R.
Bernard Petrus Brons 27'1 - 0Joseph David Yoffe 45'2 - 02 - 161' Arnþór Ari Atlason 2 - 270' Sveinbjörn Jónasson
Dómari: Valdimar Pálsson
0. mín
Sælt veri fólkið. Hér verður bein textalýsing frá leik Selfyssinga og Þróttar í 1. deildinni en leikurinn hefst klukkan 14. Selfoss er í sjötta sæti með sjö stig en Þróttur er aðeins með þrjú stig og í fallsæti. Það má búast við hörkuleik. Hvernig spáir Tómas Meyer á Stöð 2 Sport: Selfyssingar eru erfiðir heim að sækja og Þróttur tekur ekkert af þeim í þessum leik. Þróttarar eru án sjálfstrausts og Heiðar Helguson ekki mættur svo þetta verður öruggur heimasigur 3-0.
1. mín
Leikur hafinn á Selfossi, Þróttarar sækja aðeins undan vindi í átt að Tíbrá fyrir þá sem þekkja til á Selfossi.
10. mín
Þróttarar öllu sterkari í byrjun og hefur Sveinbjörn komist næst því að skora en Jóhann Ólafur varði vel frá honum
15. mín
Javier Zurbano í dauðafæri, náði að taka boltann niður beint fyrir framan markið þar sem hann hafði nægan tíma en hitti boltann illa og færið rann út í sandinn.
20. mín
Þessar upphafsmínútur fara ekkert á spjöld sögunnar en Köttarar eru þó hressir í stúkunni og kalla LIFI ÞRÓTTUR
Selfoss
27. mín
MAAAARK!

Bernard Petrus Brons

Bernard Brons kemur Selfyssingum yfir með föstu skoti í bláhornið eftir að boltinn barst til hans eftir baráttu í teingum. Snyrtilega gert hjá bakverðinum þarna.
Þróttur R.
39. mín
InnAndri Björn Sigurðsson
ÚtVilhjálmur Pálmason
Þróttar gera breytingu, líklega vegna meiðsla þó það hafi farið framhjá okkur hérna í fjölmiðlaboxinu.
40. mín
Þróttarar hafa verið öllu sterkari eftir markið en gengur illa að nýta meðvindinn.
Selfoss
45. mín
MAAAARK!

Joseph David Yoffe (stoðsending: Javier Zurbano Lacalle )

Joseph Yoffe náði að skalla boltann inn eftir að Zurbano flikkaði honum áfram inn á teiginn eftir hornspyrnu frá Þorsteini Daníel.
45. mín
Hálfleikur og staðan 2-0 eftir sæmilegan fyrrii hálfleik. 2-0 er kannski heldur mikið að mati Þróttara sem hafa ekki náð að nýta færin sín.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn
Þróttur R.
46. mín
Gult spjald

Trausti Sigurbjörnsson

54. mín
Zurbano með fínt skot fyrir utan teig sem Trausti varði vel.
Selfoss
59. mín
Gult spjald

Bernard Petrus Brons

Þróttur R.
61. mín
MAAAARK!

Arnþór Ari Atlason (stoðsending: Aron Bjarnason )

Gott mark hjá Arnþóri sem stangaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Aroni.
65. mín
Víti sem Þróttarar fá
66. mín
Jóhann Ólafur las Sveinbjörn Jónasson eins og símaskránna og varði slaka spyrnu hans af öryggi.
Selfoss
69. mín
InnIngi Rafn Ingibergsson
ÚtMagnús Ingi Einarsson
Selfoss
69. mín
InnSvavar Berg Jóhannsson
ÚtÞorsteinn Daníel Þorsteinsson
Gunnar greinilega ekki sáttur við steinsofandi Selfyssinga og gerir tvöfalda skiptingu.
Þróttur R.
70. mín
MAAAARK!

Sveinbjörn Jónasson

Sveinbjörn Jónasson bætir fyrir mistökin áðan og hamrar aukaspyrnu rétt fyrir utan teig í netið. Selfyssingar eru ekki mættir til leiks í seinni hálfleik.
Þróttur R.
76. mín
Gult spjald

Guðjón Gunnarsson

Fyrir peysutog
Selfoss
78. mín
InnJuan Povedano Martinez
ÚtJavier Zurbano Lacalle
Martinez kemur inná í sínum fyrsta deildarleik fyrir Zurbano sem alls ekki góðan dag.
79. mín
Ingi Rafn í dauðafæri og náði hörku skoti sem Trausti varði vel
83. mín
Joseph Yoffe í algjöru dauðafæri eftir góðan undirbúning Selfyssinga en Trausti náði að verja frá honum. Yoffe átti að gera mikið betur þarna.
Þróttur R.
84. mín
InnAndri Gíslason
ÚtAron Bjarnason
Þróttur R.
84. mín
InnJón Konráð Guðbergsson
ÚtArnþór Ari Atlason
89. mín
Sveinbjörn Jónasson var rétt búinn að klára þennan leik eftir frábæran sprett inni á teig en skot hans silgdi framhjá línunni og í kjölfarið markinu.
94. mín
Leik lokið með sanngjörnu jafntefli. Þróttarar komu mjög sterkir til baka eftir að hafa lent 2-0 undir. Viðtöl og umfjöllun kemur seinna í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.