SKÝRSLAN: KA tók Forsetabikarinn
Hvað réði úrslitum?
Eyjamenn voru sterkari í fyrri hálfleik en KA í þeim síðari. KA voru líklegri til sigurs miðað við framgang mála í seinni hálfleik og varnaleikur ÍBV var mjög barnalegur í lok leiks sem varð til þess að KA náði inn sigurmarki. Eyjamenn spiluðu einnig einum færri síðustu 10 mínútur leiksins þegar Oliver Heiðarsson meiddist.
Bestu leikmenn
1. Hallgrímur Mar Steingrímsson
Er máttarstólpi í sóknarleik KA manna og hefur verið lengi. Á hörkuskot í stöng langt fyrir utan teig og er endalaust að leggja upp fyrir samherja sína sem náðu ekki að nýta það nægilega vel. Skorar svo auðvitað úr víti og á stóran þátt í öðru marki KA manna. Hann er einfaldlega kóngurinn í KA.
2. Vicente Valor
Hann er mótórinn í sóknarleik Eyjamanna. Skoraði stórglæsilegt mark og frábæran undirbúningi í marki Hermanns Þórs. Sýndi flotta takta inn á miðjunni.
Atvikið
Þrátt fyrir góðan leik Vicente þá var hann klaufi að brjóta af sér og gefa víti þegar Eyjamenn voru búnir að vera mun betri og KA jafna leikinn í 2-2.
Hvað þýða úrslitin?
KA vinnur Forsetabikarinn þriðja árið í röð og enda með 39 stig. KA menn byrjuðu tímabilið illa eins og flestir vita en enda tímabilið með sæmd. ÍBV endar í 9. sæti með 33 stig en geta verið ánægðir með tímabilið í heild sinni. Margir spáðu þeim niður en þeir voru aldrei nálægt.
Vondur dagur
Þrátt fyrir að hafa skorað úrslitamark leiksins þá var Birnir Snær alls ekki á skotskónum í dag. Hefði án gríns átt að gera fimm mörk í þessum leik og fór afar illa með færin sín. Dómarinn kemur einnig sterkur inn hér.
Dómarinn - 4
Bætir bara við sjö sekúndum í fyrri hálfleik þrátt fyrir fjögur mörk, nokkur meiðsli og að sjálfsögðu vítaspyrnu sem tók sinn tíma. Flautar svo fyrri hálfleikinn af þegar ÍBV er í góðri fyrirgjafastöðu. Einnig dæmir hann fullt af brotum sem ekki voru brot og fylgir því jafnvel með gulu spjaldi í kjölfarið. Oft séð hann betri. Var hann að drífa sig heim?



