SKÝRSLAN: Heimir og Björn Daníel kveðja eftir tap
Hvað réði úrslitum?
Þetta var mjög kaflaskiptur leikur. FH komst alltaf yfir fyrst en Fram náði alltaf að svara stuttu eftir á. Kristófer skoraði svo glæsilega aukaspyrnu til að koma Fram yfir í fyrsta skiptið og á loka mínútu leiksins.
Bestu leikmenn
1. Sigurður Bjartur Hallsson
Sigga var alveg svakalegur í þessum leik og skoraði þrennu. Hann var mjög nálægt því að skora 4 mörk íleiknum, en eitt mark var dæmt af vegna hendi á Sigga rétt fyrir markið. Ótrúleg frammistaða.
2. Fred Saraiva
Hann var allt í öllu hjá Fram í dag og var sterkasti aðili Framara eftir leikinn.
Atvikið
Lokamínútur leiskins voru svakalega. Þrjú mörk á seinasta korteri þar sem bæði liðin voru yfir innan við þessar 15 mínútur, svakaleg drama í þessum leik í lokinn þráttt fyrir að það sé lítið undir fyrir bæði liðin.
Hvað þýða úrslitin?
Fram fer upp fyrir FH í 5 sæti og FH dettur niður í 6. sæti deildarinnar.
Vondur dagur
Vörn bæði liða var ekki upp á sitt besta. Siggi náði allt of léttilega að komast í gegn vören Framara og Fram var með fjóra mismunandi markaskorara sem FH mátti gera betur í.
Dómarinn - 5
Pétur átti allt í lagi leik í dag. Sumar skrítnar ákvarðanir í leiknum, sétrtaklega ein þar sem han eyddi mínútu í að færa botlann nokkra millimetra þegar liðið var á sínum eigin vallarhelming. Svo var enginn uppbótartími þrátt fyrir að mikil eyðsla á tíma varð í leiknum. Ég heyrði á þjálfurum eftir á að frostið á vellinum hafði eitthvað með það að gera, en samt mjög skrítin ákvöðrun.




