Leik lokið!
Víkingar vinna lokaleikinn!
Viðtöl og fleira á leiðinni.
Þangað til næst takk fyrir mig!
90. mín
+1 mínúta í uppbótatíma
88. mín
InnBjarni Mark Antonsson
ÚtAndi Hoti
87. mín
InnAron Elís Þrándarson
ÚtGylfi Þór Sigurðsson
Aron Elís mættur til leiks!
81. mín
2108 áhorfendur í Víkinni í kvöld
78. mín
InnNikolaj Andreas Hansen
ÚtMatthías Vilhjálmsson
78. mín
InnHelgi Guðjónsson
ÚtSveinn Gísli Þorkelsson
76. mín
InnKristján Oddur Kristjánsson
ÚtMarius Lundemo
71. mín
Bannað að hafa gaman
Löggan mætt í Víkina og búið að loka fyrir bjórdælurnar.
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) October 25, 2025
Væntanlega til að bjarga mannslífum.
68. mín
InnBirkir Jakob Jónsson
ÚtJakob Franz Pálsson
68. mín
InnHörður Ingi Gunnarsson
ÚtBirkir Heimisson
67. mín
InnDaníel Hafsteinsson
ÚtPablo Oshan Punyed Dubon
Pablo að kveðja Víkina!
67. mín
InnDavíð Örn Atlason
ÚtKarl Friðleifur Gunnarsson
65. mín
Gult spjald
Róbert Orri Þorkelsson
60. mín
Gult spjald
Marius Lundemo
Fyrsta spjald leiksins. Brot á miðjum velli og líklega rétt, engin í herbúðum Vals sem kvartar.57. mín
Mér finnst Valsarar hafa byrjað þennan seinni hálfleik betur. Þeir eru mun líklegri að minnka muninn en Valur að bæta við eins og staðan er núna.
51. mín
Valsmenn í færi!
Jakob Franz með mjög skemmtilegan sprett inn á teiginn og rúllar síðan boltanum fyrir markið. Þar er Birkir Heimisson mættur á vettvang en hann rúllar boltanum framhjá.
Besta færi Vals í leiknum en þeir byrja seinni hálfleikinn vel.
50. mín
Víkingar fá horn
Gylfi tekur spyrnuna inn á teiginn sem Valsmenn ná að hreinsa frá.
47. mín
Hafliði Breiðfjörð er mættur og vopnaður myndavél









46. mín
Valsmenn koma okkur í gang á ný!
45. mín
Víkingar leiða í hálfleik
Skemmtilegur fyrri hálfliekur að baki og það eru Víkingar sem leiða.
45. mín

Kveðjumark!
Matthías Vilhjálmsson (stoðsending: Óskar Borgþórsson)
Óskar með góðan bolta inn á teiginn eftir frábæra sókn Víkinga sem Matti Vill stangar í netið. Alvöru mark í kveðjuleiknum!


41. mín
Adam Ægir í dauðafæri!
Frábær sókn hjá Valsmönnum sem vinna boltann ofarlega á vellinum. Adam Ægir sleppur einn í gegn og reynir skotið sem Ingvar ver í Adam og aftur aftur fyrir.
39. mín
Finn lykt af einu marki fyrir hálfleik öðru hvoru meginn. Sem hlutlaus aðili vonar maður að Valsmenn nái að jafna og gera einhvern leik úr þessu.
32. mín

TradeMARK!
Gylfi Þór Sigurðsson
Þetta var ekta Gylfa Sig mark. Hann er með trademark á þessari hreyfingu við vítateiginn. Vinnur boltann ofarlega á vellinum, feikar einn varnarmann og klárar frábærlega með vinstri reyndar. Geggjað mark og Víkingar leiða!



29. mín
Leikurinn hefur róast mjög mikið. Valsmenn eru að vinna sig inn í leikinn hægt og bítandi eftir nokkur afbragðsfæri sem Víkingar fengu hér í byrjun.
22. mín
Adam Ægir tekur spyrnuna inn á teiginn og það myndast mikið klafs inni á teignum áður en Víkingar ná að hreinsa frá. Sóknarpressa Valsmanna heldur áfram.
22. mín
Valsmenn fá hornspyrnu
19. mín
Hornspyrnan kemur inn á teiginn, valsarar hreinsa beint á Tarik sem tekur skotið við vítateigslínuna en boltinn endar úti í skógi.
19. mín
Óskar með fyrirgjöf inn á teiginn sem endar með góðu skoti. Stefán nær að blaka boltanum aftur fyrir.
17. mín
Stefán í veseni!
Stefán fær boltann í uppspilinu inni í markteignum og tekur alltof þunga snertingu sem fer beint á Gylfa. Hann tekur skotið í fyrsta en Stefán ver framhjá.
17. mín
Óskar gerir vel inni á teignum og tekur einn skemmtilegan snúning áður en hann tekur skotið sem fer rétt framhjá.
10. mín
Jónatan Ingi tekur spyrnuna inn á teiginn sem fer yfir allan pakkann og aftur fyrir í markspyrnu.
9. mín
Valsmenn fá hornspyrnu
9. mín
Svona sé ég þetta
Víkingur R. (4-2-3-1)
Ingvar
Kalli - Gunnar - Róbert - Gilli
Pablo - Tarik
Valdimar - Gylfi - Óskar
Matti
Valur (4-3-3)
Stefán
Orri - Hólmar - Nakkim - Jakob
Lundemo - Hoti - Birkir
Jónatan - Lúkas - Adam
7. mín
Víkingar í dauðafæri!
Kalli kemur með boltann inn á teiginn sem Matti skallar á markið en Stefán ver boltann í stöngina. Hann virtist vera að fá boltann í bakið og inn en einhvernveginn sleppa Valsmenn þarna. Gylfi fær frákastið en hittir ekki á markið.
Frábærlega varið engu að síður hjá Stefáni.
2. mín
Valdimar í færi!
Víkingar byrja miklu betur og Valdimar fær góðan séns inni á teignum sem Stefán Þór ver vel af stuttu færi.
1. mín
Íslandsmeistararnir hefja hér leik og sækja í átt að Byko.
Fyrir leik
Banter í víkinni

Fyrir leik
Bikarinn kom í Víkina með dróna





Fyrir leik
Pablo og Matti kvaddir
Fá blómvendi, skjöld og alvöru lófaklapp.
Fyrir leik
Verðlaunaafhending
Besti leikmaður tímabilsins í Bestu deildinni valinn af leikmönnum er Patrick Pedersen sem tekur við verðlaununum.
Fyrir leik
Þá ganga liðin til vallar og gera sig klár í slaginn. Valsmenn standa að sjálfsögðu heiðursvörðinn og það eru engir smá fánar á lofti hér í Víkinni.
Fyrir leik
Markaleikur í kortunum og eitthvað segir mér að Lúkas Logi skori í dag en stuðullinn á hann er 5.00 hjá Epic og er ansi girnilegur
Fyrir leik
Kæru Víkingar. Hér er byrjunarlið Íslandsmeistara Víkings gegn Val. pic.twitter.com/UreLWnaUlX
— Víkingur (@vikingurfc) October 25, 2025
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Víkingar gera þrjár breytingar á sínu liði eftir sigurinn á Breiðablik í seinustu umferð. Sveinn Gísli Þorkelsson, Pablo Punyed, Róbert Orri Þorkelsson og Matthías Vilhjálmsson koma inn í liðið fyrir þá Oliver Ekroth, Helga Guðjónsson, Atli Þór Jónasson og Viktor Örlyg Andrason.
Valsmenn gera þrjár breytingar á sínu liði eftir 4-4 jafnteflið gegn FH í síðustu umferð. Lúkas Logi Heimisson, Orri Sigurður Ómarsson og Andi Hoti koma í liðið fyrir Sigurð Egil Lárusson, Albin Skoglund og Tryggva Hrafn Haraldsson.
Sigurður Egill Lárusson hefur því spilað sinn seinasta leik fyrir Val á ferlinum. En einnig vekur athygli að Valsmenn eru með 7 á bekknum en ekki 9.
Fyrir leik
Hér má sjá lið ársins í Bestu deild karla 2025

Fyrir leik
Búið að velja besta þjálfarann
Sölvi Geir Ottesen er að skila titli í Víkina og var valinn besti þjálfarinn af .net.
Fyrir leik
Dómarateymið
Aðaldómari leiksins er töframaðurinn Helgi Mikael Jónasson. Honum til halds og trausts eru Egill Guðvarður Guðlaugsson og Eysteinn Hrafnkelsson. Varadómari leiskins er Guðmundur Páll Friðbertsson. Eftirlitsmðaur frá KSÍ er Frosti Viðar Markússon.

Fyrir leik
Kveðjuleikir
24.10.25 14:10
Pablo kveður Víking á morgun - Sex stórir titlar á fimm árum
Fyrir leik
Verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Víkingsvelli en Víkingur mun hampa titlinum hér í dag.











