„Okkur var spáð 9. sætinu af flestum í fyrra þannig að þetta er framför," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, er Fótbolti.net fékk viðbrögð frá honum við spánni fyrir Bestu deildina. Fram er spáð áttunda sætinu.
„Vissulega gerðum við svo betur og vonandi gerum við það bara aftur."
„Vissulega gerðum við svo betur og vonandi gerum við það bara aftur."
Góðir og miður góðir leikir
Rúnar segir að veturinn og undirbúningstímabilið hjá Fram hafi verið sveiflukennt.
„Veturinn er búinn að vera sveiflukenndur. Góðir og miður góðir leikir en eins og flest lið held ég eru menn að reyna nýja hluti og dreifa spiltíma þannig að allir fái sín tækifæri. Úrslit leikja ekki alltaf aðalatriðið en auðvitað viltu sjá stíganda og bætingu hjá liðinu þegar nær dregur móti," segir Rúnar.
Hvernig er staðan á leikmannahópnum?
„Leikmannahópurinn er nokkuð þéttur og ég er mjög sáttur við hann. Erum búnir að fá inn þrjá nýja menn í Sigurjóni, Bjarna Pál og Atla Jónasar og vonandi bætist Ægir Jarl við fljótlega. Annars erum við alltaf með augu og eyru opin ef eitthvað spennandi býðst en eins og staðan er núna á ég ekki von á fleiri leikmönnum."
Verður áfram fyrsta markmið okkar
Síðasta tímabil var nokkuð fínt hjá Fram en liðið tók skref fram á við og endaði í fimmta sæti Bestu deildarinnar.
„Síðasta tímabil var mjög gott heilt yfir, auðvitað vill maður meira en markmiðið var að komast í efri hlutann sem tókst og 5. sætið var eitthvað sem engin spáði fyrir um. Við féllum út í vítaspyrnukeppni í undanúrslitum bikarsins þannig að heilt yfir erum við þokkalega sáttir," segir Rúnar.
„Sem þjálfari villtu alltaf sjá bætingu á milli ára, og efri hlutinn verður áfram fyrsta markmið okkar."
Eitthvað að lokum?
„Skilaboðin til stuðningsmanna okkar er bara þakklæti fyrir stuðninginn sem við höfum fengið. Það er okkar að sýna fram á skemmtilega leiki til að fá fólki á völlinn og við munum reyna allt okkar. En hingað til hafa okkar stuðningsmenn stutt okkur í blíðu og stríðu."
Athugasemdir



