Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
   fös 03. apríl 2026 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Það er viðurkenning að fá slíka spá"
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkinga.gh
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkinga.gh
Mynd: Víkingur - Hörður Ágústsson
Víkingum er spáð Íslandsmeistaratitlinum.
Víkingum er spáð Íslandsmeistaratitlinum.
Mynd: Víkingur - Hörður Ágústsson
Sölvi er á leið inn í sitt annað tímabil sem aðalþjálfari Víkinga.
Sölvi er á leið inn í sitt annað tímabil sem aðalþjálfari Víkinga.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er viðurkenning að fá slíka spá, en hún skiptir okkur ekki máli," segir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, sem spáð er efsta sæti Bestu deildarinnar í spá Fótbolta.net fyrir komandi keppnistímabil. Þeir fengu fullt hús í spánni.

„Við vitum nákvæmlega hvað þarf til að vinna þessa deild – og það er stöðug frammistaða, agi og hungur í hverjum einasta leik. Við munum fá bestu útgáfu af öllum liðum gegn okkur og það er eitthvað sem við tökum fagnandi."

Enginn fær neitt gefins
Veturinn hefur verið sterkur hjá Víkingum og þeir mæta tilbúnir til leiks.

„Veturinn hefur verið sterkur. Við höfum lyft okkur bæði líkamlega og taktískt og byggt beint ofan á það sem skilaði árangri síðasta sumar. Hópurinn er á góðum stað og tilbúinn í það sem framundan er," segir Sölvi.

Hópurinn er ótrúlega öflugur og vel mannaður.

„Ég er mjög ánægður með hópinn. Það er skýr samkeppni á öllum stöðum og góð blanda af reynslu og hungri. Enginn fær neitt gefins hér – menn þurfa að vinna fyrir sínu á hverjum einasta degi."

Við byrjum aftur á núlli
Eins og flestir vita, þá endurheimtu Víkingar Íslandsmeistaratitilinn í fyrra. Hvernig horfir Sölvi til baka á síðasta tímabil?

„Með stolti – en líka með skýra sýn. Þetta var árangur sem byggðist á vinnu, aga og sterkri liðsheild. En það er búið. Við byrjum aftur á núlli og vitum að ekkert af því sem við gerðum í fyrra vinnur leiki fyrir okkur í dag," segir Sölvi.

Það þarf varla að spyrja um markmiðin hjá Víkingum fyrir sumarið.

„Markmiðin eru einföld: Vera áfram besta liðið og keppa um alla titla. Það fylgir því ábyrgð að vera í þessari stöðu – og við ætlum að mæta henni af fullum krafti. Við þurfum að vera betri en í fyrra, annars nærðu ekki að halda þér á toppnum."

Einhver skilaboð til stuðningsmanna að lokum?

„Stuðningurinn skiptir okkur miklu máli – og við finnum hann alltaf. Við ætlum að gefa allt í þetta og standa undir þeim væntingum sem fylgja þessu merki. En þetta gerum við saman," sagði Sölvi að lokum.
Slapp
banner