Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
Besta karla
Víkingur R.
LL 3
2
Stjarnan
Besta karla
Valur
LL 3
0
FH
Besta karla
Þór
LL 1
0
Fram
Þór
1
0
Fram
Sebastian Heimvik Haugland '49 1-0
23.04.2026  -  17:00
VÍS völlurinn
Besta karla
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Maður leiksins: Yann Emmanuel Affi (Þór)
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f)
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
5. Yann Emmanuel Affi
7. Atli Sigurjónsson ('63)
8. Einar Freyr Halldórsson ('89)
9. Sebastian Heimvik Haugland ('63)
11. Isaac Atanga ('63)
15. Kristófer Kristjánsson
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
18. Sverrir Páll Ingason
25. Christian Greko Jakobsen ('81)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
28. Franko Lalic (m)
4. Hermann Helgi Rúnarsson
10. Aron Ingi Magnússon ('81)
17. Fannar Daði Malmquist Gíslason
22. Ágúst Eðvald Hlynsson ('63)
23. Ingimar Arnar Kristjánsson ('63)
30. Peter Ingi Helgason
31. Kristófer Kató Friðriksson ('89)
37. Sigfús Fannar Gunnarsson ('63)

Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Arnar Geir Halldórsson
Halldór Mar Einarsson
Stefán Ingi Jóhannsson
Eiður Benedikt Eiríksson

Gul spjöld:
Isaac Atanga ('61)

Rauð spjöld:
@saebjornth Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skýrslan: Fyrsta markið á fyrsta sumardegi í fyrsta leik á nýjum velli
Hvað réði úrslitum?
Hjartað og viljinn sigldu þessu í höfn hjá Þór. Heimamenn þurftu að þjást stóran hluta seinni hálfleiksins á nýja gervigrasvellinum sínum og tókst að koma í veg fyrir mark frá gestunum. Nóg fengu Framarar af sénsum til að skora og skapa en inn vildi boltinn ekki.
Bestu leikmenn
1. Yann Emmanuel Affi (Þór)
Sá átti leik í dag, komst fyrir ófáar tilraunir gestanna og var eins og klettur í hjarta varnarinnar hjá Þór. Með óreyndari menn í kringum sig en fór fyrir þeim eins og stríðsmaður.
2. Sebastian Haugland (Þór)
Það er eiginlega glæpur að velja ekki Aron Birki eftir frábæra vörslu hans en sigurmarkið verður ofan á. Frábært fyrsta mark hjá Norðmanninum Sebastian Haugland sem gerði það sem engum öðrum tókst á vellinum; að koma boltanum í netið. Það voru margar góðar frammistöður hjá Þór sem hægt væri að nefna en Haugland fær valið hér. Fred fannst mér bestur hjá Fram, heimamenn áttu í erfiðleikum með að klukka hann í seinni hálfleiknum.
Atvikið
Sigurmarkið fær þetta box, Greko fann Haugland hægra megin við D-bogann á vítateig Fram og norski framherjinn smellhitti boltann sem flaug yfir Viktor Frey í marki Þórs. Frábært fyrsta mark á nýja vellinum.
Hvað þýða úrslitin?
Frábær fyrsti sumardagur fyrir Þórsara, nýr völlur, glampandi sól og sex stig komin af níu mögulegum. Þór mætir næst Breiðabliki á útivelli. Framarar geta tekið það með sér að þeir spiluðu vel þegar þeir voru í leit að marki og á öðrum degi hefðu þeir vafalaust skorað fleiri en ekkert. Framarar taka næst á móti ÍBV á mánudag.
Vondur dagur
Enginn leikmaður sem átti eitthvað slæman leik, klassíska væri að henda í færanýtingu Framara, sú var ekki góð. Kyle McLagan átt lélega sendingu í aðdraganda marksins hjá Þór og fær hann því þetta box.
Dómarinn - 8
Mér fannst Gunnar Freyr með góða stjórn á leiknum og dæmdi leikinn heilt yfir vel.
Byrjunarlið:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson ('64)
5. Kyle McLagan ('79)
8. Haraldur Einar Ásgrímsson
12. Simon Tibbling
17. Atli Þór Jónasson ('64)
18. Ægir Jarl Jónasson
19. Kennie Chopart (f)
25. Freyr Sigurðsson ('46)
26. Sigurjón Rúnarsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Sigurjón Daði Harðarson
7. Kristófer Konráðsson ('79)
10. Fred Saraiva ('46)
14. Bjarni Páll Linnet Runólfsson
15. Jakob Byström ('64)
16. Israel Garcia ('64)
23. Már Ægisson

Liðsstjórn:
Rúnar Kristinsson (Þ)
Helgi Sigurðsson
Magnús Þorsteinsson
Einar Haraldsson
Sævar Halldórsson
Guðmundur Gígjar Sigurbjörnsson
Kristján Finnbogi Finnbogason

Gul spjöld:
Kyle McLagan ('57)
Ægir Jarl Jónasson ('90)

Rauð spjöld: