Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fim 23. apríl 2026 10:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
Powerade
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Slúðurpakki dagsins er kominn í hús. Andoni Iraola og Cesc Fabregas eru orðaðir við stjórastarfið hjá Chelsa. Marcus Rashford, Alisson, Bruno Fernandes, Nicolas Jackson og fleiri koma einnig við sögu í pakkanum.

PSG hefur haft samband við umboðsmenn Mateus Fernandes, 21, miðjumann West Ham. (Foot Mercato)

Chelsea er að skrifa óskalista af mögulegum arftökum Liam Rosenior en Andoni Iraola, sem yfirgefur Bournemouth eftir tímabilið, er á listanum. (RMC Sport)

Chelsea horfir til Cesc Fabregas, stjóra ítalska félagsins Como og fyrrum leikmanns Chelsea. (Football Insider)

Barcelona vill að Marcus Rashford, 28, verði áfram á láni hjá félaginu á næstu leiktíð í stað þess að borga 26 milljónir punda til að kaupa enska sóknarmanninn. (MIrror)

Liverpool, Chelsea, Tottenham, Aston Villa og Newcastle hafa sýnt James Trafford, 23, markverði Man City, áhuga. (Goal)

Man Utd hefur tjáð Bruno Fernandes, 31, að félagið vilji halda honum á Old Trafford. (Sun)

Sunderland gæti rekið Regis Le Bris eftir tímabilið ef liðinu mistekst að tryggja sér Evrópusæti. (Talksport)

Bayern Munchen er að íhuga að framlengja lánssamning Nicolas Jackson, 24, frá Chelsea, eftir tímabilið. (Florian Plettenberg)

Barcelona er að skoða nokkra sóknarmenn en Bernardo Silva, 31, leikmaður Man City og Pedro Neto, 26, leikmaður Chelsea eru þar á meðal. (Mundo Deportivo)

Juventus vill fá markvörð í sumar en Alisson, markvörður Liverpool og brasilíska landsliðsins, er efstur á óskalistanum. (Fabrizio Romano)

Man Utd fylgist með Alex Scott, 22, miðjumanni Bournemouth. (MIrror)

United hefur einnig áhuga á Richard Rios, 25, miðjumanni Benfica. (Caught Offside9

Bournemouth hefur blandað sér í baráttuna um Malik Tillman, 23, leikmann Leverkusen. (Teamtalk)

Fulham er að skoða neyðaráætlanir ef knattspyrnustjórinn Marco Silva ákveður að fara þegar samningur hans rennur út í lok tímabilsins. (The I)

Arsenal fylgist með gangi mála hjá Arda Guler, 21, en hann gæti freistast til að frá Real Madrid vegna óvissu um framtíð stjórans Alvaro Arbeloa. (Caught Offside)
Slapp
banner
banner
banner