Fotbolti.net
Besta deildin
Tryggvi Guðmundsson
Besta karla
Hásteinsvöllur
ÍBV
ÍBV
1 - 2
Breiðablik
Breiðablik
Liam Daði Jeffs 1'1 - 01 - 121' Kristófer Ingi Kristinsson1 - 258' Viktor Karl Einarsson
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Leik lokið!
1-2 sigur Breiðablik
Blikar vinna sanngjarnan 1-2 sigur. Voru með yfirhöndina nánast frá 15 mínútu leiksins. Eyjamenn áttu a?ætis rispur en eru enn án sigurs í deildinni.

Viðtöl og skýrsla kemur seinna í dag.
93. mín
Síðasti séns að jafna fyrir Eyjamenn
ÍBV fær aukaspyrnu á fínum stað, úti vinstra megin já hornfánanum. Höskuldur braut á Viggó.
92. mín
ÍBV fær hornspyrnu
Viggó með sendingu inn á Milan sem æætlar að skalla boltann fyrir en þar er engin hvít treyja. Blikar setja boltann aftur fyrir.
Breiðablik
91. mín
Gult spjald

Kristinn Steindórsson

Brýtur á Bjarka Birni.
90. mín
+3 í uppbótartíma.
89. mín
Eyjamenn komast ekkert áleiðis og eru nánast bara að spila boltanum í sínum eigin vítateig.
Breiðablik
88. mín
InnArnar Bjarki Gunnleifsson
ÚtÁgúst Orri Þorsteinsson
Breiðablik
88. mín
InnValgeir Valgeirsson
ÚtKristófer Ingi Kristinsson
85. mín
Blikar í sókn. Sigurður Arnar missir boltann klaufalega og Ágúst Orri kemur boltanum á Aron sem keyrir inn á teiginn. Hann kemur með boltann en hann fer í gegnum allan pakkann.
ÍBV
83. mín
Gult spjald

Milan Jezdemirovic

ÍBV
81. mín
Gult spjald

Arnar Breki Gunnarsson

81. mín
Arnar Breki með fyrirgjöf frá vinstri en Anton Ari grípur boltann.
ÍBV
80. mín
InnMilan Jezdemirovic
ÚtFelix Örn Friðriksson
ÍBV
80. mín
InnArnar Breki Gunnarsson
ÚtVicente Rafael Valor Martínez
75. mín
Kristinn fær boltann inn á teig frá Aroni Bjarna og nær fínasta skoti á nær en Ari ver frá honum og Eyjamenn koma boltanum í burtu.
Breiðablik
74. mín
InnKristinn Steindórsson
ÚtViktor Karl Einarsson
73. mín
Liam fyrirgjöf inn á teig en Arnór Ingi hittir ekki boltann. Hann fær svo boltann aftur og setur boltann aftur fyrir á Sigurð Arnar sem nær skallanum en hann er laus og Anton Ari grípur boltann.
71. mín
LIAM Í FÆRI
Arnór Ingi kom með mjög góðan bolta inn á markteig Blika og Liam reynir að kassa boltann inn en Anton Ari gerir vel og sér við honum.
68. mín
Vicente með góða fyrirgjöf inn á teig Blika ætlaðða Liam en Blikar ná að koma boltanum í burtu.
ÍBV
66. mín
InnViggó Valgeirsson
ÚtSesar Örn Harðarson
66. mín
Fínt spil hjá Eyjamönnum. Róbert fær boltann inn á teignum og kemur með fína fyrirgjöf með jörðinni en enginn Eyjamaður nálægt. Blikar koma boltanum í burtu.
Breiðablik
64. mín
Gult spjald

Óli Valur Ómarsson

Fyrir peysutog á Pisco.
61. mín
BLIKAR BJARGA Á LÍNU
Róbert tók hornið og boltinn barst á Pisco sem tók skotið í fyrsta en Anton Ari bjargar.
61. mín
ÍBV fær hornspyrnu.
ÍBV
60. mín
InnBjarki Björn Gunnarsson
ÚtHalldór Jón Sigurður Þórðarson
Breiðablik
60. mín
InnAron Bjarnason
ÚtAnton Logi Lúðvíksson
Breiðablik
58. mín
BLIKAR LEIÐA!

Viktor Karl Einarsson (stoðsending: Kristófer Ingi Kristinsson)

Anton Logi kom með sendingu fyrir inn á teig ÍBV. Kristófer Ingi skallar boltann fyrir Viktor Karl sem setur boltann framhjá Ara í marki ÍBV. Blikar leiða sanngjarnt 2-1, hafa sótt mikið hér í síðari hálfleik.
ÍBV
57. mín
Gult spjald

Arnór Ingi Kristinsson

57. mín
Vel spilað hjá Eyjamönnum. Pisco skiptir boltnum yfir á Sesar sem kemur með fyrirgjöf á fjær á Halldór Jón en flaggið fór á loft
56. mín
Algjör einstefna eins og staðan er núna. Blikar sækja og sækja.
55. mín
Blikar vildu víti
Kristófer Ingi prjónar sig í gegnum marga leikmenn ÍBV og fellur svo við inn á teignum og Blikar vilja víti. Virtist ekki vera mikið.
54. mín
Höskuldur með fyrirgjöf en Eyjamenn setja boltann aftur fyrir og Blikar fá annað horn. Lélegt horn frá Viktor Karli og Eyjamenn hreinsa.
52. mín
Blikar fá hornspynu
Blikar bruna upp í sókn tveir á tvo. Ágúst Orri er kominn inn á teiginn en Pisco með flottan varnarleik og nær að bjarga á ögurstundu í horn.
51. mín
ÍBV fær aukaspyrnu ofarlega á vellinum hægra megin. Hendi dæmd.
49. mín
Hætta á teig ÍBV
Kom fyrirgjöf frá hægri og Ágúst Orri fær boltann og tekur skotið en það er í varnarmann og í burtu.
47. mín
Sesar með fyrirgjöf inn á teig Blika. Róbert Elís með skallann en auðvelt fyrir Anton Ara sem grípur boltann.
ÍBV
46. mín
InnVitor Hugo Cruz Rocha
ÚtMilan Tomic
ÍBV með eina breytingu í hálfleik
45. mín
Seinni háfleikur hafinn
Leikurinn farinn af stað aftur.
45. mín
Hálfleikstölfræði (frá Sýn)
Marktilraunir: 9-2
Skot á mark: 3-1
Með boltann: 32% - 68%
Heppnaðar sendingar: 89-226
45. mín
XB

Sturluð staðreynd: Framsókn í Kópavogi hefur setið í meirihluta í sveitafélaginu í 54 ár af síðustu 64 árum og á þ.a.l. ansi stóran þátt í í að gera Kópavog að framúrskarandi sveitafélag og íþróttaaðastaðan í Kópavoginum ber þess merki.
XB


- Auglýsing -
45. mín
Innkastið verður í beinni á X977 í kvöld klukkan 21
Mynd: Fótbolti.net

Innkastið verður í beinni útsendingu á X977 í kvöld sunnudag klukkan 21:00 en þar verða leikir fimmtu umferðar Bestu deildarinnar gerðir upp.

Þetta verður í fyrsta sinn sem hlaðvarpsþátturinn Innkastið verður sendur út í beinni útsendingu Stefnan er sú að þátturinn verði framvegis af og til í beinni útvarpsútsendingu á X-inu, þegar vel liggur á. Það verður þá auglýst sérstaklega hér á síðunni.

Í hljóðveri verða Elvar Geir Magnússon og Valur Gunnarsson. Sérstakur gestur er Almarr Ormarsson.
45. mín
Hálfleikur
Jafnt í hálfleik
Eyjamenn byrjuðu betur og skoruðu strax á fyrstu mínútu leiksins. Blikar tóku hálfpartinn yfir leikinn upp úr 15-20 mínútnu og jöfnuðu með fínu marki. Eyjamenn áttu samt sem áður nokkra ágætis kafla og fín færi.
45. mín
Róbert Elís fær boltann á vítateigslínunni eftir aukaspyrnuna en skotið er frekar slapt og Anton Ari grípur boltann.
45. mín
ÍBV fær aukaspyrnu. Bakhrinding á Liam. Ívar Örn fær svo tiltal líklega síðasti séns hjá honum.
45. mín
Óli Valur með sendingu í gegn en Höskuldur nær ekki til boltans.
44. mín
Blikar með langa sókn sem endar á því að Óli Valur fær boltann frá Ágústi Orra. Óli Valur nær svo ekki að halda boltanum inná.
41. mín
Blikar fá horn
Frábærlega spilað hjá blikum. Óli Valur og Viktor Karl spila upp hægri kantinn, endar á að Viktor Karl kemur með fyrirgjöf en Eyjamenn setja boltann afturfyrir.
38. mín
Liam setur góða pressu á Anton Ara sem fékk boltann frá Ásgeir Helga til baka en Anton nær að koma boltanum í burtu.
36. mín
Blikar fá aukaspyrnu alveg á endalínunni hægra megin. Slök spyrna hjá Viktoru og Tomic setur boltann í innkast.
35. mín
Blikar frá horn
Kristófer kemur boltanum á Ágúst Orra sem reynir að komast framhjá Felix inn á teignum en Felix hreinsar í horn.
34. mín
Milan Tomic með sendingu í gegn á Liam Daði. Liam kemur sér í færi en skotið hans er í hlliðarnetið inn á markteig úr þröngu færi.
33. mín
Vicente með skemmtilega tilraun, reynir að vippa boltanum inn fyrir á Halldór jón en Ívar Örn kemur boltanum í burtu.
31. mín
Róbert Elís fékk boltann fyrir utan teig Blika og tekur skotið enn það er yfir markið.
30. mín
Ágætis færi hjá ÍBV
Frábærlega gert hjá Arnóni Inga, brunar upp allan völlinn og kemur boltanum á Sesar sem er á vinstri vængum. Sesar köttar inn og kemur með fast skot en það er beint á Anton Ari sem slær boltann í burtu.
Breiðablik
27. mín
Gult spjald

Ívar Örn Árnason

26. mín
Óli Valur fær boltann frá vítateigboganum og Sigurður Arnar bjargar nánast á línu. Milan kemur svo boltanum í burtu.
25. mín
Blikar fá hornspyrnu.
24. mín
Viktor fær boltann frá Óla Val og er upp við endalínu. Hann nær fyrirgjöf en boltinn í hliðarnetið.
ÍBV
23. mín
Gult spjald

Milan Tomic

Braut á Andri Yeoman á miðjum vellinum.
Breiðablik
21. mín
1-1!

Kristófer Ingi Kristinsson (stoðsending: Davíð Ingvarsson )

Blikarnir búnir að jafna leikinn. Höskuldur kom með sendinguna á Davíð sem náði fyrirgjöf inn á markteiginn og Kristófer ekki í vandræðum með að klára í markið með skalla.
19. mín
Liam gerir vel hjá ÍBV. Fær langa sendingu fram og tekur hann með sér. Ætlar svo að koma með sendingu fyrir markið á Róbert en Ívar Orri nær að setja tánna í boltann svo Róbert nær ekki til boltans.
17. mín
Óli Valur kemur með fyrirgjöf en hún er frekar máttlaus og Eyjamenn ná að koma boltanum í burtu.
14. mín
Góð sókn hjá Eyjamönnum
Vicente gerir vel og nær góðu spili með Róbert Elís. Vicente fær svo boltann út vinstra megin og kemur með fyrirgjöf en Liam nær ekki til boltans og Blikar ná að hreinsa.
12. mín
Felix kom með fyrirgjöf en Blikar ná að skalla boltann í burtu. Sigurður Arnar fær boltann og tekur skot utan af velli en það er hátt yfir markið.
10. mín
Felix með skot yfir markið
ÍBV fær aukaspyrnu á fínum stað. Blikarnir náðu að koma boltanum í burtu og Felix fær hann fyrir utan teig. Hann tekur hann viðstöðulaust og boltinn rétt fyrir markið. Fínasta tilraun hjá Felix þarna.
8. mín
Breiðablik fær hornspyrnu. Ekki góð spryna hjá Viktori Karli, sem fer beint aftur fyrir.
7. mín
Ágúst Orri með fínan sprett upp hægra megin og reynir að setja boltann fyrir en Milan Tomic gerir vel og kemur boltanum í burtu.
5. mín
Ágúst Orri reynir að koma boltanum á Kristófer inn á teig með fyrirgjöf en hún er of löng og fer aftur fyrir.
2. mín
Vicente með skot yfir markið eftir hornspyrnu.
ÍBV
1. mín
LIAM KEMUR ÍBV YFIR!! ANTON MEÐ HRÆÐILEG MISTÖK!

Liam Daði Jeffs (stoðsending: Róbert Elís Hlynsson)

Eyjamenn eru komnir yfir eftir aðeins 14 sekúndur. Anton Ari markvörður Blika fær boltann og hangir aðeins og lengi á honum og Liam Daði setur pressu á hann inn í markteig. Boltinn berst á Róbert Elís sem rennir boltanum fyrir markið og Liam setur boltann í markið. Fyrsta mark Liams í efstu deild!
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað.

Eyjamenn hefja leik og leika í átt að Herjólfsdal.
Fyrir leik
Linta skiptir um markvörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyjamenn gera markvarðaskipti frá 5-1 tapinu gegn Fram. Færeyingurinn Ari i Haraldstovu Petersen sem kom frá KÍ Klaksvík í vetur ver markið en Marcel Zapytowski er bekkjaður.

Aleksander Linta þjálfari ÍBV gerir alls fjórar breytingar en Liam Daði Jeffs, Halldór Jón Sigurður Þórðarson og Vicente Valor koma allir inn í byrjunarliðið.

Bjarki Björn Gunnarsson, Viggó Valgeirsson og Milan Jezdemirovic setjast á bekkinn.
Fyrir leik
Höskuldur snýr aftur eftir veikindi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðabliksliðið var ferjað til Vestmannaeyja með þyrlu en Ólafur Ingi Skúlason gerir tvær breytingar. Fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson var ekki með gegn Þór vegna veikinda en hann og Anton Logi Lúðvíksson koma inn í byrjunarliðið. Valgeir Valgeirsson og Kristinn Steindórsson setjast á bekkinn.
Fyrir leik
Gísli Gotti spáir í leikinn
ÍBV 0-3 Breiðablik
Blikarnir taka þennan leik frekar auðveldlega held ég. Ólafur Ingi er að fara gera góða hluti á þessu tímabili með Blikana og Ágúst Orri og Ásgeir Helgi munu eiga rosalegan leik í Eyjum.

Fyrir leik
Þyrluferð
Samgöngumálin hér í Vestmannaeyjum hafa verið mikið til umræðu en Breiðablik ákvað að notast við óvenjulegan ferðamáta til að komast til og frá leik dagsins.

   30.04.2026 16:59
Breiðablik í þyrluflugi til og frá Vestmannaeyja
Fyrir leik
Sjálfstraustið ekki mikið
   28.04.2026 13:16
Löng heimferð hjá Eyjamönnum - „Er ekki týpan sem gefst upp"


„Eins og þú veist líklega þá er ég svekktur með úrslitin. Engum líkar að tapa," sagði Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, í samtali við Fótbolta.net. Lið ÍBV var á hraðferð í bátinn eftir tap gegn Fram í Bestu deildinni í síðustu umferð og því náðist ekki að taka viðtal við Linta beint eftir leik. Þess vegna var tekið á það ráð að hringja til Vestmannaeyja og kanna stöðuna eftir leikinn.

„En ef ég horfi á leikinn sjálfan finnst mér niðurstaðan aðeins of stór miðað við hvernig leikurinn þróaðist. 5-1 er kannski harðari niðurstaða en leikurinn gaf tilefni til," segir Linta en ÍBV tapaði 5-1 fyrir Fram. ÍBV hefur tapað stórt í tveimur leikjum í röð.

„Við erum á þeim stað núna að sjálfstraustið er ekki mikið og þegar það er þannig þá gera menn mistök. Við fengum á okkur mörk of auðveldlega og svo fáum við mark snemma í seinni hálfleik, sem gerir þetta enn erfiðara."

„Á köflum fannst mér við vera í lagi. Við eigum samt að gefa Fram fullt hrós, þeir áttu sigurinn skilið. En ég vil líka hrósa mínum leikmönnum, við vorum að reyna allan tímann. Þrátt fyrir að tapa 5-1 gáfumst við aldrei upp. Það vantar nokkra leikmenn en það er engin afsökun."

Sjálfstraustið er ekki mikið hjá Eyjamönnum þessa stundina. „Við áttum erfiðan leik á undan og það hefur áhrif. Svo byrjarðu leikinn gegn Fram og færð á þig mark snemma, og svo aftur strax í upphafi seinni hálfleiks. Það hjálpar okkur ekki. Við þurfum eitthvað jákvætt til að byggja upp sjálfstraust til að halda sömu orku og trú í gegnum leikinn."

Ekki sambærilegir leikir
Eyjamenn hafa fengið á sig ellefu mörk í síðustu tveimur leikjum og útlitið ekki gott. Er einhver pressa farin að segja til sín?

„Sjálfstraustið er aðeins lágt sem er eðlilegt. En þessir tveir leikir eru ekki sambærilegir. Á móti KR áttum við skilið að tapa, þeir voru miklu betri. Ég fann ekki það sama í leiknum gegn Fram. Niðurstaðan var sú sama en við spiluðum ekki eins illa. Við áttum líka okkar kafla og hefðum getað skorað fleiri mörk í gær," sagði Linta.

„Við reyndum að byggja aðeins upp sjálfstraust eftir síðasta leik, æfingarnar voru góðar og undirbúningurinn góður. En þegar þú ert brothættur og færð á þig mark snemma, þá verður þetta erfitt. Mistök koma stundum af ótta við að gera mistök, og það er hluti af þessu."

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
„Geggjað verkefni og alltaf gaman að fara til Eyja"
   27.04.2026 22:26
Ólafur Ingi: Einhver narratíva þarna úti sem við erum ekki sammála


Breiðablik er ósigrað í Bestu deildinni en liðið vann 4-0 sigur gegn nýliðum Þórs í fjórðu umferðinni. Fyrir leikinn hafði umfjöllunin snúist svolítið um bitlausan sóknarleik Blika og að leikmenn væru ekki að sýna sínar bestu hliðar fram á við.

„Það hefur verið narrativea þarna úti sem við höfum ekkert verið sammála. Vitum að við erum með frábæra fótbolta menn í öllum stöðum og rúmlega það. Er ánægður fyrir hönd strákana að við náðum að sýna okkar rétta andlit," sagði Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Blika, eftir leikinn.

Þó að liðið hafi haldið hreinu þurfti Anton Ari markvörður Blika heldur betur að standa sig en hann hefur verið einn besti leikmaður tímabilsins.

„Anton bjargaði okkur í dag. Við vorum heppnir að lenda ekki undir í dag. Við erum mjög ánægðir með það að halda hreinu þriðja leikinn í röð."

„Geggjað verkefni og alltaf gaman að fara til Eyja," sagði Ólafur þegar hann var spurður út í komandi verkefni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómari: ÞÞÞ
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórður Þorsteinsson Þórðarson er dómari leiksins og hans aðstoðarmenn eru Gylfi Már Sigurðsson, Jovan Subic og Stefán Ragnar Guðlaugsson.
Fyrir leik
Velkomin til Vestmannaeyja!
Mynd: ÍBV

ÍBV og Breiðablik mætast á Hásteinsvelli í 5. umferð Bestu deildarinnar. Leikurinn hefst 16:00.

sunnudagur 3. maí
16:00 ÍBV-Breiðablik (Hásteinsvöllur)
16:00 Stjarnan-ÍA (Samsungvöllurinn)
18:00 Keflavík-Víkingur R. (HS Orku völlurinn)
18:00 FH-Fram (Kaplakrikavöllur)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.