Fjórðu umferð Bestu Deildar Karla lauk með leikjum í kvöld. Breiðablik fékk Þór í heimsókn á Kópavogsvelli. Leiknum lauk með 4-0 sigri Blika.
Breiðablik eru ennþá taplausir og þriðji leikurinn í röð þar sem liðið heldur hreinu. Ólafur Ingi var til taks eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Breiðablik 4 - 0 Þór
Fyrir leik liðsins hafði umfjöllunin snúist svolítið um bitlausan sóknarleik liðsins og að leikmenn væru ekki að sýna sínar bestu hliðar fram á við.
„Það hefur verið narrativea þarna úti sem við höfum ekkert verið sammála. Vitum að við erum með frábæra fótbolta menn í öllum stöðum og rúmlega það. Er ánægður fyrir hönd strákana að við náðum að sýna okkar rétta andlit."
Þó að liðið hafi haldið hreinu þurfti Anton Ari markvörður Blika heldur betur að standa sig í dag.
„Anton bjargaði okkur í dag. Við vorum heppnir að lenda ekki undir í dag. VIð erum mjög ánægðir með það að halda hreinu þriðja leikinn í röð."
Einnig hefur verið fjallað um að það vanti sóknarmann í Breiðabliksliðið. Fjórir markaskorar voru í dag og um málið hafði Ólafur Ingi þetta að segja: „Erum ánægðir með hópinn, vitum hvað við höfum hérna og tal utan hópsins truflar okkur ekki neitt. Við sjáum gæðin á hverjum degi á æfingasvæðinu og vitum og treystum að hópurinn kemur til með að skila mörkum, það er klárt."
Framundan hjá Blikum er leikur í Eyjum gegn ÍBV þann 3.maí.
„Geggjað verkefni og alltaf gaman að fara til Eyja."
Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.























