Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 13:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Viðtal
Löng heimferð hjá Eyjamönnum - „Er ekki týpan sem gefst upp"
Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV.
Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV tapaði 5-1 gegn Fram í gær.
ÍBV tapaði 5-1 gegn Fram í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunin hjá Eyjamönnum hefur verið erfið.
Byrjunin hjá Eyjamönnum hefur verið erfið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV fagnar marki.
ÍBV fagnar marki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Linta tók við ÍBV í vetur.
Linta tók við ÍBV í vetur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Eins og þú veist líklega þá er ég svekktur með úrslitin. Engum líkar að tapa," sagði Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, í samtali við Fótbolta.net í dag. Lið ÍBV var á hraðferð í bátinn eftir tap gegn Fram í Bestu deildinni í gær og því náðist ekki að taka viðtal við Linta beint eftir leik. Þess vegna var tekið á það ráð að hringja til Vestmannaeyja í dag og kanna stöðuna eftir leikinn.

„En ef ég horfi á leikinn sjálfan finnst mér niðurstaðan aðeins of stór miðað við hvernig leikurinn þróaðist. 5-1 er kannski harðari niðurstaða en leikurinn gaf tilefni til," segir Linta.

ÍBV hefur tapað stórt í tveimur leikjum í röð, fyrst 6-2 gegn KR á heimavelli og svo 5-1 gegn Fram í gær.

„Við erum á þeim stað núna að sjálfstraustið er ekki mikið og þegar það er þannig þá gera menn mistök. Við fengum á okkur mörk of auðveldlega og svo fáum við mark snemma í seinni hálfleik, sem gerir þetta enn erfiðara."

„Á köflum fannst mér við vera í lagi. Við eigum samt að gefa Fram fullt hrós, þeir áttu sigurinn skilið. En ég vil líka hrósa mínum leikmönnum, við vorum að reyna allan tímann. Þrátt fyrir að tapa 5-1 gáfumst við aldrei upp. Það vantar nokkra leikmenn en það er engin afsökun."

Sjálfstraustið er ekki mikið hjá Eyjamönnum þessa stundina. „Við áttum erfiðan leik á undan og það hefur áhrif. Svo byrjarðu leikinn gegn Fram og færð á þig mark snemma, og svo aftur strax í upphafi seinni hálfleiks. Það hjálpar okkur ekki. Við þurfum eitthvað jákvætt til að byggja upp sjálfstraust til að halda sömu orku og trú í gegnum leikinn."

Heimferðin löng og erfið
Heimferðin var ekki auðveld fyrir Eyjamenn út af veðrinu í gær. Siglt var frá Þorlákshöfn og var erfitt í sjóinn.

„Heimferðin var löng, um fimm og hálfur tími. Það er erfitt, sérstaklega eftir svona leik. Strákarnir eru líklega mjög þreyttir og orkulausir. En svona er þetta bara, við búum á eyju og þetta er hluti af því. Veðrið hafði áhrif og það var eitthvað að bátnum svo hann fór hægar en venjulega. Við komum heim um tvöleytið og ferðin var ansi óþægileg. En við verðum bara að komast yfir það. Við æfum aftur í dag," segir Linta og bætir við: „Ég er ekki týpan sem gefst upp. Ég hætti ekki auðveldlega og ég vil að mínir leikmenn hafi það hugarfar. Þeir hafa það í sér. Kannski vantar okkur aðeins sjálfstraust og trú á eigin getu eins og staðan er núna, en við munum vinna í því og bæta okkur á þeim sviðum."

Dagurinn var mjög langur fyrir Eyjamenn. „Já, mjög langur. Við fórum af stað snemma morguns og vorum í fjóra tíma á leiðinni, stoppuðum á Hótel Örk í mat og fund, og fórum svo beint í leikinn. Eftir leikinn þurftum við að flýta okkur beint í bátinn, fengum bara 10-15 mínútur í sturtu. Þetta var mjög langur dagur, og enn lengri eftir svona úrslit."

Ekki sambærilegir leikir
Eyjamenn hafa fengið á sig ellefu mörk í síðustu tveimur leikjum og útlitið ekki gott. Er einhver pressa farin að segja til sín?

„Sjálfstraustið er aðeins lágt sem er eðlilegt. En þessir tveir leikir eru ekki sambærilegir. Á móti KR áttum við skilið að tapa, þeir voru miklu betri. Ég fann ekki það sama í leiknum gegn Fram. Niðurstaðan var sú sama en við spiluðum ekki eins illa. Við áttum líka okkar kafla og hefðum getað skorað fleiri mörk í gær," sagði Linta.

„Við reyndum að byggja aðeins upp sjálfstraust eftir síðasta leik, æfingarnar voru góðar og undirbúningurinn góður. En þegar þú ert brothættur og færð á þig mark snemma, þá verður þetta erfitt. Mistök koma stundum af ótta við að gera mistök, og það er hluti af þessu."

Stjórnin að vinna í því
Félagaskiptaglugginn lokar á morgun og eru Eyjamenn að skoða í kringum sig.

„Já, stjórnin er að vinna í því. Allir eru að leggja sitt af mörkum til að bæta liðið, leikmenn, þjálfarar og stjórn. Ég hef trú á því að við gætum fengið einhverja leikmenn áður en glugginn lokar," segir Linta sem segir íslenskan fótbolta sterkan. Hann sneri aftur hingað í vetur eftir að hafa spilað hér um árabil sem leikmaður með ÍA, Víkingi Ólafsvík, KA, Þór og Grundafirði.

„Ég hef sagt það áður, íslenskur fótbolti er góður og fólk gerir sér kannski ekki alveg grein fyrir því. Gæðin eru mikil, tempóið hátt, leikmennirnir góðir og þjálfararnir líka. Liðin hafa flest skýran leikstíl og handbragð þjálfara sést. Aðstaðan er frábær og ég hef eiginlega ekkert nema jákvætt að segja. Íslenskur fótbolti er á góðum stað og þið ættuð að vera stolt af honum," sagði Linta að lokum en hann vonast til að byggja upp sjálfstraust hjá sínu liði og það fari að sækja stig á næstunni.
Slapp
banner
banner
banner