Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 16:59
Elvar Geir Magnússon
Heimild: 433.is 
Breiðablik í þyrluflugi til og frá Vestmannaeyjum
Þyrla mun ferja lið Breiðabliks til og frá leiknum.
Þyrla mun ferja lið Breiðabliks til og frá leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV og Breiðablik mætast í Bestu deildinni á sunnudag en lið Breiðabliks mun notast við óvenjulegan ferðamáta til að komast til Vestmannaeyja.

433.is greinir frá því að þyrla muni ferja leikmenn og starfsmenn Breiðabliks frá Bakka í Landeyjum og yfir til Eyja. Búist sé við að það þurfi fimm til sex ferðir til að koma öllum yfir.

Samgöngumál til og frá Vestmannaeyja hafa mikið verið til umfjöllunar en Herjólfur hefur verið að sigla frá Þorlákshöfn og tekur siglingin að minnsta kosti þrjá tíma. Breiðablik hefur því ákveðið að notast við þjónustu þyrlu.

Heimferðin fyrir lið ÍBV eftir tapið gegn Fram í síðustu umferð var ekki auðveld fyrir Eyjamenn.

„Heimferðin var löng, um fimm og hálfur tími. Það er erfitt, sérstaklega eftir svona leik. Strákarnir eru líklega mjög þreyttir og orkulausir. En svona er þetta bara, við búum á eyju og þetta er hluti af því," sagði Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, í samtali við Fótbolta.net í vikunni.

Komandi umferð í Bestu deildinni:

laugardagur 2. maí
16:00 Þór-KA (VÍS völlurinn)
19:15 Valur-KR (N1-völlurinn Hlíðarenda)

sunnudagur 3. maí
16:00 Stjarnan-ÍA (Samsungvöllurinn)
18:00 Keflavík-Víkingur R. (HS Orku völlurinn)
18:00 ÍBV-Breiðablik (Hásteinsvöllur)
18:00 FH-Fram (Kaplakrikavöllur)
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 4 4 0 0 18 - 8 +10 12
2.    Víkingur R. 4 3 1 0 10 - 3 +7 10
3.    Valur 4 3 0 1 10 - 5 +5 9
4.    Breiðablik 4 2 2 0 6 - 1 +5 8
5.    Fram 4 2 1 1 11 - 6 +5 7
6.    Stjarnan 4 2 0 2 10 - 11 -1 6
7.    Þór 4 2 0 2 5 - 10 -5 6
8.    Keflavík 4 1 1 2 5 - 7 -2 4
9.    ÍA 4 0 2 2 4 - 9 -5 2
10.    KA 4 0 1 3 4 - 8 -4 1
11.    FH 4 0 1 3 5 - 11 -6 1
12.    ÍBV 4 0 1 3 5 - 14 -9 1
Slapp
banner
banner