SKÝRSLAN: FH stöðvuðu loks nýliðana í Krikanum
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í dag myndi ég segja gæðin og breiddin hjá FH fyrst og fremst. Þær eru ótrúlega vel spilandi lið og hafa þá breidd í liðinu að það er verið að nota skiptingarnar til að létta á álaginu og liðið riðlast ekkert við það, þar koma gæðin. ÍBV hins vegar það sést langar leiðir að þær eru þreyttar eftir stífa dagskrá í byrjun móts og breiddin er engin.
Bestu leikmenn
1. Ingibjörg Magnúsdóttir
Átti frábæran leik í dag, átti fyrirgjöfina sem leiddi að fyrsta markinu og nældi svo í vítið. Hún er að sýna svo mikinn stöðuleika hjá FH og bara hefur ekki stigið feilspor. Sú er að springa út.
2. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
Steig vel upp í dag í fyrirliðastöðuna og stóð sig með mikilli prýði. Hún er frábær inn á miðjunni hjá FH. Lunkin að finna góðar sendingar og síðan er hún frábær spyrnumaður.
Atvikið
2 atvik í fyrri hálfleik þegar ÍBV þurfti að skipta út tveimur byrjunarliðsmönnum vegna meiðsla. Fyrst datt Allison Lowrey út og svo hræðileg meiðsl hjá Emblu sem var ekki gott að horfa á.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að FH tekur stigin þrjú og saxar á forskotið sem ÍBV hafði fyrir leikinn og munar nú aðeins 2 stigum á liðinum. ÍBV ennþá með 12 stig en FH komnar upp í 10 stig.
Vondur dagur
Það átti enginn slæman leik í dag en þetta var virkilega vondur dagur hjá Emblu sem meiddist mjög illa í fyrri hálfleik á hné og brunað beint með hana í sjúkrabíl. Ég sendi alla góðu straumana til hennar
Dómarinn - 7
Mér fannst Bergrós og hennar teymi flott í dag, liðin voru alve vel pirruð þarna í fyrri hálfleik en hún hélt línunni vel báðu megin og var ekkert að flauta að óþörfu. Leyfi leiknum að fljóta vel og hárrétt dæmt víti.



