SKÝRSLAN: Víkingur átti ekki séns í seinni
Hvað réði úrslitum?
Þróttur voru bara miklu betri aðilinn í þessum leik og sérstaklega seinni hálfleik. Þær kláruðu færin sín mjög vel og vörðust einnig mjög vel.
Bestu leikmenn
1. Sigríður Theód. Guðmundsdóttir
Sigríður skoraði 2 góð mörk í dag og lét heldur betur hafa fyrir sér í dag, hún er kominn með 4 mörk í deildinni og er markahæðst með Allison Grace.
2. Mist Funadóttir
Var mjög dugleg bæði varnar og sóknarlega í þessum leik! Lagði upp annað markið og Víkingar réðu lítið við hana.
Atvikið
Þegar Guðmundur Páll dæmdi óbein aukaspyrnu, ég sá ekki snertingu en það gæti vel verið að Emma hafi potað boltanum til Mollee og hafi þá verið rétt ákvörðun en ef þetta var röng ákvörðun þá hefði þetta geta orðið dýrt því Víkingar skoruðu úr þessu.
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur R. fer upp í 4.sætið með 9 stig á meðan Víkingur R. sitja í 6.sæti með 6 stig og -4 í markatölu
Vondur dagur
Víkingur Reykjavík í seinni hálfleik voru frekar slakar. Þær spiluðu betur í fyrri hálfleik en Þróttur keyrðu yfir þær í seinni hálfleiknum og Víkingur fékk varla færi í seinni hálfleik þannig gef öllu Víkings liðinu þetta í seinni hálfleiknum.
Mér heyrðist Ronnarong Wongmahadthai fjórði dómari ekki vera standa sig eitthvað svakalega vel á hliðarlínunni klúðraði skiptingu fyrir Víkinga og menn voru oft ósáttir út í hann.
Dómarinn - 5
Hann var bara þokkalegur var stundum skrýtin lína með hagnað og þannig en spjöldin voru öll rétt hjá honum að mínu mati. Ég gef honum 5 ef óbeinið er vitlaus dómur hjá honum en ef hann var með það rétt þá fær hann svona 7 í einkunn.



