SKÝRSLAN: Fram sótti fyrsta stigið á Hlíðarenda
Hvað réði úrslitum?
Leikurinn var frekar tíðindalítill. Þegar liðin komust í góðar stöður vantaði upp á gæðin sóknarlega. Það vantaði mögulega upp á sjálfstraust og líklegt að gangur mótsins hingað til hafi haft áhrif á bæði lið.
Bestu leikmenn
1. Tinna Brá Magnúsdóttir.
Tinna var mjög örugg í öllum sínum aðgerðum. Hún sá tvisvar sinnum við Taylor Marie, meðal annars þegar sú síðarnefnda slapp ein í gegn.
2. Taylor Marie Hamlett
Taylor var góð í þessum leik þrátt fyrir að Framliðið hafi ekki skorað. Framherjinn var mikilvægur í uppspili Framara og náði að dreyfa spilinu vel þegar hún fékk boltann. Hún nýtti ekki færin sín í dag en líkleg til þess að vera á skotskónum á næstunni.
Atvikið
Brookelynn Paige á frábæra sendingu í gegn á Taylor Hamlett. Sú síðarnefnda er ein gegn Tinnu Brá sem að ver skot Taylors frábæralega. Þetta var besta færi leiksins og Tinna bjargaði mögulega Valskonum stigi.
Hvað þýða úrslitin?
Jafnteflið bindur enda á taphrinur beggja liða í deildinni. Valur situr enn í 8. sæti og er nú með fjögur stig á meðan Fram vermir botnsætið en nær í sitt fyrsta stig.
Vondur dagur
Það er mjög erfitt að segja að einhver hafi átt vondan dag. Það voru engin einstaklingsmistök og engin leikmaður út á velli sem spilaði sérstaklega illa. Arnfríður Auður fór útaf í hálfleik en spilamennska hennar var þó kraftmikil og fín í fyrri hálfleik .
Dómarinn - 6
Brynjar dæmdi leikinn mjög vel fyrstu 75 mínútur leiksins. Eftir það var nokkrum sinnum dæmt brot fyrir litlar sakir. Það bitnaði á hvorugu liðinu og Brynjar getur gengið sáttur frá borði.



