Fotbolti.net
Besta deildin
Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Besta kvenna
JBÓ völlurinn
Sól og sumar!
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík
1 - 1
Stjarnan
Stjarnan
Lily Anna Farkas 10'1 - 01 - 191' Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson

SKÝRSLAN: Afmælisbarnið kom til bjargar í uppbótartíma

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn byrjaði af krafti og leit út fyrir að ætla að verða hin mesta skemmtun. Grindavík/Njarðvík kemst yfir með góðu marki en leikurinn svolítið dempast niður eftir það. Taktísk skák kalla gárungar þetta en eftir því sem leið á leikinn fór Stjarnan að hóta jöfnunarmarkinu sem á endanum kom í uppbótartíma og vel hægt að kalla þetta nokkuð sanngjarnt stig á hvort lið heilt yfir.

Bestu leikmenn

1. Lily Anna Farkas (Grindavík/Njarðvík)

Var stöðugt að ógna og skoraði svo mark Gri/Nja í leiknum. Fannst hún alltaf líkleg til þess að gera eitthvað þegar hún komst í snertingu við boltann.

2. Bridgette Nicole Skiba (Stjarnan)

Hélt Stjörnunni inni í leiknum framan af. Átti góðar vörslur þegar Gri/Nja herjaði á þær í fyrri hálfleik.

Atvikið

Markið hjá Ingibjörgu Lúcíu sem jafnar leikinn. Stjarnan hafði verið að banka all hressilega og náðu svo inn jöfnunarmarkinu í uppbótatíma eftir horn þegar boltinn dettur fyrir utan teig og Ingibjörg Lúcía á skot í gegnum allan pakkann sem endar í fjærhorninu.

Hvað þýða úrslitin?

Bæði lið skipta með sér stigum og halda sínum sætum. Gri/Nja eru áfram í 5. sætinu og Stjarnan eru áfram í 7. sæti.

Vondur dagur

Erfitt að ætla henda einhverjum undir rútuna hérna. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir var nálægt því ef þær hefðu tapað en hún fékk góðar stöður í leiknum sem voru ekki að detta fyrir gestina sem hefði geta verið meira dýrkeypt ef þær hefðu ekki náð inn jöfnunarmarkinu. Ef og hefði...

Dómarinn - 7

Teymið var allt í lagi í dag. Ekkert í þeirra frammistöðu sem hægt er að setja mikið út á.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.