Fotbolti.net
Besta deildin
Guðmundur Jónasson
Besta kvenna
Víkingsvöllur
Frábært veður, sól og blíða
Víkingur R.
Víkingur R.
1 - 4
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 130' Sigríður Theód. GuðmundsdóttirJasmín Erla Ingadóttir 35'1 - 11 - 254' Sigríður Theód. Guðmundsdóttir1 - 380' Brynja Rán Knudsen1 - 494' Þórdís Nanna Ágústsdóttir
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Leik lokið!
Þróttur miklu betri í seinni hálfleik
Skemmtilegum leik lokið og Þróttarar vinna hér 1-4 sigur í víkinni! Skýrsla kemur inn eftir smástund
Þróttur R.
94. mín
1-4!!!!

Þórdís Nanna Ágústsdóttir

Þórdís stelur boltanum af Þórdísi Hrönn og er komin ein í gegn og klárar þetta vel í fjærhornið!
93. mín
Bjarga á línu!!!!
Þróttara með hornspyrnu sem þær ná að skalla í átt að marki en Víkingar bjarga á línu!
90. mín
Þróttur fær hornspyrnu
89. mín
María Eva teku skot lengst fyrir utan teiginn og boltinn fer rétt framhjá
87. mín
Lítið að gerast Þróttarar bara sigla þessu heim
Þróttur R.
84. mín
InnBjörg Gunnlaugsdóttir
ÚtUnnur Dóra Bergsdóttir
Þróttur R.
84. mín
InnÞórdís Nanna Ágústsdóttir
ÚtSigríður Theód. Guðmundsdóttir
Sigríður nær ekki þrennunni í dag en var frábær í þessum leik
Víkingur R.
81. mín
InnElísa Birta Káradóttir
ÚtJóhanna Elín Halldórsdóttir
Þróttur R.
80. mín
Þróttur að klára þetta?

Brynja Rán Knudsen

Elizabeth Grace nær að kýla boltann frá en hann fer beint á Brynju sem tekur hann í fyrsta og boltinn fer í gegnum pakkann og endar í netinu! Þróttur leiðir 1-3
79. mín
Þróttur fær hornspyrnu
76. mín
Víkingur fær aukaspyrnu á fínum stað, boltinn kemur inn í og Þróttarar koma þessu í hornspyrnu
74. mín
Madison Ditta með skot fyrir utan teig en skotið er yfir markið
Víkingur R.
73. mín
Gult spjald

Anika Jóna Jónsdóttir

Unnur fer framhjá Aniku og er við það að sleppa í gegn þegar Anika rífur í hana. Verskuldað gult spjald
70. mín
Víkingar fá hornspyrnu
Víkingur R.
67. mín
InnÞórdís Hrönn Sigfúsdóttir
ÚtBergdís Sveinsdóttir
Bergdís öflug í dag
67. mín
Sýnist Bergdís setjast niður eftir að fá högg á öklann og hún þarf aðstoð
Víkingur R.
63. mín
InnDagný Rún Pétursdóttir
ÚtHelena Ósk Hálfdánardóttir
61. mín
Brynja með skot á vítateigslínunni en það fer hátt yfir markið
60. mín
Bergdís fær boltann út í teiginn og klippir boltann en fer beint í varnarmann
Þróttur R.
59. mín
InnMadison Jeanne Ditta
ÚtÞórdís Elva Ágústsdóttir
Þróttur R.
59. mín
InnMaría Eva Eyjólfsdóttir
ÚtKristrún Ýr Holm
Þróttur R.
54. mín
Þróttur komnar aftur yfir í víkinni!!!

Sigríður Theód. Guðmundsdóttir (stoðsending: Mist Funadóttir )

Sigríður fær boltann út í teiginn frá Mist og gerir mjög vel með því að taka góða hraðabreytingu framhjá varnarmanni Víkings og klárar þetta virkilega vel og er komin með 2 mörk í dag! Þróttara leiða aftur
52. mín
Bergdís Sveinsdóttir með flottann bolta innfyrir á Jóhönnu sem var að sleppa í gegn en er flögguð rangstæð
48. mín
Unnur með hættulegan bolta inn á teiginn en það kemst engin í boltann og hann rúllar í gegnum teiginn
47. mín
Mist Funadóttir með fyrirgjöf á Unni Dóru sem tekur erfitt skot sem fer beint á Elizabeth
Víkingur R.
46. mín
InnAnika Jóna Jónsdóttir
ÚtFreyja Stefánsdóttir
Víkingur R.
46. mín
InnArna Ísold Stefánsdóttir
ÚtÍsfold Marý Sigtryggsdóttir
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Seinni hálfleikur er farinn af stað Þróttur byrja hann
45. mín
1-1 í hálfleik
Skemmtilegum fyrri hálfleik lokið, 2 mörk og slatti af hálffærum ásamt því að það var dæmd óbein aukaspyrna
45. mín
+1
Uppbótartími er ein mínúta
44. mín
Liðin svona skiptast bara á að sækja og halda boltanum en engin færi eftir markið
Víkingur R.
35. mín
1-1!!!! Þær jafna

Jasmín Erla Ingadóttir

Þetta var dýr óbein aukaspyrna! Jasmín sendir á Bergdísi sem á skot í vegginn og boltinn ratar aftur á Jasmínu sem á skot á markið sem Mollee Swift missir eiginlega inn. Það er allt jafnt aftur
34. mín
Óbein aukaspyrna!
Óbein aukaspyrna dæmd á Þróttara ég hélt það hafi verið sending af miðjunni en svo var ekki og ég hef enga hugmynd afhverju Guðmundur nafni minn dæmdi á þetta. Emma Steinsen hlýtur að hafa potað eitthvað smá í boltann því það voru engin mótmæli
33. mín
Freyja Stefánsdóttir komin í gegn og kemur sér framfyrir varnarmanninn en missir aðeins af boltanum og Þróttarar koma þessu frá
Þróttur R.
30. mín
0-1!!! Þróttarar leiða í víkinni

Sigríður Theód. Guðmundsdóttir (stoðsending: Unnur Dóra Bergsdóttir)

Unnur Dóra leggur boltann upp fyrir Sigríði sem skellir þessum bolta upp í nær hornið og gerir sitt 3 mark á tímabilinu! Óverjandi fyrir Elizabeth Grace í markinu. Þróttur 1 Víkingur 0
26. mín
Sigríður fær boltann inn í teig en á skot beint í varnarmann Víkings
25. mín
Þórdís Elva með laust skot lengst fyrir utan teig sem rúllar á mitt markið beint á Elizabeth
23. mín
Geggjuð varsla!
Bergdís Sveinsdóttir er úti vinstra megin og tekur boltann inn á völlinn og hleður í geggjað skot sem Mollee Swift ver frábærlega í hornspyrnu¨
18. mín
Jasmín Erla vinnur boltann á miðjunni af Emmu Steinsen og keyrir upp völlinn, tekur svo skot á vítateigslínunni sem fer rétt framhjá markinu
Þróttur R.
14. mín
InnBrynja Rán Knudsen
ÚtKayla Marie Rollins
Líklegast eitthvað meidd en tók ekki eftir neinu sem gerðist
14. mín
STÖNGIN!!!
Þórdís Elva með misheppnað skot sem fer á Sigríði sem nær að stýra boltanum í átt að marki og boltinn endar í stönginni!
9. mín
Ísfold missir boltann á slæmum stað og Þórdís Elva vinnur boltann kemur honum á Sigríði Guðmundsdóttur sem á skot í varnarmann og boltinn fer í innkast
6. mín
Ísfold Marý tekur Kaylu Marie niður eftir að hún vann boltann og kom sér upp völlinn. Þróttur fá aukaspyrnu sem Víkingar koma í burtu
4. mín
Engin færi í byrjun leiks en bæði lið komin með fyrirgjafir sem fara í gegnum allann pakkann
1. mín
Þetta er farið af stað!
Víkingar sparka þessu í gang
Fyrir leik
Þetta fer að fara af stað
Liðin að labba inn á völlinn og gera sig tilbúnar
Fyrir leik
Markahæðstar
Jasmín Erla og Freyja Stefánsdóttir eru markahæðstar í Víkingsliðinu með 2 mörk

Sigríður Theód. Guðmundsdóttir er markahæðst hjá Þrótturum einnig með 2 mörk

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Byrjunarlið
Víkingur R. gera 2 breytingar á sínu liði frá síðasta deildarleik gegn Fram þar sem þær unnu 0-1, Ísfold Marý Sigtryggsdóttir og Emma Steinsen Jónsdóttir koma inn í liðið fyrir Aniku Jónu Jónsdóttur og Örnu Ísold Stefánsdóttur.

Þróttur R. gera einnig 2 breytingar á sínu liði frá síðasta deildarleik sem þær töpuðu 1-2 á heimavelli gegn Grindavík/Njarðvík, Unnur Dóra Bergsdóttir og Kristrún Ýr Holm koma inn í liðið fyrir Álfhildi Rósu Kjartansdóttur og Maríu Evu Eyjólfsdóttur.
Fyrir leik
Spáin
Mist Rúnarsdóttir, sérfræðingur í kvennaboltanum, spáir í leiki kvöldsins.

Víkingur R. 1 - 2 Þróttur R. (19:15 í kvöld)
Annar ótrúlega erfiður leikur að lesa í og væntanlega hnífjafn. Liðin hafa bæði átt slatta inni í deildarleikjunum sínum og spurning hvenær þetta fari að smella almennilega. Ég sé fyrir mér að þetta fari með minnsta mun og set sigurinn á uppeldisfélagið svo mér verði ekki afneitað í dalnum. Gæðablóðið Bergdís Sveins skorar screamer beint úr aukaspyrnu eins og henni er lagið og heldur þannig upp á nýjan samning. Unnur Dóra laumar sér á fjær einhverntímann í seinni hálfleik og jafnar með góðu skoti áður en að Kayla Rollins setur skallamark.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Fyrir leik
5. umferðin
Öll umferðin er spiluð í dag
5. umferðin lítur þá svona út:

Í dag:
18:00 FH-ÍBV
18:30 Þór/KA-Breiðablik
19:15 Víkingur R.-Þróttur R.
19:15 Valur-Fram
19:15 Grindavík/Njarðvík-Stjarnan

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið
Aðaldómari í dag er Guðmundur Páll Friðbertsson honum til aðstoðar eru Ragnar Arelíus Sveinsson og Tryggvi Elías Hermannsson.

Fjórði dómari er Ronnarong Wongmahadthai og eftirlitsmaður er Þorsteinn Ólafs.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leikdagur
Komiði sæl og velkomin í þessa beinu textalýsingu á leik Víkings og Þróttar á Víkingsvelli í 5. umferð Bestu deildar kvenna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.