Fotbolti.net
Besta deildin
Tryggvi Guðmundsson
Besta karla
Hásteinsvöllur
Flott fótboltaveður. Smá austanátt.
ÍBV
ÍBV
6 - 1
Keflavík
Keflavík
Róbert Elís Hlynsson 14'1 - 0Halldór Jón Sigurður Þórðarson 39'2 - 0Alex Freyr Hilmarsson 49'3 - 0Milan Tomic 52'4 - 04 - 161' Muhamed AlghoulRóbert Elís Hlynsson 67'5 - 1Omar Sowe 85'6 - 1
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Leik lokið!
Fyrsti sigur ÍBV í hús
Eyjamenn vinna mjög sannfærandi 6-1 sigur á Keflavík og sinn fyrsta sigur í sumar.

Viðtöl og skýrsla koma síðar!
90. mín
+1 í uppbótartíma.
88. mín
Omar nálægt því að sleppa einn í gegn eftir frábæran sprett en Ásgeir Orri kemur út úr markinu og kemur boltanum útaf.
Keflavík
87. mín
Gult spjald

Sindri Snær Magnússon

ÍBV
87. mín
InnHeiðmar Þór Magnússon
ÚtRóbert Elís Hlynsson
ÍBV
87. mín
InnEmil Gautason
ÚtBjarki Björn Gunnarsson
ÍBV
85. mín
6-1!!

Omar Sowe (stoðsending: Bjarki Björn Gunnarsson)

Flott stungusending frá Bjarka í gegn á Omar sem er kominn einn á móti Ásgeiri Orra. Omar tekur skotið en það er varið og tekur svo sjálfur frákastið og setur sjötta mark ÍBV.

Omar skorar í endurkomuleiknum!!
84. mín
Sindri Snær með spyrnuna og fór hún rétt fram hjá markinu.
ÍBV
83. mín
Gult spjald

Omar Sowe

Keflavík fær þriðju aukaspyrnuna rétt fyrir utan teig. Omar brýtur af sér.
Keflavík
80. mín
InnErnir Bjarnason
ÚtStefan Alexander Ljubicic
80. mín
Bjarki Björn með hornið en Keflvíkingar koma boltanum í burtu.
79. mín
Omar næstum sloppinn í gegn en vel varist hjá Marin Birgic og Eyjamenn fá horn.
78. mín
Viggó lék skemmtilega framhjá varnarmanni Keflavíkur og kom sér í skotfæri en það er blokkað.
ÍBV
77. mín
InnOmar Sowe
ÚtAlex Freyr Hilmarsson
Omar mættur aftur á völlinn erfir löng og erfið meiðsli!
77. mín
Boltinn berst á Sindra rétt fyrir utan teig og hann tekur skotið í fyrsta en það er yfir.
Keflavík
75. mín
Gult spjald

Stefan Alexander Ljubicic

Tuðspjald. Búinn að tuða töluvert í dag og fékk loksins spjald.
75. mín
Halid Alghoul kemst inn á teig ÍBV og kemur sér í skotfæri en kixar boltann og skotið er framhjá markinu.
74. mín
Það er ekki mikið að frétta þessa stundina.
Keflavík
69. mín
InnFrans Elvarsson
ÚtÞorlákur Breki Þ. Baxter
Keflavík
69. mín
InnHalid Alghoul
ÚtEiður Orri Ragnarsson
ÍBV
67. mín
Róbert skorar fimmta mark ÍBV

Róbert Elís Hlynsson (stoðsending: Viggó Valgeirsson)

Viggó fer með boltann rétt inn í teiginn og leggur boltann til vinstri á Róbert Elís sem klárar vel með vinstri fæti í fjærhornið!

Róbert með sitt annað mark í dag!
66. mín
ÍBV Í FÆRI!!
Viggó með sendingu á Róbert sem tekur skotið en fer í varnarmann. Hann fær boltann aftur og setur boltann fyrir markið þar sem Viggó kemur á hlaupinu og er fyrir opnu marki en nær ekki í boltann.
65. mín
Muhamed tekur aftur spyrnuna fyrir Keflavík en hún var slakari en fyrri spyrnan og er langt frá markinu.
ÍBV
64. mín
Gult spjald

Sigurður Arnar Magnússon

Keflavík fær aukaspyrnu á fínum stað fyrir utan teiginn. Sigurður Arnar brotlegur.
Keflavík
61. mín
KEFLAVÍK MINNKA MUNINN!

Muhamed Alghoul (stoðsending: Muhamed Alghoul)

Frábær sókn hjá Keflavík sem endar á Breki Baxter fær boltann og kemst upp að endalínu. Hann nær fyrirgjöfinni út í markteiginn og Muhamed klárar örugglega og minnkar muninn fyrir Keflavík.
60. mín
ÍBV vill vítaspyrnu!
Viggó fær boltann vinstri megin og kemur góðan bolta inn fyrir vörn Keflavíkur en Róbert Elís nær ekki til boltans. Róbert liggur eftir og Eyjamenn vilja fá víti!
ÍBV
59. mín
InnVicente Rafael Valor Martínez
ÚtSesar Örn Harðarson
ÍBV
59. mín
InnViggó Valgeirsson
ÚtHalldór Jón Sigurður Þórðarson
59. mín
Muhamed með spyrnuna en hún er yfir markið.
58. mín
Keflavík fær aukaspyrnu á fínum stað fyrir utan teiginn.
Keflavík
56. mín
InnSindri Snær Magnússon
ÚtDavíð Helgi Aronsson
53. mín
Nacho Heras með skot fyrir utan markteiginn en það er beint á Ara sem er vel staðsettur. Fyrsta alvöru færi Keflvíkinga í leiknum.
ÍBV
52. mín
HVAÐ ER AÐ GERAST!!

Milan Tomic (stoðsending: Bjarki Björn Gunnarsson)

Bjarki Björn fékk boltann aftur eftir hornspyrnu sem Keflavík hreinsaði í burtu og setur boltann á nær og þar er Tomic sem stangar boltann í netið.

Mörkunum rignir inn hjá Eyjamönnum og staðan orðin 4-0!
ÍBV
49. mín
Fyrirliðinn kemur ÍBV í 3-0!

Alex Freyr Hilmarsson (stoðsending: Bjarki Björn Gunnarsson)

Bjarki Björn með góðan sprett upp hægri kantinn og prjónar sig fram hjá tveimur leikmönnum Keflavíkur. Hann leggur boltann svo á Alex sem klárar vel fram hjá Ásgeiri Orra og kemur Eyjamönnum í 3-0!!
Keflavík
46. mín
InnMarin Mudrazija
ÚtDagur Ingi Valsson
Keflavík gerir eina breytingu í hálfleik
45. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Þetta er farið af stað aftur!

45. mín
Hálfleikur
Eyjamenn leiða 2-0 í hálfleik
ÍBV hafa stjórnað leiknum í fyrri hálfleik og leiða sanngjarnt í hálfleik!
45. mín
Breki Baxter fær boltann hægra megin og nær fyrirgjöfinni en hún er of innarlega og beint á Ara.
45. mín
+1 í uppbótartíma.
45. mín
Muhamed tók hornspyrnuna en hún var ekki góða og hann fær svo boltann aftur og kemur með aðra fyrirgjöf en Ari í marki ÍBV grípur boltann.
43. mín
Ásgeir Páll með skot úr teignum en Tomic kemst fyrir og úr verður hornspyrna fyrir Keflavík.
42. mín
Axel Ingi brunaði upp hægri vænginn en Edeland kemst fyrir boltann og boltinn fer í Axel og aftur fyrir.
ÍBV
39. mín
ÍBV TVÖFALDA FORYSTUNA!!

Halldór Jón Sigurður Þórðarson (stoðsending: Alex Freyr Hilmarsson)

Alex Freyr fékk boltann fyrir utan teiginn og kemur með frábæra sendingu inn á Halldór Jón sem klárar snyrtilega fram hjá Ásgeiri Orra.

2-0!!!
37. mín
Róbert Elís með inswing út horninu beint á Sigurð Arnar sem er á markteignum en skallinn hans yfir markið. Hefði alveg mátt gera betur þarna.
36. mín
Arnór Ingi fær boltann fyrir utan teiginn og tekur skotið en það fer í varnarmann og Eyjamenn fá horn.
34. mín
Róbert Elís reynir að finna Sesar í hlaupinu en Ásgeir Orri er mættur út úr markinu og er fyrstu á boltann.
31. mín
Ásgeir Páll með skot frá vítateigshorninu en það er yfir markið.
30. mín
Arnór Ingi með fyrirgjöf frá hægri en boltinn fer fram hjá öllum og Axel Ingi kemur boltanum í burtu.
28. mín
Keflavík fær aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu hægra megin á vellinum.

Góð spyrna hjá Muhamed en Dagur Ingi gerir ekki nógu vel og fær boltann eiginlega bara í sig og þeir ná ekki að gera sér mat úr þessu.
26. mín
Eiður Atli með fyrirgjöf frá vinstri vængnum en hún er ekki nógu góð og fer yfir allan pakkann og í innkast.
23. mín
Davíð Helgi finnur Muhamed í hlaupinu vinstra megin. Hann reynir að komast fram hjá Sigurði Arnari en missir boltann of langt og ÍBV fær markspyrnu.
21. mín
Góð sókn hjá Keflavík
Eiður Orri fékk boltann hægri megin og endar á senda boltann út á Axel Inga sem tekur skot í fyrsta en boltinn fram hjá.
19. mín
Róbert Elís tók spyrnuna fyrir ÍBV en boltinn fram hjá.
Keflavík
18. mín
Gult spjald

Davíð Helgi Aronsson

Braut á Alex rétt fyrir utan teig.
17. mín
ALEX FREYR !!
Boltinn barst á Alex eftir mistök hjá Keflavík. Hann tekur skotið við vítateigslínuna en Ásgeir Orri nær að verja frá honum.
ÍBV
14. mín
EYJAMENN LEIÐA!!

Róbert Elís Hlynsson (stoðsending: Bjarki Björn Gunnarsson)

Bjarki fékk boltann rétt fyrir utan teiginn hægra megin og kemur með frábæra sendingu inn á teiginn og Róbert Elís hoppar manna hæst og stangar boltann í netið. Frábært mark!

1-0!!!
13. mín
Alex með langan bolta fram á Sesar sem mjög nálægt því að ná að nikka í boltann en Ásgeir Orri kemur langt út kýlir boltann í burtu.
ÍBV
10. mín
Gult spjald

Sesar Örn Harðarson

Kemur alltof seint í tæklinguna á Axel Inga.
9. mín
Muhamed með fyrirgjöf inn á teig ÍBV en Ari kemur út úr markinu og handsamar boltann.
8. mín
Eiður Orri með hættulega fyrirgjöf frá hægri kantinum en Stefan náði ekki til boltans. Keflavík fær horn í kjölfarið.
7. mín
Arnór brunaði upp hægri kantinn en sendingin ekki góð og fór aftur fyrir markið.
7. mín
Tomic með langa sendingu fram á Sesar sem er hársbreidd frá því að ná til boltans en flaggið fór á loft.
4. mín
Bjarki Björn með langa sendingu fram ætlaða Róbert Elís en vindurinn tók hann og beint aftur fyrir.
2. mín
Sesar reynir að lauma boltanum inn á Róbert Elís eftir fínt uppspil Eyjamanna en Keflavík hreinsar í innkast.
1. mín
Leikur hafinn
Við erum farin af stað.

Gestirnir sparka okkur í gang og leika í átt að Týssvelli.

Fyrir leik
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, gerir þrjár breytingar frá jafnteflisleiknum gegn ÍA. Halldór Jón Sigurður, Bjarki Björn og Arnór Ingi koma inn í liðið. Felix Örn Friðriksson er ekki með en þeir Liam Daði Jeffs og Vicente Valor taka sér sæti á bekknum. Omar Sowe er mættur á bekkinn eftir um árs fjarveru, en Serbarnir Milan Jezdimirovic og Filip Stuparevic eru aftur utan hóps hjá Eyjamönnum. Marcel Zapytowski, sem var varmarkvörður í síðasta leik, tekur út leikbann eftir að hafa fengið rautt á bekknum í síðasta leik.

Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, gerir eina breytingu frá sigurleiknum gegn Þór í síðustu umferð. Alpha Conteh er ekki í hóp og Dagur Ingi Valsson byrjar í hans stað. Anton Kralj er ekki í leikmannahópnum en á bekkinn er kominn Edon Osmani.
Fyrir leik
Elmar Cogic spáir 0-1
ÍBV 0 - 1 Keflavík (17:00 á sunnudag)
Keflvíkingar sækja stórglæsilegan iðnaðarsigur í Eyjum 0-1.

   29.05.2026 10:30
Elmar Kári spáir í 9. umferð Bestu deildarinnar
Fyrir leik
Stigafjöldinn endurspegli ekki frammistöðu
ÍBV er á botni deildarinnar með aðeins tvö stig. Annað af þessum stigum kom í síðustu umferð þar sem liðið sýndi karakter og gerði jafntefli við ÍA eftir að hafa lent tveimur mörkum undir. Aleksandar Linta þjálfari ÍBV hefur sagt að frammistaða liðsins hafi verið betri en taflan sýni. Sitt sýnist hverjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þrusuflottir Keflvíkingar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík er í sjötta sæti Bestu deildarinnar og hefur frammistaða liðsins komið flestum á óvart. Í öllum spám var Keflavík í fallsæti, hjá Fótbolta.net í neðsta sæti, en Haraldur Freyr Guðmundsson og lærisveinar eiga hrós skilið fyrir uppskeruna hingað til.
Fyrir leik
ÍBV gerði 2-2 jafntefli gegn ÍA í síðustu umferð
Eftir að hafa lent tveimur mörkum undir á Akranesi náðu Eyjamenn á endanum einu stigi.

Fyrir leik
Keflavík vann Þór í síðustu umferð
Keflavík vann Þór 1-0. Akureyrarliðið fékk vítaspyrnu í uppbótartíma en klúðraði möguleika á að fá stig úr leiknum.

Fyrir leik
Dómarar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Ingi Jónsson dæmir leik dagsins. Guðmundur Ingi Bjarnason og Ronnarong Wongmahadtai eru aðstoðardómarar. Gunnar Oddur Hafliðason fjórði dómari og Viðar Helgason er eftirlitsmaður KSÍ.
Fyrir leik
9. umferð Bestu deildarinnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

sunnudagur 31. maí
17:00 ÍBV-Keflavík (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-KA (Meistaravellir)
17:00 Þór-Stjarnan (VÍS völlurinn)
19:15 Valur-Víkingur R. (N1-völlurinn Hlíðarenda)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.