Fotbolti.net
Einar Már Þórólfsson
Lengjudeild karla
GPG völlurinn
Völsungur
Völsungur
2 - 3
Ægir
Ægir
0 - 114' Harley Bryn Willard0 - 216' Markús Máni Jónsson0 - 380' Jordan AdeyemoSteinþór Freyr Þorsteinsson 82'1 - 3Xabier Cardenas Anorga 91'2 - 3
Dómari: Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson
Leik lokið!
Elfar Árni átti fínan skalla en Ómar í markinu varði vel. Þorfinnur dómari flautar svo leikinn af. Góður sigur Þorlákshafninganna.
Völsungur
91. mín
Xabi minnkar muninn!

Xabier Cardenas Anorga (stoðsending: Tryggvi Grani Jóhannsson)

Xabier neglir boltanum inn með frábæru skoti rétt utan teigs eftir góða sendingu Tryggva Grana. Er séns fyrir heimamenn?
Ægir
88. mín
InnBenedikt Þór Viðarsson
ÚtMarkús Máni Jónsson
84. mín
Bjarki Fannar fær gott færi. Steinþór leggur boltann út á Bjarka sem skýtur yfir úr góðu færi. Þarna hefðu heimamenn getað sett spennu í þetta.
Völsungur
83. mín
InnTryggvi Grani Jóhannsson
ÚtElmar Örn Guðmundsson
Völsungur
82. mín
Eða er þetta kannski ekki búið?

Steinþór Freyr Þorsteinsson (stoðsending: Elfar Árni Aðalsteinsson)

Steinþór minnkar muninn með góðu skoti inni í teig eftir sendingu Elfars Árna.
Ægir
80. mín
Ægismenn ganga frá þessu!

Jordan Adeyemo

Fyrsta sókn Ægismanna í seinni hálfleik endar með marki. Nikola á hörkuskot að marki, Stefán í markinu ver vel en beint fyrir fætur Jordan Adeyemo sem setur boltann í autt markið.
Völsungur
77. mín
InnTómas Bjarni Baldursson
ÚtModoumatarr Mbye
Ægir
75. mín
InnKristinn Ásgeir Þorbergsson
ÚtHarley Bryn Willard
74. mín
Heimamenn liggja á gestunum þessa stundina. Fengu fjórar hornspyrnur í röð en Ægismenn ná að verjast þeim öllum frekar auðveldlega.
69. mín
Hvernig fór þessi ekki inn?
Völsungar fá hornspyrnu sem Arnar Pálmi tekur, Xabier flikkar boltanum áfram á nærstönginni og boltinn lekur framhjá markinu. Vantaði bara eina litla snertingu til að koma boltanum yfir línuna.
Ægir
67. mín
Gult spjald

Jordan Adeyemo

Jordan fær gult fyrir að sparka boltanum í burt eftir að það var dæmd á hann aukaspyrna.
Völsungur
62. mín
Gult spjald

Elmar Örn Guðmundsson

Elmar fær gult fyrir kjaftbrúk.
56. mín
Steinþór fær boltann í teignum í fínustu stöðu en varnarmaður Ægis nær að komast í boltann á síðustu stundu.
54. mín
Elfar Árni nálægt því. Fín fyrirgjöf og Elfar hársbreidd frá því að ná til boltans en aftur fyrir svífur hann.
Völsungur
52. mín
Gult spjald

Modoumatarr Mbye

Mbye stoppar skyndisókn Ægismanna og fær gult spjald.
48. mín
Völsungar halda áfram að pressa. Fá tvær hornspyrnur strax í upphafi seinni hálfleiksins en ekkert kemur þó úr þeim.
46. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikur er hafinn.
Völsungur
46. mín
InnSteinþór Freyr Þorsteinsson
ÚtGestur Aron Sörensson
Borja þjálfari Völsungs gerir þrefalda skiptingu í hálfleik.
Völsungur
46. mín
InnElfar Árni Aðalsteinsson
ÚtDagbjartur Búi Davíðsson
Völsungur
46. mín
InnFernando Jimenez Arranz
ÚtÝmir Hjálmsson
45. mín
Hálfleikur
Ægismenn leiða með tveimur mörkum í hálfleik. Sanngjörn forysta hjá gestunum en heimamenn hafa þó vaknað til lífsins hér í lok hálfleiksins.
Nú fáum við okkur bestu borgara landsins hjá þeim félögum Fannari og Linda og komum svo aftur eftir korter.
45. mín
Aftur skallar Elmar Örn rétt yfir eftir hornspyrnu.
44. mín
Nú fær gestur færi. Völsungar eru aðeins að færa sig uppá skaftið. Gestur í fínni stöðu inní teig en skot hans beint á Ómar í markinu.
43. mín
Arnar Pálmi skýtur rétt yfir. Fyrirliði Völsungs keyrir upp völlinn og lætur vaða rétt fyrir utan teig en skot hans flýgur rétt yfir.
40. mín
Það er lítið um færi en heimamenn fá ágætisfæri eftir hornspyrnu. Elmar skallar rétt framhjá.
29. mín
Aftur eru heimamenn nálægt því að minnka muninn. Mbye er í fínni stöðu rétt innan við teig en skot hans er ekki nógu gott og fer yfir markið.
28. mín
Ægismenn fá dauðafæri
Eftir darraðadans í teignum berst boltinn á Jordan Adeyemo sem er í dauðafæri en Stefán ver frábærlega frá honum.
25. mín
Stöngin
Heimamenn nálægt því að minnka muninn. Arnar Pálmi gefur fyrir úr aukaspyrnu á Xabier sem skýtur í stöngina.
Ægir
16. mín
Ægismenn bæta við!

Markús Máni Jónsson

Eru gestirnir að ganga frá þessu?
Sá ekki alveg aðdragandann en allt í einu var Markús Máni sloppinn aleinn í gegn og hann gerir engin mistök og klárar vel.
Ægir
14. mín
Ægismenn leiða!

Harley Bryn Willard

Harley Willard fær boltann úti hægra megin við miðlínu. Leikur framhjá Juan og keyrir í átt að marki, leikur framhjá öðrum varnarmanni og lætur vaða. Stefán var nálægt því að verja en inn fór boltinn.
10. mín
Það er mikið jafnræði með liðunum hér fyrstu mínúturnar. Lítið að gerast meðan liðin þreifa fyrir sér.
2. mín
Fyrstu marktilraun leiksins eiga heimamenn. Gestur á fínasta skot rétt fyrir utan teig en Ómar ver án vandræða.
1. mín
Leikur hafinn
Þorfinnur dómari flautar í flautu sína og leikurinn er hafinn.
Fyrir leik
Það er allt að verða klárt hér á GPG-vellinum. Byrjunarliðin eru klár og má sjá þau hér til hliðar. Þetta er svokallaður 6 stiga leikur í dag. Liðin eru í tveim neðstu sætum deildarinnar og því er leikurinn mjög mikilvægur í botnbaráttunni.
Það er að sjálfsögðu rjómablíða hér á Húsavík í dag eins og alltaf og aðstæður til knattspyrnuiðkunnar eins og best verður á kosið.
Vonandi fáum við alvöru skemmtun inni á vellinum.
Fyrir leik
Góðan daginn og velkomin í beina textalýsingu frá GPG-vellinum á Húsavík þar sem að í dag mætast Völsungur og Ægir frá Þorlákshöfn í 7.umferð Lengjudeildar karla.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.