Leik lokið!
Einstefna á Hlíðarenda
90. mín
+2 í uppbótartíma
87. mín
Tryggvi með rosalega góða hornspyrnu sem Valsmenn ná ekki að gera sér mat úr.
Tryggvi Hrafn má eiga það að hann hefur komið með rosalega góðar hornspyrnur hér í kvöld en fátt um fína drætti inn í teig Víkinga hjá Valsmönnum.
Tryggvi Hrafn má eiga það að hann hefur komið með rosalega góðar hornspyrnur hér í kvöld en fátt um fína drætti inn í teig Víkinga hjá Valsmönnum.
86. mín
Valsmenn fá hornspyrnu
85. mín
InnSveinn Gísli Þorkelsson
ÚtGunnar Vatnhamar
Gilli mætir inn á beint í kjölfarið á markinu.
84. mín
Þeir bæta við!
Karl Friðleifur Gunnarsson
Fær boltann inn á teignum og klárar framhjá Frederik Schram. Það er átakanlegt að horfa á þetta Valslið verjast í kvöld. Karl er að ganga endanlega frá Hlíðarendafélaginu í kvöld.83. mín
9.8 á Fotmob
Óskar Borgþórs, sem er búinn að skora þrennu í kvöld, er sem stendur með 9.8 í einkunn á Fotmob. Spurning hvort hann nái að toga sig upp í tíuna.
80. mín
Gult spjald
Daníel Hafsteinsson
Stoppar hraða skyndisókn og fær réttilega gult spjald.80. mín
Loki Kristjánsson sem var að koma inn á er nýorðinn 15 ára.
Ætli Hemmi sé að reyna að beina athyglinni einhvert annað en á þetta afhroð sem er að eiga sér stað hjá Valsliðinu?
Ætli Hemmi sé að reyna að beina athyglinni einhvert annað en á þetta afhroð sem er að eiga sér stað hjá Valsliðinu?
79. mín
InnLoki Kristjánsson
ÚtMyles A Veldman
79. mín
InnKristófer Dagur Arnarsson
ÚtAlbin Skoglund
77. mín
Óskar að hóta fernunni!
Vinnur boltann af Óskari ofarlega á vellinum og kemst einn á móti Frederik Schram sem ver skotið sem fer aftur í Óskar og útaf.
Það er átakanlegt að horfa á þetta hjá Val. Áhugaleysi finnst mér.
Það er átakanlegt að horfa á þetta hjá Val. Áhugaleysi finnst mér.
75. mín
Leikurinn hefur róast heldur betur og lítið um að vera þessar allra seinustu mínútur.
Bæði lið skiptast á að halda í boltann.
Bæði lið skiptast á að halda í boltann.
71. mín
InnAron Elís Þrándarson
ÚtElías Már Ómarsson
71. mín
InnJóhannes Kristinn Bjarnason
ÚtÁrmann Ingi Finnbogason
70. mín
Dauðafæri!
Elías Már kemur með bolta í gegn á Valdimar sem reynir utanfótarskot í fyrsta en það fer rétt framhjá.
Þarna átti Valdimar að gera betur.
Þarna átti Valdimar að gera betur.
65. mín
Skemmtilegur banner - Góð stemning Víkingsmeginn

63. mín
Aron Snær lá um andartak niðri eftir samstuð en er staðinn upp á ný. Það er enginn varamarkvörður á bekk Víkinga þannig þeir mega varla við því að Aron meiðist alvarlega.
62. mín





Hafliði Breiðfjörð er vopnaður myndavél á Hlíðarenda






61. mín
InnTarik Ibrahimagic
ÚtGylfi Þór Sigurðsson
61. mín
InnViktor Örlygur Andrason
ÚtHelgi Guðjónsson
60. mín
Er ennþá von?
Tryggvi minnkar muninn!
Tryggvi Hrafn Haraldsson
Skyndilega er Tryggvi sloppinn einn í gegn og klárar frábærlega framhjá Aroni.Er ennþá von?
59. mín
Jakob Franz átti vægast sagt dapran leik í kvöld
58. mín
InnEmil Nönnu Sigurbjörnsson
ÚtAdam Ægir Pálsson
58. mín
InnIngimar Torbjörnsson Stöle
ÚtJakob Franz Pálsson
58. mín
58. mín
Lúkas Logi með hörkuskot í hliðarnetið. Valsmenn aðeins að bíta frá sér.
52. mín
Þá er þetta endanlega komið hjá gestunum.


ÞRENNA Í HÚS!
Óskar Borgþórsson (stoðsending: Karl Friðleifur Gunnarsson)
Óskar Borgþórs hendir í þrennu og er ábyggilega bara orðinn maður leiksins núþegar. Karl Friðleifur með frábæra fyrirgjöf inn á teiginn sem Óskar skallar í netið. Hans annað skallamark í kvöld.Þá er þetta endanlega komið hjá gestunum.


47. mín
Valsmenn fá hornspyrnu í tvígang en ná ekki að gera sér mat úr þeim.
46. mín
Valsmenn byrja af krafti
Tryggvi fær boltann inn á teignum og reynir skotið á markið sem Aron ver í horn.
46. mín
Seinni hafinn!
45. mín
Hálfleikur
+3 - Eitt lið á vellinum í fyrri hálfleik
Víkingar verið yfir í allri baráttu innan sem og utan vallar í fyrri hálfleiknum.
Verðskulduð 3-0 forysta sem þeir taka með sér inn í hálfleikinn.
Tökum okkur korterspásu og mætum svo til baka með seinni hálfleikinn að vörmu spori.
Verðskulduð 3-0 forysta sem þeir taka með sér inn í hálfleikinn.
Tökum okkur korterspásu og mætum svo til baka með seinni hálfleikinn að vörmu spori.
45. mín
+3 í uppbótartíma
45. mín
Gylfi tekur spyrnuna inn á teiginn sem Ólafur Flóki skallar frá.
44. mín
Víkingar næla sér í hornspyrnu
44. mín
Leikurinn hefur verið ansi róleugr eftir þriðja markið.
Lítur allt út fyrir það að Víkingar fari með þriggja marka forskot inn í hálfleikinn.
Lítur allt út fyrir það að Víkingar fari með þriggja marka forskot inn í hálfleikinn.
41. mín
Gult spjald
Myles A Veldman
Eitthvað off the ball brot sem ég sá ekki alveg.36. mín
Því miður en það er bara eitt lið á vellinum, 1 mínútua milli markanna rúmlega.
Funheitur Óskar!
Óskar Borgþórsson (stoðsending: Ármann Ingi Finnbogason)
Ármann með fullkomna fyrirgjöf á Óskar Borgþórs sem stangar boltann í netið framhjá Frederik Schram. Hann sparkar í boltann með hausnum, hans sjöunda mark í sumar.Því miður en það er bara eitt lið á vellinum, 1 mínútua milli markanna rúmlega.
35. mín
Gult spjald
Bjarni Mark Antonsson
Stoppar hraða skyndisókn og fær réttilega gult spjald frá Ívari.34. mín
Víkingar eru að ganga á lagið á meðan Valsmenn virka mjög andlausir og bitlausir.
Óskar með laglegt mark!
Óskar Borgþórsson
Vinnur boltann örugglega á vellinum og keyrir að teignum áður en hann klárar frábærlega í netið. Frábær afgreiðsla og mark hjá Óskari.Víkingar eru að ganga á lagið á meðan Valsmenn virka mjög andlausir og bitlausir.
32. mín
Víkingar fá hornspyrnu
Valsmenn standa vaktina vel og bægja hættunni frá örugglega.
31. mín
Ólafur fer í hafsentinn með Markus og Jakob Franz í hægri bakvörðinn.
30. mín
InnÓlafur Flóki Stephensen
ÚtHörður Ingi Gunnarsson
Hörður hefur lokið leik
29. mín
Nú Hörður - Yfirvinna á sjúkraþjálfarann!
Leikurinn fer í gang og þá fer Hörður Ingi strax niður. Aron Óskar, sjúkraþjálfari Vals, stendur í ströngu að sinna leikmönnum Vals. Stendur hinum meginn á vellinum með Skoglund og kemur inn þar að sinna Herði.
27. mín
Skoglund meiddur
Leikurinn stopp þar sem Albin Skoglund liggur meiddur niðri eftir árekstur frá liðsfélaga. Hins vegar dæmdi Ívar aukaspyrnu á Víkinga sem ég skil ekki.
24. mín
Helgi Guðjóns tekur spyrnuna inn á teiginn sem Valsmenn hreinsa frá.
23. mín
Víkingar fá hornspyrnu
22. mín
Bjargað á línu!
Gylfi tekur boltann inn á teiginn sem Daníel Hafsteins skallar á markið en Frederik nær að verja eða einhver varnarmaður bjargar á línu, sá það ekki fyrir þvögunni. En þeir fá aðra hornspyrnu sem þeir ná ekki að gera sér mat úr, sóknarpressar heldur samt áfram hjá gestunum.
22. mín
Víkingar að fá horn
20. mín
Stórsóknir beggja liða!
Gylfi tekur skotið fyrir utan teig sem Frederik ver út í teiginn. Þar eru Helgi Guðjóns og Valdimar báðir mættir í frákastið í tvígang en ná ekki að gera sér mat úr þessu.
Valsmenn keyra síðan upp í sókn hinum meginn og Skoglund og Tryggvi eru komnir tveir á einn. Skoglund reynir að renna honum á Tryggva í stað þess að skjóta og Valsmenn tapa boltanum. Valsmenn í stúkunni allt annað en sáttir.
Valsmenn keyra síðan upp í sókn hinum meginn og Skoglund og Tryggvi eru komnir tveir á einn. Skoglund reynir að renna honum á Tryggva í stað þess að skjóta og Valsmenn tapa boltanum. Valsmenn í stúkunni allt annað en sáttir.
19. mín
Víkingar skora ekki minna en 3 mörk í þessum leik. Stuðulinn á Víkingur yfir 3 mörk á Epic er 1.85. Takið það.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) May 31, 2026
18. mín
Góð tilraun
Daníel Hafsteins reynir skot af löngu færi sem Schram ver út í innkast. Ekki slæm tilraun hjá Danna þarna.
16. mín
Tryggvi kemur með góðan bolta inn á teiginn sem Víkingar hreinsa frá.
15. mín
Aftur fá Valsmenn horn
13. mín
Víkingar standa vaktina vel og hreinsa.
12. mín
Tryggvi tekur spyrnuna inn á teiginn sem Karl Friðleifur skallar aftur fyrir í annað horn. Frábær bolti en enginn Valsari mættur á fjærsvæðið.
11. mín
Valsmenn að fá hornspyrnu!
7. mín
Víkingar halda áfram að sækja
Helgi fær boltann inn á teignum og rennir honum á Elías Má sem hittir ekki boltann nægilega vel. Valsmenn sleppa með skrekkinn.
5. mín
Ekki góður varnarleikur hjá Valsmönnum þarna, sýndist það vera Jakob Franz sem er sekur þarna en á að vissu eftir að sjá þetta aftur.
Þetta var ótrúlega auðvelt!
Helgi Guðjónsson (stoðsending: Peter Oliver Ekroth)
Oliver Ekroth með langan bolta upp völlinn aftur fyrir vörn Valsmanna og þar er Helgi mættur á svæðið og klárar örugglega framhjá Frederik í markinu.Ekki góður varnarleikur hjá Valsmönnum þarna, sýndist það vera Jakob Franz sem er sekur þarna en á að vissu eftir að sjá þetta aftur.
5. mín
Sé þetta nokkurn veginn svona
Valur (4-4-1-1)
Schram
Hörður - Jakob - Markus - Myles
Tryggvi - Samúel - Bjarni - Lúkas
Skoglund
Adam
Víkingur R. (4-4-2)
Aron
Karl - Gunnar - Oliver - Helgi
Ármann - Daníel - Gylfi - Óskar
Valdimar - Elías
Schram
Hörður - Jakob - Markus - Myles
Tryggvi - Samúel - Bjarni - Lúkas
Skoglund
Adam
Víkingur R. (4-4-2)
Aron
Karl - Gunnar - Oliver - Helgi
Ármann - Daníel - Gylfi - Óskar
Valdimar - Elías
3. mín
Gult spjald
Hörður Ingi Gunnarsson
Fer í ansi groddaralega tæklingu og fær verðsluldað spjald1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn sparka okkur af stað!
Fyrir leik
Áfram Ingvar!
Þá ganga liðin og dómarar leiksins til vallar, allir í treyjum merktum Ingvari Jónssyni sem er fallegt að sjá.
Það styttist óðum í að leikurinn hefjist.
Það styttist óðum í að leikurinn hefjist.
Fyrir leik
Styttist í leik
Liðin rölta til búningsklefa og gera sig klár í slaginn. Sprinklerarnir eru að vökva völlin, fólkið að týnast í stúkuna og almennt góð stemning hér á Hlíðarenda.
Vonandi fáum við hörkuleik í kvöld.
Vonandi fáum við hörkuleik í kvöld.
Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar
Elmar Kári Cogic, leikmaður Aftureldingar, fékk það verðuga verkefni að spá fyrir leiki 9. umferðar Bestu deildarinnar.
Valur 0 - 1 Víkingur R. (19:15 í kvöld)
Eitthvað sem segir mér að Gylfi klíni honum í vinkilinn af 40 metrum og þeir taki þetta 0-1.
Valur 0 - 1 Víkingur R. (19:15 í kvöld)
Eitthvað sem segir mér að Gylfi klíni honum í vinkilinn af 40 metrum og þeir taki þetta 0-1.
Fyrir leik
Þriðja liðið
Dómari leiksins er Ívar Orri Kristjánsson, honum til halds og trausts verða þeir Birkir Sigurðarson og Þórður Arnar Árnason, fjórði dómari leiksins er hann Elías Ingi Árnason og eftirlitsmaður KSÍ er Halldór Breiðfjörð Jóhannsson.


Fyrir leik
Víkingar á toppnum
Byrjun Víkinga á mótinu hefur verið frábær en þeir tróna á toppi deildarinnar taplausir. Þeir hafa unnið alla sína leiki nema einn leik sem þeir gerðu jafntefli í á móti Breiðablik í opnunarleiknum.
Það er því augljóst að Víkingar eru líklegri í að vinna leikinn en Valur í kvöld.

Það er því augljóst að Víkingar eru líklegri í að vinna leikinn en Valur í kvöld.

Fyrir leik
Kaflaskipt hjá Valsmönnum
Byrjun Valsmanna á mótinu hefur verið bæði upp og niður. Seinast fóru þeir í fýluferð í Vesturbæinn þar sem þeir töpuðu 3-1 fyrir KR. Þar á undan höfðu þeir unnið KA og Breiðablik. Valur er sem stendur í 5. sæti deildarinnar.
Það verður áhugavert að sjá hvernig Valsmenn mæta til leiks í þetta stóra próf sem bíður þeirra.

Það verður áhugavert að sjá hvernig Valsmenn mæta til leiks í þetta stóra próf sem bíður þeirra.

Fyrir leik
Sú lang Besta!
Heilir og sælir ágætu lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Vals og Víkings í Bestu deild karla á Hlíðarenda.








Ég þakka samfylgdina í kvöld og minni á viðtöl og skýrslu sem detta inn seinna í kvöld. Þanngað til næst, takk fyrir mig og lifið heil.
Áfram allir!