Leik lokið!
Skýrsla og viðtöl á leiðinni, takk fyrir mig.
92. mín
107 áhorfendur í dag.
92. mín
Lítið að gerast.
90. mín
+4 mínútur
89. mín
InnMargrét Lea Gísladóttir
ÚtÚlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
89. mín
Úlfa keyrir inn í teiginn á hægri kantinum, sendir á Birnu sem nær ekki skotinu. Boltinn dettur svo á Hrefnu en skotið hennar er blokkað.
86. mín
Rósa keyrir inn í teiginn, nær skotinu en það fór í varnarmann og fyrir horn.
Hornið er lamið burt af Herdísi.
85. mín
InnLilja Þórdís Guðjónsdóttir
ÚtEdith Kristín Kristjánsdóttir
85. mín
InnBára Björk Jóelsdóttir
ÚtKatelyn Duong
84. mín
Agla keyrir inn í teig, sendir á Edith en Stjarnan nær að sparka blokka sendinguna.
81. mín
Birna sendir Úlfu í gegn en hún rétt missir boltann.
79. mín
InnHrefna Jónsdóttir
ÚtFanney Lísa Jóhannesdóttir
79. mín
InnBryndís Arna Níelsdóttir
ÚtElísa Viðarsdóttir
79. mín
InnErika Ýr Björnsdóttir
ÚtAndrea Mist Pálsdóttir
78. mín
Hrafnhildur Ása keyrir upp vinstri kantinn og kemur með fyrirgjöf en það er enginn bliki inn í markteignum.
77. mín
Horn fyrir Stjörnuna, skallinn fer yfir markið.
73. mín
Varsla
Karítas fær boltann inn í teig, nær volley sem Skiba ver frábærlega.
71. mín
Hrefna fær boltann rétt fyrir utan teig, lætur vaða langt frá en skotið er yfir markið.
69. mín
Smá tæknilegir örðugleikar en ég er komin til baka!
65. mín
InnAníta Ýr Þorvaldsdóttir
ÚtSnædís María Jörundsdóttir
65. mín
InnÓlöf Sigríður Kristinsdóttir
ÚtSunna Rún Sigurðardóttir
60. mín
MAAAARK!
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (stoðsending: Karitas Tómasdóttir)
Karítas keyrir inn í teiginn og rennur boltanum á Hranfhildi sem skýtur í markið.58. mín
MAAAARK!
Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir (stoðsending: Fanney Lísa Jóhannesdóttir)
Blikar með gott færi inn í teig Stjörnunnar, missa boltann. Boltinn dettur á Birnu sem sendir Fanney Lísu í gegn á hægri kantinum. Fanney er komin í erfiða stöðu en nær að senda á Úlfu sem er hinum megin í teignum. Úlfa skýtur svo framhjá markmanninum.56. mín
Líf með fyrirgjöf inn í teig, beint á Öglu en það er erfitt fyrir hana að ná góðum skalla og skallar hún framhjá.
52. mín
MAAAARK!
Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (stoðsending: Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir)
Úlfa keyrir upp vinstri kantinn, kemur með fyrirgjöf inn í teiginn sem dettur á Ingibjörgu sem nær að pota boltanum inn í markið.51. mín
Blikar eru með yfirhöndina en vörn Stjörnunnar nær að höndla pressuna vel.
48. mín
Boltinn dettur í teignum á Elísu sem skýtur yfir markið.
47. mín
Rósa er númer 77 á skýrslu en hún er númer 17. Gott að hafa þetta á hreinu.
46. mín
Seinni hálfleikur
46. mín
InnRósa María Sigurðardóttir
ÚtAnna María Baldursdóttir
Anna þarf að fara út af vegna meiðsla.
45. mín
Sjáumst eftir korter.
45. mín
Uppbótartími er ein mínúta.
44. mín
Agla rennir boltanum á Duong sem er við D bogann, Duong tekur skotið sem er lélegt og fer framhjá stönginni.
43. mín
Agla tekur horn sem Skiba grípur.
42. mín
Agla reynir að koma boltanum fyrir ofan varnarlínu Stjörnunnar en það er enginn leikmaður tilbúin að fá boltann.
Hátt ,,neit" heyrðist í stúkunni.
38. mín
Fanney keyrir upp vinstri kantinn, cuttar og tekur skotið sem fer í Elísu.
38. mín
Hætta
Agla kemur með fyrigjöf á Líf sem skallar beint í Wirtz og skallinn fer rétt framhjá stönginni.
37. mín
Sláin
Aukaspyrna rétt fyrir utan teig Stjörnunnar.
Agla tekur spyrnuna, skýtur beint í slána og út fyrir markspyrnu.
36. mín
Úlfa með fyrirgjöf inn í teig sem Herdís grípur.
35. mín
Stjarnan er að leita af sínu öðru marki, gengur ekki svo vel.
29. mín
Blikar eru að herja á mótherjana sína, en ná ekki að skora þrátt fyrir fín færi.
26. mín
Darraðadans inn í teig
Fyrirgjöf kemur inn í teig Stjörnunar, varnarmenn ná boltanum burt en boltinn dettur á Sunnu Rún sem lætur vaða en Skiba nær að verja.
23. mín
Stöng
Sunna Rún rennir boltanum á Öglu sem er við D bogann, Agla lætur vaða strax og Skiba rétt nær að verja boltann í stöngina.
Hættulegasta færi Blika í dag!
20. mín
Fanney keyrir upp hægri kantinn, kemur með fyrirgjöf sem er blokkeruð af varnarmanni Blika.
19. mín
Hrafnhildur Ása með skot rétt fyrir utan teigin, skotið fer rétt yfir.
18. mín
Dauðafæri
Herdís með misheppnaða sendingu á Birnu sem sendi á Úlfu sem er í D boganum, Úlfa lætur vaða en Herdís ver skotið þægilega.
Þarna hefði Stjarnan léttilega skorað 2-0, mín skoðun er sú að Birna hefði átt að láta vaða þegar hún fékk boltann strax þar sem Herdís var langt frá í markinu.
16. mín
Birna kemur með fyrirgjöf en Herdís grípur boltann.
13. mín
Elísa er niðri eftir högg við Telmu, hún þarfnast aðhlynningar á hliðarlínunni.
12. mín
Blikar eru að reyna að svara en ná ekki skoti á markið.
7. mín
MAAAARK!
Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (stoðsending: Eva Marie Wirtz)
Wirtz rennir boltanum á Ingibjörgu sem lætur vaða langt frá, skotið fer yfir Herdísi í slána, Herdís rétt nær fingrunum í boltann en það var ekki nóg.7. mín
Andrea Mist keyrir inn í teiginn af kantinum, missir svo boltann og Blikar ná boltanum út.
5. mín
Aukaspyrna fyrir Stjörnuna, boltinn kemur inn í teig en Blikar skalla fyrir horn.
3. mín
Byrjar rólega.
1. mín
Blikar byrja.
Fyrir leik
Spáin
Fotbolti.net fékk Fanndísi Friðriksdóttur til þess að spá í umferðina, þetta segir hún um leikinn í dag.
Breiðablik 3 - 1 Stjarnan
,,Bryndís Arna setur 2 og Hrafnhildur Ása 1."

Fyrir leik
Dómaratríóið
Guðmundur Páll Friðbertsson verður með flautuna, Breki Sigurðsson og Óliver Thanh Tung Vú verða með flöggin, Arnar Ingi Ingvarsson verður með skiltið.

Fyrir leik
Umferðin 13. júní
Breiðablik - Stjarnan (Kópavogsvöllur)
Fram - Grindavík/Njarðvík (Lambhagavöllurinn)
Víkingur R. - FH (Víkingsvöllur)
Þróttur R. - ÍBV (AVIS völlurinn)
Valur - Þór/KA N1-völlurinn (Hlíðarenda)
Fyrir leik
Stjarnan taplausar í síðustu þremur
Stjarnan fékk ÍBV í heimsókn í síðasta leik og unnu þær 2-0, fyrir þann leik fóru þær í Laugardalinn og unnu þann leik 0-1. Fyrir þessa tvo leiki fóru þær til Njarðvíkur en þurftu að deila stigunum með Grindavík/Njarðvík.
ÍBV og Þróttur eru tvö lið sem eru fyrir ofan Stjörnuna og er það mikilvægt að taka stig af þeim og helst þrjú stig.
Spurning hvort að Stjarnan taki stig eða öll þrjú stigin af topp liðinu.
Stjarnan er í fimmta sæti með 11 stig. Þrír sigurleikir, tveir tapleikir og tvö jafntefli.
Andrea Mist og Ingibjörg Lúcía eru báðar markahæstar með tvö mörk.


Fyrir leik
Breiðablik skoraði fimm í síðasta leik
Breiðablik fór í ferð til Njarðvíkur í síðustu umferð og komu heim með þrjú stig, hreint lak og fimm mörk skoruð.
0-1 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir '1
0-2 Katelyn Duong '15
0-3 Agla María Albertsdóttir '51
0-4 Agla María Albertsdóttir '64
0-5 Líf Joostdóttir van Bemmel '67
Breiðablik er á toppnum með 18 stig, eftir sjö leiki. Sex sigrar og eitt tap.
Agla María og Hrafnhildur Ása eru báðar markahæstar með 5 mörk skoruð.
Í síðasta heimaleik Breiðabliks, töpuðu þær gegn FH 2-3. Eini tap leikur Breiðaliks á tímabilinu.


Fyrir leik
Besta deildin heilsar!
Velkomin kæru lesendur á beina lýsingu frá leik Breiðabliks og Stjörnunnar á Kópavogsvelli.
Þetta er umferð nr 8.





