SKÝRSLAN: Nýliðarnir ekki í vandræðum í dal draumanna
Hvað réði úrslitum?
Gæðin og baráttan hjá Grindavík/Njarðvík skilaði þeim sigrinum í dag. Þær voru yfir á öllum sviðum leiksins og ef ekki væri fyrir hörkuvörslur hjá Ashley Brown Orkus hefði tapið verið mun stærra.
Bestu leikmenn
1. Tinna Hrönn Einarsdóttir
Kom inn á 9. mínútu þegar Danai Kaldaridou varð fyrir því óláni að meiðast, átti frábæran leik og kórónaði góða frammistöðu með sínu fyrsta marki í sumar. Löngu tímabært mark hjá þessum lunkna framherja. Les leikinn vel, sterk og frábær í að koma sér í góðar stöður. Að fleiri ólöstuðum þá áttu Ellie Coffield, Ása Björg og Hildur Katrín líka góðan dag á vellinum, tjahh bara eins og allir leikmenn Grindavíkur/Njarðvíkur
2. Ashley Brown Orkus
Hjá Fram átti markmaðurinn Asley Bron Orkus hörkudag milli stanganna og hélt sínum konum í Fram lengi vel inn í leiknum með frábærum vörslum og kom trekk í trekk í veg fyrir að Grindavík/Njarðvík gætu aukið forystu sína. Gat lítið gert í mörkunum sem hún fékk á sig.
Atvikið
Set þetta á fyrsta markið sem kom strax á 5. mínútu er Ellie Coffield skallaði frákastið frá Hönnu McLaughlin í netið. Setti tóninn strax fyrir gestina sem héldu áfram að ógna út leikinn. Gestirnir hefðu að öllu óbreyttu átt að sigra þennan leik stærra.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það einfaldlega að Grindavík/Njarðvík sækja stigin þrjú! Þær eru þá komnar með 11 stig og upp í 6. sætið. Framkonur hins vegar enn með 4 stig í 9. sætinu.
Vondur dagur
Klárlega vondur dagur hjá Danai Kaldaridou sem meiddist snemma í fyrrihálfleik, vonandi ekkert alvarlegt sem heldur henni frá.
Annars var ekki mikið að frétta hjá Framliðinu í heild. Ég kalla hér með eftir betri frammistöðu hjá Brookelynn Paige Entz, 8 umferðir búnar án þess að fá mark hjá henni og í rauninni góða solid frammistöðu í heilan leik! Hún verður að fara stíga upp fyrir sitt lið
Dómarinn - 6
Ásmundur og hans teymi voru bara fínir í dag, leyfðu leiknum að fljóta vel og var ekkert að dæma á barning. Set alveg spurningu við að spjalda Natöshu þarna strax en gefa henni síðan allavega 2 sénsa þar sem hún hefði alveg getað fengið seinna gula en overall bara flottur.



