Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetElíza Gígja Ómarsdóttir
Víkingur R.
Víkingur R.
Besta kvenna
Víkingsvöllur
2 - 5
FH
FH
Freyja Stefánsdóttir 11'1 - 01 - 117' Nia Raisa Christopher1 - 218' Ingibjörg Magnúsdóttir1 - 357' Deja Jaylyn Sandoval1 - 467' Thelma Lóa HermannsdóttirJóhanna Elín Halldórsdóttir 71'2 - 42 - 579' Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

SKÝRSLAN: FH á toppinn

Hvað réði úrslitum?

FH voru bara betra liðið á vellinum, svo einfalt var það. Þær skoruðu fimm góð mörk og sóttu mjög verðskulduð þrjú stig í Fossvoginn. FH líta gríðarlega vel út þessa dagana og sýndu í þessum leik að þær eiga alveg möguleika á að vinna þessa deild.

Bestu leikmenn

1. Ída Marín Hermannsdóttir (FH)

Ída Marín var langbesti leikmaðurinn á vellinum í dag. Í hvert einast skipti sem hún fékk boltann skapaðist hætta og Víkingarnir virtust bara ekki komast nálægt henni. Væri ótrúlega gaman að sjá hana taka næsta skref og fara eitthvert út og spreyta sig í atvinnumennsku.

2. Thelma Lóa Hermannsdóttir (FH)

Það er svo gaman að horfa á Thelmu spila fótbolta. Ekkert smá áræðin og alltaf til í að taka manninn sinn á sem eru greinilega skilaboð sem hún fær af bekknum en í hvert einasta skiptið sem hún fær boltann heyrist „taktu hana á“. Ofboðslega kraftmikil og gefur þessu FH liði svo mikið.

Atvikið

Víkingarnir komust yfir þvert gegn gangi leiksins en FH voru ekki lengi að jafna og mínútu seinna komust þær yfir. Eftir það var ekki aftur snúið og ljóst hvert þrjú stigin væru að fara í dag.

Hvað þýða úrslitin?

FH halda áfram á sinni fljúgandi siglingu og eru nú með sex sigra í röð. Víkingar hins vegar halda áfram sínum óstöðugleika og tapa sínum fimmta leik í sumar. Níu stig eftir átta leiki er ekki eitthvað sem Einar og hans konur sáu fyrir sér fyrir tímabil ímynda ég mér.

Vondur dagur

Varnarlína Víkinga fannst mér ekki nóg og grimmar í sínum aðgerðum. Ingibjörg fékk að hlaupa nokkuð óáreitt í gegn um hjartað í sínu marki, þær voru sundurspilaðar á köflum og voru að lenda eftirá í kapphlaupum.

Dómarinn - 8

Aðalbjörn Heiðar og hans teymið gerðu þetta vel í dag. Ekkert sérstaklega erfiður leikur að dæma en ég tók lítið eftir dómurunum heilt yfir sem er alltaf jákvætt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.